Hlynur - 15.01.1974, Blaðsíða 7

Hlynur - 15.01.1974, Blaðsíða 7
síðustu 20 ára hefur dregið 11 miljónir erlendra verkamanna með fjölskyldum inn í helztu iðnaðarlönd álfunnar. Þar safnast þeir saman í ömurleg- um fátækrahverfum, sem m. a. hafa þegar skapað alvarleg kyn- þáttavandamál. Þá eru hefð- bundnir iðnaðarmenn að hverfa úr sögunni og verða meðlimir miðstéttanna, og í háskólunum er allt að springa utan af fjölda- aðstreymi stúdenta. Við olíuskortinn undanfarið hefur líka ýmislegt fróðlegt komið á dagana. Þar sem sunnudagaakstur hefur verið bannaður einkabílum, en leigu- bílar eru enn leyfðir, ber öku- mönnum þeirra saman um, að viðskiptin hafi minnkað, en ekki aukizt. Þess í stað úir og grúir af fótgangandi vegfarendum, og t. d. í Þýzkalandi nota börnin tækifærið til að gera auð strætin að leikvöllum, meðan feður þeirra endurvekja sem óðast hinn gamla góða sið að fara í sunnudagagöngur. Jafn- vel ítalir, sem ekki eru allir lög- hlýðnir um of, virðast i þetta skipti hlýða og njóta dýrðar Rómar og Mílanó án hjálpar Fíatanna sinna. Nýjabrumið af þessu ástandi gæti þó verið horfið áður en veturinn er liðinn, en samt er ekki ástæða til að örvænta og telja 1973 hafa verið glæsilegt lokaár velmegunartimabils. Svo svart er ástandið ekki orðið, þó að á ýmsum sviðum horfi nú þunglegar en fyrr. Þannig hef- ur orkuskorturinn haft þær af- leiðingar, að nú er talið, að hinn HLYNUR 7

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.