Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 90
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
FÓLK GETUR FARIÐ
UPP Á SVIÐ OG TEKIÐ
EITT LAG, SEM ER ALGENGT HJÁ
FULLUM RÖPPURUM NIÐRI Í BÆ.
ÞETTA VERÐUR EINS
OG AÐ KOMA INN Í
HAUSINN Á MÉR. ALLT MJÖG
ÝKT, GULL OG VESEN.Fyrst fékk ég hugmynd að viðlagi, jólalagi. Ég fór beint upp í stúdíó þar sem ég átti pant-aðan tíma með Þormóði Eiríkssyni. Lagið er sem
sagt framleitt af honum og Magn-
úsi Jóhanni Ragnarssyni. Ég sagði
við hann að við værum að fara að
gera jólalag. Þetta var of gott viðlag
til að sleppa því. Þegar við vorum
búnir að semja viðlagið og fyrsta
erindið fórum við spjalla saman. Ég
er náttúrlega alveg rosalega mikill
aðdáandi Bó, ég fékk þannig tón-
listarlegt uppeldi,“ segir rapparinn
geðþekki Herra Hnetusmjör.
Mikill aðdáandi
Hann segist hafa verið vinur hans á
Facebook og ákvað að taka af skarið
og senda honum lagið.
„Honum leist vel á þetta og var
mjög til í að vera með í laginu. Við
drifum þetta í gang. Svo hentar
þetta ótrúlega vel líka út af
því að ég er gestur á jóla-
tónleikunum hans. Ég er
alveg ógeðslega mikill
aðdáandi hans,“ segir
hann.
Áður en hugmyndin
að laginu spratt fram
var Herra Hnetusmjör
fenginn til að taka þátt í
jólatónleikum Björgvins
Halldórssonar.
„Ég veit ekki alveg af
hverju hann fékk mig. Við
höfðum einu sinni hist
áður, það var baksviðs
á einhverri árshátíð.
Ha nn þek k ir a fa
minn og pabba minn.
Þannig að hann vissi
aðeins hver ég er. Ég
held að hann hafi
ekki vitað hve
mik ill aðdá-
andi ég er, ég
hef sagt í við-
tölum núna í
eitt og hálft
á r að ég
sé búinn
a ð g e r a
lag með
öllum sem
mig langar
að gera lag
með, nema
B j ö r g v i n i
H a l l d ó r s -
syni. Ég er
Von á barni og
skemmtistað
Herra Hnetusmjör gefur út lagið Þegar þú
blikkar, í dag, en það er gert með engum
öðrum en Björgvini Halldórssyni. Hann á
von á barni í febrúar og er andlit skemmti-
staðar sem verður opnaður á næstunni.
búinn að gera lag með Hugin, Erpi
og Frikka Dór, núna Bó og núna
get ég lagt mækinn á hilluna,“ segir
Herra Hnetusmjör hlæjandi.
Barn og skemmtistaður
Í febrúar á Herra Hnetusmjör von á
sínu fyrsta barni, og því er hann á
fullu í stúdíóinu til að eiga inni efni
til að gefa út, svo kærastan og barn-
ið geti átt hug hans allan í febrúar.
„Ég er að vinna á fullu núna svo
ég geti verið algjörlega heima með
barninu, svo ég geti dælt út tónlist
sem er þá búið að gera.“
Það er mikið í gangi hjá Herra
Hnetusmjöri, það er ekki bara barn
á leiðinni heldur líka skemmti-
staður.
„Það er ekki búið að opna, það
myndi ekki fara fram hjá neinum.
Staðurinn heitir 203 eftir póst-
númerinu á Vatnsenda.“
En hverjir eru með honum í þess-
um nýja skemmtistað?
„Það eru þöglir fjárfestar. Þetta
er á tveimur hæðum, fyrir ofan
Kebab-húsið. Ég mun vera dug-
legur að mæta þegar færi gefst en
staðurinn er algjörlega eftir því sem
ég sækist sjálfur í. Þetta verður eins
og að koma inn í hausinn á mér. Allt
mjög ýkt, gull og vesen,“ segir Árni.
Leikherbergi á 203?
Mætir hann þá með konuna og
barnið í febrúar?
„Jú, það verður leikherbergi,“
segir hann og hlær.
Staðurinn verður opnaður á
næstu vikum en Herra Hnetusmjör
segir mikla áherslu lagða á að það sé
gaman að koma fram þar.
„Það er gott hljóðkerfi, ekki bara
fyrir þá sem eru að dansa heldur
líka fyrir þá sem eru að koma fram.
Það eru mónitorar á sviðinu sem
er ekki algengt. Ég vildi setja þetta
þannig upp að það væri mjög auð-
velt fyrir fólk að koma fram algjör-
lega fyrirvaralaust. Fólk getur farið
upp á svið og tekið eitt lag, sem er
algengt hjá fullum röppurum niðri
í bæ,“ segir hann og hlær.
Lagið Þegar þú blikk-
ar kemur út í dag og
hægt er að nálgast
það á öllum helstu
streymisveitum.
steingerdur@
frettabladid.is
Herra
Hnetusmjör
stendur á marg-
földum tímamótum.
Hann á von á barni og
skemmtistað í fangið
og hefur loksins gert
lag með sjálfum
Bó.
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R76 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
JÓLA
FJÖR
1. desember
Kl. 17.00
Silfurberg
stjórnandi og útsetjari
Haukur Gröndal
gestasöngvari
Ragnheiður Gröndal
með
Bergrúnu Írisi
Frábær
jólaskemmtun
fyrir alla fjölskylduna!
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
F
-4
A
7
4
2
4
5
F
-4
9
3
8
2
4
5
F
-4
7
F
C
2
4
5
F
-4
6
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K