Fréttablaðið - 29.11.2019, Síða 24

Fréttablaðið - 29.11.2019, Síða 24
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 TÖKUM GAMLA BÍLINN UPP Í NÝJAN BLACK FRIDAY TILBOÐ Á VÖLDUM SÝNNGARBÍLUM RUBICON TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL 11.590.000 KR. FULLT VERÐ 12.590.000 KR. TRAILHAWK TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL 9.990.000 KR. FULLT VERÐ 10.990.000 KR. LIMITED TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL 4.990.000 KR. FULLT VERÐ 6.170.000 KR. TRAILHAWK TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL 5.490.000 KR. FULLT VERÐ 6.642.000 KR. OVERLAND TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL 10.990.000 KR. FULLT VERÐ 11.990.000 KR. JEEP© CHEROKEE LONGITUDE OG LIMITED TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL 7.490.000 KR. OG 7.990.000 KR. FULLT VERÐ 8.852.000 KR. OG 10.220.000 KR. JEEP© WRANGLER JEEP© GRAND CHEROKEE JEEP© RENEGADE STJÓRNMÁL Mynd lýðræðis er að breytast; almenningur gerir kröfur um aukið þátttökulýðræði í málum sem varða skipulag og þjónustu. Breyting á sér stað í samskiptum milli almennings og kjörinna full- trúa á sveitarstjórnarstiginu. „Ég upplifi ákveðna hreyfingu í samfélaginu. Lýðræði er að víkka út og kröfur almennings til stjórn- valda og stjórnsýslunnar eru orðnar meiri. Ég held að þetta fylgi auknum aðgangi að upplýsingum og kröfu um aukið gagnsæi í samfélaginu. Krafan um þéttara samráð, það að borgarbúar fái að segja sína skoðun og hafa aðkomu að ákvörðunum sem varða lífsgæði þeirra, verður sífellt fyrirferðarmeiri,“ segir Ingi B. Poulsen, umboðsmaður borgarbúa, í samtali við Fréttablaðið. Foreldrar nemenda í Kelduskóla Korpu leita nú réttar síns vegna fyrir hugaðrar lokunar Kelduskóla eftir að borgarstjórn samþykkti tillögu um breytingar á skólahaldi í Grafarvogi, sem mun hafa áhrif á um 820 börn. Ingi staðfestir að hann hafi fengið nokkur erindi vegna skólans. Ingi finnur fyrir breytingu í sam- félaginu og er mál Kelduskóla ekki einstakt. Krafa borgarbúa um aukin samskipti og meira samráð við Reykjavíkurborg er orðin háværari. „Það sem maður les úr þessu til- tekna máli er að það er orðin hávær krafa um þátttökulýðræði í starf- semi hins opinbera yfirhöfuð, sér- staklega á sveitarstjórnarstiginu,“ segir Ingi. Í öðrum sambærilegum málum má einnig sjá þessa breytingu. Í kjölfar ýmissa framkvæmda og umferðarbreytinga í miðbænum hófu gagnrýnisraddir upp raust sína vegna skorts á samskiptum milli rekstraraðila og Reykjavíkurborgar. Íbúar í Breiðholti og Árbæ vilja jafnframt hafa eitthvað að segja um fyrirhugaðar breytingar á Stekkjar- bakka við Elliðaárdal. Borgarbúar eru vel upplýstir og með skoðanir á þjónustu og skipulagi borgarinnar. „Reykjavíkurborg er líka að hvetja borgarbúa til að taka meiri þátt og hafa skoðanir á þeim ákvörðunum sem eru teknar. Borg- arbúum hefur sennilega aldrei áður verið veittur jafn mikill vettvangur til að hafa skoðanir á ákvarðana- töku og geta komið á framfæri athugunum og ábendingum. En því fylgir líka aukin krafa um þátt- tökulýðræði í f leiri málaf lokkum og þannig veltist þessi lýðræðisbolti áfram.“ Spurður hvort ekki sé lengur nóg að kjósa fulltrúa til að taka upplýstar ákvarðanir fyrir hönd almennings segir hann: „Ég held að lýðræðið og hug- myndir okkar um leiðtoga og for- ystu séu að þróast. Valdið er að fær- ast til og leiðtogar eru orðnir varir við aukið vald kjósenda.“ Ingi telur að almenningur sé farinn að rýna betur í ákvarðanir stjórnvalda og sýni frekara aðhald í samhengi við aukið flæði upplýs- inga og þekkingu á réttindum. „Borgarinn hefur aldrei verið jafn upplýstur og núna, af því leiðir að hann hefur tækifæri til að fylgjast betur með því sem kjörnir fulltrúar og stjórnvöld yfirhöfuð gera,“ segir Ingi. Þróunin er í samræmi við þær breytingar sem eiga sér stað í laga- legu samhengi. Fyrr á árinu sam- þykkti Alþingi tvö lagafrumvörp til að auka tjáningarfrelsi opin- berra starfsmanna og upplýsinga- rétt almennings. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra ákvað í kjölfarið að fela Oddi Þorra Viðarssyni, lögfræðingi á skrifstofu löggjafarmála í forsætis- ráðuneytinu, að sinna starfi ráð- gjafa um upplýsingarétt almenn- ings. Hann hefur það hlutverk að stuðla að bættri upplýsingagjöf hins opinbera. Í ráðgjöf sinni er hann óháður fyrirmælum frá ráðherra og öðrum. ingunnlara@frettabladid.is Kröfur um aukið þátttökulýðræði Ingi B. segir ákveðna breytingu eiga sér stað í samskiptum almennings og stjórnvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ingi B. Poulsen, um- boðsmaður borgarbúa, segir ákveðna breytingu eiga sér stað í samskipt- um milli almennings og stjórnvalda. Foreldrar barna við Kelduskóla mótmæla fyrirhugaðri lokun, íbúar funda um deiliskipulag og rekstraraðilar gagnrýna skort á samskiptum við Reykjavíkurborg. 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R22 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 F -5 9 4 4 2 4 5 F -5 8 0 8 2 4 5 F -5 6 C C 2 4 5 F -5 5 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.