Hlynur - 15.01.1974, Side 13

Hlynur - 15.01.1974, Side 13
Karvcl Ögmundsson stjórnarmaður Samvinnutrygginga, Andvöku og Endurtrygg- ingajélags Samvinnutrygginga varð sjötugur hinn 30. september. Hann hefur átt sæti í stjórn tryggingafélaganna frá upphafi, og er annar tveggja, sem það hafa gert, en hinn er Jakob Frímannsson fyrrv. kfstj. á Akureyri. I tilefni afmælisins var honum afhent málverk að gjöf frá tryggingafélögunum, og er myndin tekin, þegar Erlendur Einarsson stjómarformaður þeirra (t. v.) afhenti honum það. Úr ýmsum áttum —----------------* ASalfundur Starfsmannafélags Sambandsins í Reykjavík Starfsmannafélag Sambandsins í ^eykjavík hélt aðalfund sinn í Hamragörðum 7. jan. s. 1. í skýrslu fráfarandi formanns, Reynis Ingi- bjartssonar, kom fram, að starf félagsins var mjög blómlegt s. 1. starfsár, m. a. hélt það barna- skemmtun, árshátíð, vorgleði og vetrarfagnað, og auk þess var far- ih árleg landgræðsluferð vestur á Mýrar. Meginviðfangsefni félagsins á árinu var þó bygging tíu orlofs- húsa þess við Hreðavatn, og er hún nú það langt á veg komin, að þau verða tekin í notkun næsta vor. Einnig gekkst félagið fyrir tveim- nr leikhúsferðum á árinu, stóð fyr- ir ráðstefnu um fræðslu- og skipu- lagsmál Sambandsins og starfs- manna þess og auk þess eru barna- heimilamál mjög á dagskrá hjá félaginu. Var kosinn á fundinum fimm manna starfshópur, sem vinna skal að því að koma á fót barnaheimili fyrir samvinnustarfs- menn í Reykjavík. Þá voru auk þess gerðar talsverðar breytingar á lög- um félagsins á fundinum og m. a. ákveðið að nafn þess verði hér eftir skammstafað SPS í stað SP/SÍS. í stjórn félagsins næsta starfsár voru kjörin þau Sigurður Jónsson, Skipulagsdeild, formaður, Erna Egilsdóttir, Fræðsludeild, Jónas Jónsson, Sjávarafurðadeild, Rósa Krist j ánsdóttir, Samvinnubankan- um, og Sigfús Gunnarsson, Osta- og smjörsölunni sf. í varastjórn voru kosin Ágúst Már Grétarsson, Dráttarvélum hf., og Guðrún Hall- grímsdóttir, Afurðasölu. Endurskoð- endur eru Geir Geirsson, Endur- skoðun, og Jón Skúlason, Endur- skoðun, og til vara Óskar Jónatans- son, Bókhaldi. í orlofshúsanefnd voru kosnir Geir Magnússon, Fjár- máladeild, Guðmundur R. Óskars- son, Endurskoðun, Júlíus Kr. Valdimarsson, Vinnumálasambandi, Reynir Ingibjartsson LÍS, og Sig- urður Jónsson, Skipulagsdeild. í’ull- trúi í stjórn Lífeyrissjóðs Sam- bandsins var kosinn Geir Magnús- son, Fjármáladeild. LÍS í stað SFS Sú breyting verður frá og með þessu tölublaði, að Landssamband ísl. samvinnustarfsmanna tekur við aðild Starfsmannafélags Sambands- ins í Reykjavík að útgáfu HLYNS. Auk þess eru útgefendur blaðsins Sambands ísl. samvinnufélaga og Félag kaupfélagsstjóra. HLYNUR 13

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.