Fréttablaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 31
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Í fyrra voru haldnar yfir 125 spennandi ráðstefnur og fundir í Hörpu og hefur verið mikil
fjölgun á erlendum ráðstefnu- og
fundargestum frá opnun,“ segir
Karitas og bætir því við að Harpa
hafi klárlega staðið undir vænting-
um sem alþjóðlegt ráðstefnuhús.
„Fjölbreytileiki viðburða er einnig
mikill og hefur aukist frá ári til
árs. Orðspor Hörpu er einnig afar
gott á alþjóðlegum mælikvarða
og má þar nefna sem dæmi árlega
viðburði á borð við Arctic Circle og
Women Leaders Global Forum sem
hafa skipt sköpum fyrir Hörpu til
að byggja upp það orðspor.“
Í Hörpu er fjölbreytt aðstaða
fyrir fundi, af öllum stærðum
og gerðum. Stærsta fundarher-
bergið, Ríma, rúmar allt að 120
manns í sæti, en hægt er að skipta
því í tvennt. Fundarherbergin
Vísa og Stemma, á fyrstu hæð
hússins, rúma allt að 20 manns
við stjórnarborð. Á fjórðu hæð
eru fjögur minni fundarherbergi,
Nes, Vík, Vör, og Sund, sem rúma
öll 8-10 manns þægilega í sæti.
Hvert rými er búið fyrsta flokks
tækjabúnaði og öll þjónusta er
við hendina. „Stóru fundarrými
Hörpu nýtast afar vel fyrir stórar
alþjóðlegar sem og innlendar ráð-
stefnur sem og opnu rými Hörpu
sem bjóða upp á ýmsa möguleika,“
segir Karitas og bætir við: „Alþjóð-
legt ráðstefnuhald hefur gífurlega
mikið vægi fyrir jafn litla þjóð og
okkur Íslendinga og við leggjum
mikla áherslu á erlenda markaðs-
setningu enda skilar þessi grein
mjög miklum gjaldeyristekjum inn
í þjóðarbúið.“
Hún bendir á að Harpa sé afar
samkeppnishæf sem ráðstefnuhús
í alþjóðlegum samanburði. „Sem
dæmi má nefna að við bjóðum
fjölbreytt rými og fyrsta flokks
tækjabúnað svo eitthvað sé nefnt,“
segir Karitas. „Erlend markaðssókn
Hörpu hefur verið í stöðugum
vexti en Harpa er meðlimur í Meet
In Reykjavik þar sem afar gott
kynningarstarf fer fram. Einnig
erum við ávallt að auka sýnileika
okkar á samfélagsmiðlum og svo
er auðvitað alltaf langöflugast að
fá erlenda gesti til landsins til þess
að kynna fyrir þeim hvaða aðstöðu
Hin mörgu
rými Hörpu
nýtast einnig
til fjölbreytts
viðburðahalds
enda er Harpa
eitt fallegasta
hús landsins.
Karitas Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri tónlistar- og ráðstefnusviðs Hörpu, finnur fyrir miklum áhuga á því að
halda ráðstefnur og viðburði í Hörpu sem er einstaklega vel búin til hvors tveggja. MYND/ANTON BRINK
Arctic Circle ráðstefnan er haldin í Hörpu á hverju ári. MYND/OZZO
Harpa hefur upp á að bjóða.
Ísland er spennandi áfangastaður
í augum margra og hefur þar lega
landsins á milli Evrópu og Ameríku
sem og aukning á flugsamgöngum
þar mest að segja.“
Hún segir gífurlega eftirvænt-
ingu ríkja eftir opnun Edition
hótelsins við hliðina á Hörpu árið
2020. „Það mun klárlega auka
möguleika Hörpu í alþjóðlegu
samhengi en mörg erlend samtök
hafa beðið í eftirvæntingu eftir
opnun hótelsins þar sem hótelið
gerir það enn fýsilegra fyrir þau
að koma með sína viðburði til
landsins. Hótelið gerir okkur einn-
ig kleift að sækja um annars konar
fyrsta flokks viðburði þar sem
samspil hótelsins og Hörpu skiptir
meginmáli. Lega Hörpu, mið-
svæðis í hjarta miðborgar, er ekki
síður eftirsóknarverð enda ekki
algengt að svo stór og vegleg ráð-
stefnu- og viðburðahús séu svona
miðsvæðis og mikils virði að hægt
sé að upplifa borgina í allri sinni
dýrð á sama tíma og viðkomandi
er á ráðstefnu eða viðburði.“
Karitas segir enn fremur að
mikil aukning sé á fyrirspurnum á
milli ára en alþjóðlegar ráðstefnur
eru ávallt bókaðar með margra
ára fyrirvara og því mikið um
fyrirspurnir langt fram í tímann.
„Eitthvað af fyrirspurnum berst
beint til okkar en við erum einnig
með afar náið og gott samstarf
við innlenda ráðstefnuskipuleggj-
endur sem og viðburðahaldara.“
Hún segir marga viðburði hafa
fest sig í sessi sem árlega í Hörpu
og nefnir sem dæmi Læknadaga,
UT messuna, og Reykjavíkurskák-
mótið sem og Arctic Circle og
Women Leaders Global Forum sem
áður voru nefnd.
Þá tekur Karitas fram að starfs-
fólk Hörpu sé einkar hæft þegar
kemur að ráðstefnuhaldi. „Starfs-
fólk Hörpu býr yfir afar mikilli
reynslu sem og þekkingu þar sem
mörg hafa starfað í greininni í
fjöldamörg ár,“ segir hún og bætir
við að starfsfólk Hörpu sé stolt af
því að kynna og selja Hörpu bæði
innanlands sem og erlendis og
geri sér grein fyrir því hve þýðing
Hörpu fyrir land og þjóð er mikil.
Harpa er ekki eingöngu ráð-
stefnuhús og/eða viðburðahús
fyrir stærri ráðstefnur og viðburði.
„Hér höfum við einnig upp á að
bjóða minni sali og rými sem
henta vel fyrir minni viðburði,
fundi, móttökur eða veislur,“ segir
Karitas. „Margir halda að hér sé
eingöngu hægt að halda stóra við-
burði en svo er ekki. Veisluhald í
Hörpu hefur einnig aukist jafnt og
þétt á milli ára, hvort sem um er að
ræða árshátíðir, afmæli, móttökur
af ýmsum toga eða önnur manna-
mót. Það eru afar spennandi tímar
fram undan að mati okkar, ótal
sóknarfæri og við erum bjartsýn
á að Harpa muni halda áfram að
blómstra í framtíðinni.“
Nánari upplýsingar má finna á
harpa.is.
2 KYNNINGARBLAÐ 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RRÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐIR