Hlynur - 15.12.1984, Síða 4

Hlynur - 15.12.1984, Síða 4
 Færandi varninginn heim Nú eru jólin rétt ókomin. Satt að segja er eitt aðaleinkenni þeirra að allar búðir fyllast af vörum. Nú er að vísu af sú tíð að eplalyktin sé helsti boðberi jólanna og vera má, að úrvalið í verslunum sé ekki öllu meira í desember en endranær. En samt kaupir fólkið mest þá. Menn leggja hugann í bleyti til að finna út bestu jólagjöfina og börnin horfa stórum augum á allan fyrirganginn og spenningurinn verður óbærilegur. Bogi í símanum. 4 En hvernig komaallarþessarvörur og hver eru handtökin við þær áður en þær koma í búðirnar? Mest kemur sjóleiðis og áhafnir fragt- skipanna sjá um þann þáttinn. Eftir að varan kemur frá borði eru það hafnarverkamennirnir sem fyrst annast hana og koma í hendur þeirra sem flytja vöruna áfram til okkar, neytendanna. I vor bættist nýtt skip í flotann þegar Sambandið keypti nýjasta Dísarfellið. Það hefur heimahöfn í Þorlákshöfn en eins og kunnugt er, þá eru Sambandsskipin skráð víða um land. Með því finna menn e. t. v. betur að samvinnuhreyfingin stendur allstaðar föstum fótum. Þegar Dísarfellið var í höfn nú fyrir skömmu fannst okkur tilvalið að skreppa niður á Holtabakka, líta skipið augum og vita um leið hvað fram fer þar sem Sambands- skipin leggja að landi. Skipið var á sínum stað. Blaða- maður dró djúpt andann og arkaði upp landganginn og kom um borð allnokkrar mannhæðir frá hafnar- bakkanum. Síðan var enn langur gangur upp í brúna en svo sem við mátti búast fundum við þar skip- stjórann Jörund Kristinsson sem tók okkur mjög Ijúfmannlega. Jörundur er vanur á sjó, fór fyrst á togara árið 1940, þá barnungur en svo varð hann messi á Esjunni 1943. NokkurárvarhannáSúðinni sem allir miðaldra og eldri kannast við. Til skipadeildar Sambandsins kom Jörundur 1950 og var m. a. skipstjóri á báðum fyrri Dísarfellun- um, einnig á Arnarfellinu og HLYNUR

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.