Hlynur - 15.12.1984, Síða 29

Hlynur - 15.12.1984, Síða 29
og hellið því útí sósunaöllu saman, aftur á móti ef þið notið dósasvepp- ina, þá notið soðið útí. London-lambið er soðið eins og hangikjötið nema það er nóg að sjóða það í klukkutíma í potti á eldavél, svo er náttúrulega hægt að sjóða það í ofnpotti í ofninum. Þetta léttreykta kjöt bæði svín og lamb er nauðsynlegt að gljá í ofni með púðursykri. Það er mjög gott að hræra púðursykrinum sam- an við tómatsósu og smávegis cocnag og setja vel yfir kjötið á ofngrind eftir að búið er að sjóða það. Æskilegur hiti á ofninum er 200 gráður yfirhiti í 15 mínútur, það ætti að nægja til að gljá kjötið vel. Nautalundir er annað hvort að taka í pönnusteikur eða heilsteikja í ofni, það verður hver að gera með sínu höðfi. Eftirréttir eru margs konar, en við skulum taka is fyrir og góðar sósur með honum. Við notum fyrst og fremst venjulegan vaniluís og vaniluskafís. Við getum haft hvort sem er ísinn í sneiðum og líka kúlaðan. Hér eru nokkrar sósur sem eru góðar með og ávextina veljið þið bara eftir smekk. Súkkulaðisósa: Þið bræðið suðusúkkulaði í skál í potti með sjóðandi vatni. Þegar súkkulaðið er bráðið, látið þá dask af rjóma útí og hrærið samanvið. Chanbilly cream: Þeyttur rjómi bragðbættur með vanilludufti. Chanbilly cream með ávöxtum - maukið ávextina saman við kremið t. d. jarðarber, ferskjur eða ananas. Jæja, ég læt þetta nægja að sinni og ég óska ykkur gleðilegra jóla og gleðilegs árs, þakka liðið. - Bless Haukur. Þríhjólað í Þóristungum Formaður Hússtjórnar Hamragarða er Grétar Hansson. Hann vinnur hjá Samvinnutryggingum og er hinn mesti þúsundþjalasmiður og leggur gjörva hönd á margt. í haust bauð hann hússtjórn og mökum hennar í fjallakofa sinn. Sá er í Þóristungum, innan við Sigöldu og á húsinu stendur Laufásvegur 15. Það stóð nefnilega þar á sínum tíma og hýsti m. a. níu manna fjölskyldu. í ferðina var farið á rútu Grétars sem er innréttuð mjög haganiega með borðum, sætum sem gæla við endann (ég vil ekki segja að hann sé neitt óæðri) og eldhúsi. Með í för voru líka tvö þríhjól til torfæruaksturs. Grétar kunni öll tök á þeim og Sverrir frá Olíufélaginu var fljótur að læra enda gamall ökumaður. Aðrir gerðu sitt besta og mátti segja að menn gengju þarna í endurnýjun lífdaga og mátti ekki á milli sjá hver væri yngstur í anda. Á myndinni eru þeir Grétar Hansson og Sverrir Tryggvason að leggja upp í eina ferðina. í baksýn er fjallakofinn og rútan góða. HLYM.UR 29

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.