Fréttablaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 45
FAGSVIÐSSTJÓRI
HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á:
ORKUSKIPTUM? UMHVERFISMÁLUM?
TRAUSTUM INNVIÐUM? SNJALLVÆÐINGU?
Samorka óskar eftir að ráða drífandi einstakling sem býr yfir
miklu frumkvæði, skipulögðum vinnubrögðum og getu til að
sinna mikilvægum og spennandi verkefnum í heimi orku- og
veitumála. Um er að ræða skemmtilegt starf fyrir einstakling
sem hefur áhuga á að leiða faglegt starf samtakanna, sinna
þekkingarmiðlun og samskiptum við stjórnvöld.
Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi.
Aðildarfélög Samorku eru um 50 talsins og með starfsemi um
land allt. Hlutverk samtakanna er að starfrækja trúverðugan,
fræðandi og jákvæðan vettvang um starfsemi orku- og
veitufyrirtækja og styrkja þannig stöðu þeirra og rekstur.
Samorka er aðili að Samtökum atvinnulífsins og er staðsett í
Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35. Í starfinu felst tækifæri
til að vinna náið með ýmsum sérfræðingum aðildarfyrirtækja
Samorku auk sérfræðinga annarra samtaka í Húsi
atvinnulífsins.
NÁNARI UPPLÝSINGAR MÁ SJÁ Á WWW.SAMORKA.IS
Bæði konur og karlmenn eru hvött til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku (pall@samorka.is)
og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511-1225. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 9. janúar 2019. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
HELSTU VERKEFNI:
Móta starfsumhverfi orku- og veitugeirans
Umsjón með starfi fag- og málefnahópa sem starfa á vettvangi
samtakanna
Samstarf við ráðuneyti og opinberar stofnanir
Umsjón með ráðstefnum um málefni orku- og veitugeirans
Skipulagning námskeiða og fræðslu fyrir aðildarfyrirtæki
Faglegur stuðningur við ýmis verkefni innan orku- og veitugeirans
Eftirfylgni með nýrri stefnu samtakanna
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
Háskólamenntun á sviði verkfræði/tæknifræði eða önnur
menntun sem nýtist í starfi.
Þekking á orku- og veitugeiranum er kostur
Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Færni í markvissri framsetningu upplýsinga
Færni og lipurð í mannlegum samskiptum
Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku
Spennandi starf í
vefverslun Húsasmiðjunnar
Deildarstjóri vefverslunar ber ábyrgð á afgreiðslu allra pantana í vefverslun ásamt þjónustu við
viðskiptavini. Starfið felur í sér tiltekt á öllum pöntunum úr vefverslun, pökkun og merkingu sendinga,
samskipti við viðskiptavini, flutningsaðila og starfsfólk Húsasmiðjunnar um land allt. Önnur tilfallandi
verkefni, eins og aðstoð við vörumyndatökur og skráningu í vöruskrá vefverslunar og fleira.
Deildarstjóri vefverslunar er í miklum samskiptum við allar verslanir
Húsasmiðjunnar, vöruhús, markaðsdeild og vefstjóra Húsasmiðjunnar.
Hann er staðsettur í verslun Húsasmiðjunnar í Skútuvogi og starfar náið með
öflugu starfsfólki verslunarinnar. Deildarstjóri heyrir undir rekstrarstjóra
Húsasmiðjunnar og Blómavals í Skútuvogi.
Hæfniskröfur
• Skipulögð og öguð vinnubrögð
• Rík þjónustulund
• Góð almenn tölvuþekking
• Brennandi áhugi á uppbyggingu vefverslunar
• Lausnamiðuð hugsun og jákvæðni
• Geta til að vinna undir álagi
• Rík hæfni í mannlegum samskiptum
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að
sækja um. Öllum umsóknum verður svarað
og farið með þær sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið
atvinna@husa.is
Umsóknarfrestur:
16. janúar 2019
Sótt er um á:
www.husa.is/laus-storf
DEILDARSTJÓRI VEFVERSLUNAR
Byggjum á betra verði
husa.is
Ein besta vefverslun
landsins tvö ár í röð!
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R