Fréttablaðið - 29.11.2019, Síða 88
Netflix fann konung-lega gullnámu í The Crown. Þriðja þáttaröðin er brak-andi fersk milli tannanna á fólki og
vinsældirnar eru slíkar að sú fjórða
er handan við hallarhornið og þá
munu heldur betur æsast krúnu-
leikar þegar Díana prinsessa, Sarah
Ferguson og Margaret Thatcher
storma á sviðið og atburðir færast
stöðugt nær okkur í tíma.
Langlífi þáttanna er í raun, eins
og hjá Elísabetu sjálfri, skrifað inn
í genamengi þeirra þar sem perver-
sjónir, klaufagangur af komenda
Elísabetar, með reglulegu tilfinn-
ingalegu uppnámi í höllinni, leggja
grunninn að framhaldsþáttum
hraðar en hægt er að kvikmynda þá.
Kannski eigum við eftir að fá að
sjá Obama knúsa litlu ömmustrák-
ana hennar Díönu í náinni Netflix-
framtíð? Munu foreldrar Meghan
tromma upp við hirðina? Eigum
við kannski eftir að slást í för með
Andrési prins í heimsókn til höfuð-
perra ríka og fræga fólksins, Jeffrey
Epstein? Möguleikarnir eru enda-
lausir.
toti@frettabladid.is
Dramatíseraðir
krúnuleikar
Windsoranna
Klámvísukvöld í Hvíta húsinu
Fólk þarf ekki að hafa neina sér-
staka yfirburðaþekkingu á bresku
konungsfjölskyldunni til þess
að átta sig á að Windsorarnir eru
ekki eins áhugaverðir og þeir eru
í The Crown. Líklega er Filippus
drottningarmaður kaldlyndur,
svipljótari en Voldemort og
fádæma orðheppinn þegar hann
er í skepnuskapi, sá eini þeirra
sem gæti spjarað sig hjálparlítið
sem persóna í skáldskap.
Sukklíf og helsjúkt hjónaband
Margrétar prinsessu hefur einnig
með smá kryddi reglulega kippt
þáttunum upp um einn gír eða
svo. Og aldrei hefur hún verið
hressari en í þriðju seríu þar sem
Helena Bonham-Carter glansar í
hlutverki hennar.
Hún og sá endalaust vanmetni
leikari Clancy Brown, sem Lyndon
B. Johnson, forseti Bandaríkjanna,
eru burðarbitar eins besta og
umtalaðasta þáttar nýju seríunnar
þegar Margrét mætir til kvöld-
verðar í Hvíta húsinu.
Þrátt fyrir ströng fyrirmæli frá
Betu, stóru systur, um að hún eigi
að bera sig konunglega sleppir
hún fram af sér beislinu, fer með
klámvísur, gerir lítið úr John Kenn-
edy og heillar Johnson upp úr
skónum, opnar lánalínu og bjargar
efnahag Bretlands.
Frábær þáttur og skemmtileg
saga en því miður algert kjaft-
æði byggt á staðreyndum. Peter
Morgan, þáttarstjórnandi The
Crown, hefur viðurkennt að hafa
skellt skáldafáknum á skeið í
þessum þætti og búið til hliðar-
veruleika þar sem Margrét ryður
út úr sér klámvísum, smellir kossi
á forsetann og snýr heim sem
hetja.
Hún mætti vissulega til kvöld-
verðar í Hvíta húsinu, ásamt eigin-
manninum Snowdon lávarði og í
dagbók Hvíta hússins var fært til
bókar að forsetinn hefði dansað
umtalsvert þetta kvöld, við
flestar konur á staðnum og hefði
gengið heldur seint til náða.
Óskir bresku ríkisstjórnarinnar
um lánafyrirgreiðslu voru ekki
á dagskrá prinsessunnar. Ekkert
frekar en sá gagnkvæmi skilningur
sem á að hafa myndast milli vara-
forseta Kennedys og varadrottn-
ingar Elísabetar. En hafa skal það
sem betur virkar.
Konungsfjölskyldan stæði tæpast undir vinsældum
The Crown ef höfundarnir poppuðu persónur og at-
burði ekki ítrekað upp þannig að þættirnir ákaflega
sannfærandi sögufölsun þar sem öll atburðarásin hvílir
á raunverulegum atburðum og ekki er allt sem sýnist.
Ekki alveg Júlía og Rómeó
Eins og frægt er orðið hafði
Camilla Shand, síðar Parker-
Bowles, hernumið hjarta Prinsins af Wales löngu áður en
hann kvæntist lafði Díönu Spencer þrátt fyrir yfirlýsingar
um að hann væri ekki alveg viss um merkinu þess að vera
ástfanginn.
Þessi frumástarsaga prinsins er ýkt hressilega í The Crown þar sem Karl og Camilla verða
ígildi Rómeó og Júlíu sem Mountbatten lávarður, frændi hans, og amma hans, Elísabet
drottningarmóðir, gengu úr skugga um að fengju ekki að njótast og fleyttu Camillu í hjóna-
band með sperrileggnum Parker-Bowles.
Þetta gengur ekki alveg upp þar sem Mountbatten og drottningarmóðirin voru svarnir
óvinir sem hefðu seint gengið í slíkt bandalag. Ást Karls á Camillu eins og hún birtist í þátt-
unum kviknaði áður en kynni þeirra hófust síðla árs 1972.
Prins pervertanna
Andrés prins hefur lagt sitt þunga
lóð á vogarskálar gremju móður
sinnar og hefur heldur bætt í ef
eitthvað er í seinni tíð. Eins og fífl
hefur hann með perversjónum
og hroka sennilega verið útlægur
ger úr höllinni. Hann fitjaði upp
á sitt konunglega trýni í fyrra
þegar hann tjáði sagnfræðilegum
ráðgjafa þáttanna að hann myndi
aldrei horfa á The Crown. Senni-
lega eins gott hans vegna en við
erum alveg til í að fá að sjá meira
af skandalasögunni endalausu
sem hann hefur skrifað sjálfum
sér á lífsleiðinni.
Þögult pönk
Með örfáum undantekningum
skautar The Crown alveg fram hjá
tónlistarmenningarsögulegum
stórbyltingum í Bretlandi sem
endurómuðu um gervalla heims-
byggðina.
David Bowie fékk þó sitt augna-
blik undir lok þriðju seríu þegar
Anna prinsessa brunar á kagg-
anum sínum til Buckingham-hallar
með Starman í botni.
Virðingarvert en hvernig
er hægt að sniðganga Bítl-
ana, líta fram hjá Stones
og láta eins og pönkið og
Sex Pistols hafi ekki snúið
öllu á hvolf með því að
leika undir silfurafmæli
drottningarinnar með því
að garga God Save The
Queen með eftirminni-
legum tilþrifum?
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R74 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
F
-4
F
6
4
2
4
5
F
-4
E
2
8
2
4
5
F
-4
C
E
C
2
4
5
F
-4
B
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K