Hlynur - 15.12.1984, Side 41

Hlynur - 15.12.1984, Side 41
íþróttaklúbbnum sáu um barna- gæsluna, og eru öllum sem þátt tóku f henni færðar innilegar þakkir fyrir frábært starf. Jólaballið fyrir börnin var á sínum stað á milli jóla og nýárs. Félagsborg fylltist af börnum og fullorðnum í hátíða- skapi sem dönsuðu kringum jóla- tréð og fylgdust með jólasveininum og Grýlu gömlu sprella svolítið. Jólasveinarnir stóðu við útidyrnar þegar allir fóru og færðu krökkun- um gott í poka. Dansinn dunaði í Félagsborg á nýársnótt við undirleik Pálma Stef- ánssonar og co. Skemmti fólk sér hið besta og að sjálfsögðu voru allir í nýársskapi. Bridgenámskeið var haldið í janúar. Þar kenndi hinn kunni bridgekennari Magnús Aðalbjörns- son leyndardóma spilsins. Nú er eins gott fyrir aðra spilara að fara að passa sig, því eftir þetta nám- skeið eigum við ýmsa snjalla spila- menn sem eru til í allt við spilaborð- ið. Spiluð var félagsvist í janúar. Þá var mikið lamið í borðin og gosar, kóngur og drottningar féllu um- vörpum. Er búið var að spila var stiginn dans og afhent glæsileg verðlaun til sigurvegara í vistinni. Árshátíðirnar voru haldnar í fe- brúar og sóttu þær á sjötta hundrað manns. Mikil aðsókn hefur verið að árshátíðum undanfarin ár og fer vaxandi. Hefur legið við að þær sprengdu húsnæðið utan af sér. Samvinnuferðir kynntu sumar- ferðir sínar í mars, skemmtiatriði voru og ball á eftir. Um mánaðarmótin mars-apríl var sýndur kabarett sem leikklúbb- urinn og starfsmannakórinn stóðu að. Hann var sýndur fyrir troðfullu húsi og þótti takast mjög vel. Eftir sýningu var svo dansað af miklu fjöri. Þann 26. maí var kabarettinn síðan endurtekinn og kom hann í staðinn fyrir sumarfagnaðinn. Var hann með aðeins breyttu efni, og aftur var fullt hús. Þeim sem tóku þátt í að gera þessar sýningar að veruleika eru færðar bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Um mánaðarmótin apríl-maí fór rúmlega hundrað manna hópur suðurtil Reykjavíkur í heimsókn til starfsmannafélags Álafoss. Heim- sókn af þessu tagi er fastur þáttur í samskiptum félaganna og kom starfsmannafélag Alafoss í heim- sókn til S.V.S. 1983. Ásdís Árna- dóttir hjá Samvinnuferðum/Land- sýn var okkar milligöngumaður í samningum við Flugleiðir og Hótel Loftleiðir til að ná sem hagstæð- ustu samningum um verð á flugi og gistingu. Við færum henni bestu þakkir fyrir góðan árangur og ánægjulegt samstarf. Ferðin tókst í alla staði mjög vel. Keppt var í fótbolta, handbolta og skák. Starfsmannafélag Álafoss bauð til matar og skemmtikvölds á Hótel Borg. Boðið var upp á skoð- .unarferð um Reykjavík og ferð um Reykjaneshringinn. Álafossverk- smiðjan var skoðuð. Tekið var á móti hópnum með því að bjóða upp á kaffi og brauð. Er hópurinn yfirgaf Hótel Loft- leiðir vakti starfsfólk þess máls á því við fararstjóra að hópurinn hefði vakið eftirtekt fyrir einkar prúðmannlega framkomu. S.V.S. færir starfsmannafélagi Álafoss innilegar þakkir fyrir móttökurnar svo og öllum sem tóku þátt í ferðinni. Þann 6. júlí kom hópur norður í heimsókn frá starfsmannafélagi Miklagarðs og dvaldi hér um helgi. S.V.S. sá um móttöku fyrir hópinn og bauð öllum að gista í Félags- borg. Haldin var skemmtun í Fé- lagsborg fyrir gestina á laugardags- kvöldið 6. júlí. Hópurinn var mjög ánægður með bæði ferð og mót- tökur. íþróttaklúbburinn hefur starfað af miklum krafti. Knattspyrnumenn hafa tekið þátt í ýmsum mótum og oftast sigrað. Þó brotlenti liðið all illilega í LÍS mótinu sem haldið var hér á Akureyri með þátttöku liða frá starfsmannafélögum víðsvegar að af landinu. í þessu móti missti liðið af bikarnum og sömu helgi tapaðist annar bikar í leik milli S.V.S. og starfsmannafélags Sambandsins í Reykjavík. Knattspyrnumenn eru staðráðnir í því að endurheimta bikara þessa á næsta ári. S.V.S. þakkar öllum íþróttaiðkendum í klúbbnum fyrir það sem þeir hafa lagt á sig, bæði [ æfingum og kappleikjum. Stjórn S.V.S. er þannig skipuð: Formaður: Júlíus Thorarensen, varaformaður: Helga Hilmarsdóttir, gjaldkeri: Bjarni Jónsson, ritari: Sigurlaug Björnsdóttir, meðstjórn- endur: Bára Björnsdóttir, Alda Friðriksdóttir og Jóhann Tr. Sig- urðsson. Ég held að ekki hafi gleymst að nefna neitt af því sem búið að að starfa í S.V.S. á síðasta starfsári og læt ég þessu lokið í bili en læt heyra frá mér fljótlega aftur. Jóhann Tr. Sigurðsson „Misheppnaði kvartettinn" var stofnaður fyrir Kabarettsýningarnar. Hann skipuðu f.v.: Þormóður Einarsson, Stefán Guðmundsson, Eggert Jónsson og Valdimar Júlíusson. HLYMUR 4

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.