Fréttablaðið - 29.11.2019, Qupperneq 18
MENNING Íslensk náttúra kemur
nokkuð við sögu í Disney-teikni-
myndinni Frozen II sem sýnd er í
kvikmyndahúsum víða um heim.
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðu-
maður hjá Íslandsstofu, segir að
Disney Media sem framleiðir
teiknimyndina hafi haft samband
fyrir ári og viljað skoða samstarf
þar sem myndin væri innblásin
af Íslandi, Finnlandi og Noregi.
„Handritshöfundar höfðu farið í
reisu um þessi lönd þegar leitað
var eftir innblæstri fyrir Frozen II
fyrir nokkrum árum og heilluðust
af bakgrunnslandslaginu. Þeir
vilja þó ekki gefa upp hvaða staðir
nákvæmlega veittu þeim innblástur
en glöggir áhorfendur geta vel séð
innblástur til dæmis frá Svínafells-
jökli, Jökulsárlóni, Seljalandsfossi
og Reynisfjöru,“ segir hún.
Inga Hlín segir að ef myndin
verður jafnvinsæl og fyrri myndin
sé þetta gríðarlega mikil landkynn-
ing. „Tengingin er sterk í myndinni.
Þú sérð svarta fjöru, jökla, hreindýr,
fossa, gljúfur og íshella. Allt eru
þetta atriði sem eru mikið tengd
landinu okkar. Ég tel þetta mjög
dýrmætt fyrir okkur sem stöndum
í landkynningu og gefa okkur mörg
tækifæri til þess að ná til fjölskyldu-
fólks og gefa því hugmynd að ferð til
landsins.“
Teiknimyndin Frozen II segir frá
því þegar þau Elsa, Anna, Kristoff,
Ólafur og hreindýrið Sveinn halda
norður á bóginn í leit að uppruna
töframáttarins sem Elsa býr yfir.
Inga Hlín segir að handritshöf-
undar hafa einnig sagst hafa fengið
innblástur frá myrkrinu og hinu
dulræna á Íslandi á meðan innblást-
urinn að Önnu hafi frekar komið
frá Noregi. Þeir lýsi Íslandi á þann
veg að þeim finnist það notalegt og
ævintýralegt.
Inga Hlín segir að í september
síðastliðnum hafi framleiðendur og
einn handritshöfunda myndarinnar
komið til Íslands, ásamt fjórtán
blaðamönnum stórra fjölmiðla frá
Frakklandi, Hollandi og Belgíu, til að
kynna myndina. Íslandsstofa skipu-
lagði fjögurra daga fjölmiðlaferð
fyrir hópinn, ásamt Icelandair og
Markaðsstofu Suðurlands, þar sem
farið var á tökuslóðir, meðal annars
í dagsferð upp á Svínafellsjökul.
Þá var íslenskt landslag einnig
innblástur fyrir tónlistarmyndband
sem tekið var upp hér á landi við
titillag teiknimyndarinnar, Into the
Unknown, í frönskum búningi en
það er sungið af Charlotte Hervieux
sem ljær Elsu rödd sína í frönsku
útgáfunni. david@frettabladid.is
Tengingin er sterk í
myndinni. Þú sérð
svarta fjöru, jökla, hreindýr,
fossa, gljúfur og íshella.
Inga Hlín Pálsdóttir,
forstöðumaður hjá Íslandsstofu
Frozen II innblásin af íslenskri náttúru
Disney-teiknimyndin Frozen II sem sýnd er í kvikmyndahúsum víða um heim er innblásin af íslenskri náttúru. Glöggir áhorfendur
geta vel séð íslenskt landslag í bakgrunni. Íslandsstofa segir þetta vera verðmæta landkynningu, sérstaklega fyrir fjölskyldufólk.
Glöggir áhorfendur ættu að geta séð í myndinni innblástur til dæmis frá Svínafellsjökli, Jökulsárlóni, Seljalandsfossi og Reynisfjöru. MYND/DISNEY 2019
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
F
-1
E
0
4
2
4
5
F
-1
C
C
8
2
4
5
F
-1
B
8
C
2
4
5
F
-1
A
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K