Fréttablaðið - 29.11.2019, Qupperneq 62
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Hver einasti fermetri í OKinu er úthugsaður. Þar verður hægt að læra, skapa, fikta, eiga í samtali við aðra og ein-faldlega hanga,“ segir
Guðrún Baldvinsdóttir, verkefnastjóri
OKsins, nýs upplifunarrýmis fyrir ungl-
inga í 7. til 10. bekk, en ekki aðra aldurs-
hópa. Rýmið er þar sem sýningarsalir
Gerðubergs á efri hæðinni voru áður og
verður opnað á morgun á vegum Borgar-
bókasafnsins. „Við verðum með svaka
partí milli klukkan 18 og 20. Rapparinn
Flóni verður á svæðinu og hæfileikabúnt
úr Breiðholtinu með atriði,“ segir Guðrún
og leynir ekki spenningnum.
En hvernig varð OKið til og hver var
hvatinn að því? „Upphafið að fram-
kvæmdinni má rekja til þess að við
fengum hæsta styrk úr Barnamenn-
ingarsjóði í maí – og það hefur verið ansi
mikið að gera síðan,“ segir hún glaðlega.
Tekur fram að nafna hennar, Guðrún
Lilja Gunnlaugsdóttir, sé sýningarstjóri
og hún hafi hannað rýmið ásamt þeim
Emblu Vigfúsdóttur leikjahönnuði,
Tinnu Ottesen leikmyndahönnuði og
listakonunni Shu Yi. Svo hafi krakkar í
Breiðholti komið á rýnihópafundi og allt
hafi verið borið undir þau, bæði teikn-
ingar og hugmyndir.
Fyrirkomulag OKsins er að norskri
fyrirmynd, að sögn Guðrúnar sem giskar
á að margt muni koma unglingunum á
óvart. „Verkefnið byggist á stafrænu
skáldsögunni Norður eftir danska höf-
unda sem heita Camilla Hübbe og Ras-
mus Meisler og komu til Íslands 2016 til
að skrifa bók. Þau voru frá upphafi í sam-
bandi við okkur á Borgarbókasafninu
og unnu bókina út frá íslenskri náttúru.
Sagan byggir á norrænni goðafræði en
er um loftslagsbreytingar eins og allt í
dag. Bókin er opin á netinu og svo gefur
Dimma bókaforlag hana út.“
Guðrún segir hönnuðina hafa fengið
innblástur úr sögunni Nord og láti hug-
myndir úr henni lifna við í OKinu. Þeir
sem ekki hafi lesið söguna muni þó ekki
taka eftir þeim. „Það eru meiri kveikjur
og vísbendingar en eitthvað beint úr
OKið tileinkað unglingum
OKið nefnist nýtt upplifunarrými fyrir unglinga á aldrinum 12 til 16 ára, sem verður
opnað á morgun, laugardag, í Gerðubergi. Það er hið eina sinnar tegundar hér á landi.
Guðrún Lilja, Hólmfríður Ólafsdóttir, Shu Yi, Guðrún Baldvinsdóttir og Embla Vig-
fúsdóttir hafa lagt fram krafta sína í OKið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Svona lítur OKið
út á teikningu.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Helga Jóna Guðjónsdóttir
frá Hesti í Önundarfirði,
Þúfubarði 10, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu sunnudaginn
17. nóvember. Útför Helgu fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 3. desember kl. 13.00.
Aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Jóhann Sigurðsson
flugumferðarstjóri,
Víkurströnd 8, Seltjarnarnesi,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
mánudaginn 25. nóvember.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn
3. desember kl. 13.
Ingibjörg Steinunn Sigurðardóttir
Berglind María Jóhannsdóttir Ásgeir Kröyer
Karen Bjarney Jóhannsdóttir Ingvi Steinn Ólafsson
Steinunn Kristín Jóhannsdóttir Ásgeir Jónasson
Sigurður Jóhann Jóhannsson Hannah Pearl Conroy
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Gyða Stefánsdóttir
sérkennari,
Þinghólsbraut 53, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
sunnudaginn 24. nóvember sl.
