Fréttablaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 51
Skógarhlíð 6, 105 ReykjavíkHEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
Ráðuneytisstjóri í nýtt
heilbrigðisráðuneyti
Ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Leitað er að reyndum leiðtoga
sem býr yfir framsýni og krafti og er tilbúinn að leiða mótun og uppbyggingu nýs heilbrigðis-
ráðuneytis í samvinnu við frábæran hóp reynslumikils starfsfólks.
Nýtt heilbrigðisráðuneyti tekur til starfa 1. janúar 2019. Verkefni þess eru viðamikil og
fjölbreytt og varða alla þætti heilbrigðiskerfisins og heilbrigðisþjónustu landsmanna,
lyfjamál auk verkefna á sviði lýðheilsu og forvarna. Hjá heilbrigðisráðuneytinu starfar
fjölbreyttur hópur vel menntaðra sérfræðinga á ýmsum sviðum með mikla þekkingu og
reynslu á málefnasviðum þess.
Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2019.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar má finna á starfatorgi Stjórnarráðsins,
www.starfatorg.is
Undir heilbrigðisráðuneytið heyrir fjöldi stofnana, þar á meðal Landspítalinn,
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, heilbrigðisstofnanir um land allt, Sjúkratryggingar
Íslands og Embætti landlæknis. Ráðuneytið gegnir veigamiklu hlutverki er varðar
undirbúning lagasetningar og annarra stjórnvaldsfyrirmæla og stefnumótandi áætlana
á málefnasviðum þess. Vegna þeirra verkefna er rík áhersla lögð á nána samvinnu við
Alþingi, önnur ráðuneyti, hagsmunaaðila og notendur þjónustunnar. Ráðuneytið fer
einnig með alþjóðlegt samstarf í samvinnu við utanríkisráðuneytið.
LEX
LÖGMANNSSTOFA
Borgartúni 26
105 Reykjavík
Fax 590 2606
Sími 590 2600
lex@lex.is
www.lex.is
LEX er ein stærsta lögmannsstofa landsins með um 40 lögmenn innan sinna raða
og sinnir verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins.
LEX LEITAR
AÐ LÖGMÖNNUM
LEX lögmannsstofa hefur hug á að bæta við
lögmönnum í öflugan hóp félagsins.
LEX er leiðandi lögmannsstofa á Íslandi sem sinnir
þörfum viðskiptavina sinna með heiðarleika, trúnað
og fagmennsku að leiðarljósi á öllum meginsviðum
lögfræðinnar.
Krafa er gerð um að umsækjendur hafi lokið embættis-
eða meistaraprófi í lögum og að þeir hafi gott vald á
íslenskri tungu.
Reynsla á sviði banka- og fjármagnsréttar, félaga-
réttar og persónuréttar er kostur.
Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2019
og skulu umsóknir sendar á umsokn@lex.is
ÍS
LE
N
SK
A
/
SI
A.
IS
/ L
O
G
9
05
51
1
2/
18
Verkefnisstjóri
Auglýst er til umsóknar starf verkefnisstjóra á alþjóðasviði
Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Um er
að ræða fullt starf til tveggja ára með möguleika á fram
lengingu eftir það. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf 1. apríl 2019.
Á alþjóðasviði er lögð áhersla á að kynna íslenska menn
ingu og tungu og rækta tengsl við náms og fræðimenn
á vettvangi íslenskra fræða hvarvetna í heiminum. Þar er
umsjón með kennslu í íslensku og þjónustu við háskóla
kennara í íslensku við erlenda háskóla af hálfu íslenskra
stjórnvalda.
Í starfinu felst meðal annars: að sinna daglegum þjónustu
verkefnum og samstarfi við aðrar stofnanir innanlands og
utan; að hafa umsjón með sumarnámskeiðum í íslensku;
að hafa umsjón með íslenskukennslu við erlenda háskóla;
að veita styrki til fræðimanna og erlendra nemenda; taka
þátt í miðlunarverkefnum, t.d. utanumhaldi upplýsinga um
sviðið á vef Árnastofnunar; að skipuleggja og undirbúa
flutning í nýtt húsnæði.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu hafa meistarapróf í íslensku eða
annað sambærilegt háskólapróf. Áhugi á að kenna
útlendingum íslensku nauðsynlegur og reynsla af kennslu
íslensku sem annars máls æskileg.
Aðrar hæfniskröfur:
• Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
• Framúrskarandi íslenskukunnátta (bæði í ræðu og riti)
• Góð þekking á einu öðru Norðurlandamáli og ensku er
nauðsynleg
• Kunnátta í öðrum tungumálum æskileg
• Nákvæmni, agi og frumkvæði í vinnubrögðum
• Rík skipulagshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um
námsferil sinn og störf, svo og nöfn, símanúmer og netföng
tveggja umsagnaraðila.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og Félags
háskólakennara. Umsóknafrestur er til 23. janúar 2019
og skal umsóknum skilað á rafrænu formi á netfangið
sigurborg.stefansdottir@arnastofnun.is eða til Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Árnagarði við
Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á starfatorg.is
og hjá Úlfari Bragasyni, ulfar.bragason@arnastofnun.is
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt
um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðin hefur verið tekin.
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is