Útför verður auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og einlægur vinur,
Árni Þ. Þorgrímsson
fv. flugumferðarstjóri,
sem lést þann 18. nóvember sl., verður
jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
mánudaginn 2. desember klukkan 13.
Helga Árnadóttir Árni Árnason
Þorgrímur St. Árnason Ásdís María Óskarsdóttir
Eiríka G. Árnadóttir Þórður M. Kjartansson
Ragnheiður Elín Árnadóttir Guðjón Ingi Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Emilía Ósk Guðjónsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elsa Aðalsteinsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir
18. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir sendum við
starfsfólkinu á Eir fyrir umönnun og umhyggju.
Gylfi Skúlason Aðalbjörg Baldursdóttir
Anna Sigríður Skúladóttir Guðjón Ó. Magnússon
Svanlaug Inga Skúladóttir Guðni Arinbjarnar
Örn Viðar Skúlason Ásta Margrét Birgisdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,
Guðný Jóna Þorbjörnsdóttir
frá Stöð, Stöðvarfirði,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn
26. nóvember. Útförin auglýst síðar.
Börn, tengdabörn og afkomendur.
Okkar ástkæra
Karólína Eiríksdóttir
Eiðistorgi 13, Seltjarnarnesi,
lést á líknardeild Landspítalans
þriðjudaginn 12. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu. Þakkir sendum við
starfsfólki líknardeildar, HERU og heimahjúkrunar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rafn Vídalín Friðriksson og Sóley Ösp Vilhjálmsdóttir
Okkar ástkæri
Guðmundur Steinn
Magnússon
lést fimmtudaginn 14. nóvember á
gjörgæsludeild LSH. Hjartans þakkir
fyrir umönnunina á deildinni. Hjartans
þakkir fyrir allar kveðjurnar og stuðninginn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Magnús G. Gunnarsson Steinunn G. Ástráðsdóttir
Jóhann Þór Þórdís Grímheiður
makar og börn.
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
Haukur Pálmason
fyrrverandi aðstoðarforstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, áður
Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
lést 24. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju
miðvikudaginn 4. desember kl. 11.
Anna Soffía Hauksdóttir
Jóhannes Hauksson Inga Björg Hjaltadóttir
Helga Hauksdóttir Hafþór Þorleifsson
Haukur Óskar Auður Tinna
Margrét Aðalheiður Friðgeir Ingi
Hringur Ásgeir Ívar
Hildur Ylfa
Haukur Oddur
Urður
sögunni,“ útskýrir hún og segir mikla til-
raunamennsku og tækni einkenna stað-
inn. Til dæmis sé gagnvirk innsetning
eftir Shu Yi. „Hún Shu Yi er búin að búa
til ask Yggdrasils, bæði úr birki úr Heið-
mörk og lifandi plöntum, svo varpar hún
gögnum frá Veðurstofunni um breyting-
ar á sjávarmáli og útblæstri koltvíoxíðs á
Íslandi frá 1950 til dagsins í dag og birtir
líka spár til 2050. Krakkar þurfa að vinna
saman til að fá allar upplýsingar,“ lýsir
Guðrún og tekur líka fram að í salnum sé
einnig aðstaða fyrir sviðslistafólk.
Hún segir ákveðna áskorun fyrir
starfsfólk Gerðubergs að laða til sín
unglingana. „Þeir eru oft sá hópur sem
við missum úr bókasafninu. En OKið
verður tileinkað ungu fólki um ókomna
tíð og þar verður unnið með ýmis þemu,
ár í senn.“ gun@frettabladid.is
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R48 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
F
-7
1
F
4
2
4
5
F
-7
0
B
8
2
4
5
F
-6
F
7
C
2
4
5
F
-6
E
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K