Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 6

Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 6
Frá ritstjóra Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur farið geyst í ræðu og riti undanfarið til varnar ákveðinni valdaklíku í þjóðfélaginu og hafa skrif hans helst minnt á ofsóknir mccarthyismans í Bandaríkjunum á sjötta áratugnum. McCarthy ofsótti pólitíska andstæðinga sína með því að bera fram stórfelldar ásakanir á hendur þeim og bar þá ýmsum sökum sem hann gat ekki rökstutt fremur en Hannes Hólmsteinn nú. En það er alkunna að þegar rökin þrjóta tekur skítkastið við. Enda hefur lengi vafist fyrir mér hvort skrif þessa manns, sem skákar í skjóli akademíunnar, væru svaraverð. Rétt eins og hægrimaðurinn Joe McCarthy ofsækir Hannes menn með því að kalla þá kommúnista, meira að segja suma sem standa fastari fótum í einkaframtakinu en hann gæti dreymt um í sínum villtustu draumum. Raunar er erfitt að ímynda sér um hvað draumar þessa manns snúast því hann hefur umhverfst í skoðunum sínum frá því að hann þóttist helsti talsmaður frjálshyggju í anda hagfræðingsins Friedrich August von Hayeks sem hlaut nóbelsverðlaun 1974. Þekktasta verk Hayeks er bókin Leiðin til ánauðar, en þar varar hann við því að miðstýring hvort sem er til hægri eða vinstri hljóti alltaf að leiða til alræðis á vettvangi stjómmálanna. En nú bregður svo við að Hannes Hólmsteinn er orðinn fulltrúi þessarar alræðis- áráttu sem allir frelsiselskandi menn óttast. Þessi maður sem á sínum tíma vakti athygli fyrir skrif sín um frjálshyggjuna hefur nú hlotið þau örlög að vera ekki eingöngu málpípa spillingar- innar heldur lifandi tákn hennar. Hannes lætur sér ekki nægja að ofsækja menn í skrifum heldur vakir hann yfir þeim með ísköldu auga Stóra bróður og veitist að þeim vogi þeir sér að andmæla opinberu athæfi sem er þó liður í lýðræðinu. Hann bregst við af miklum ofsa ef fólk vogar sér að impra á því hve peningum almennings sé illa varið af pólitíkusum enda nýlega búinn að þiggja nokkrar milljónir úr almannasjóðum samkvæmt fréttum og hver veit hvort allt er þar með upptalið. Hann er kominn langan veg frá hugmyndum Hayeks og er með atferli sínu eins og hver önnur afæta, byrði á skattborgurum sem margir eiga um sárt að binda í kreppunni. Sú spilling sem Hannes Hólmsteinn ver með kjafti og klóm er að ná slíku hámarki að hætt er við að hún verði þeim sem fyrir henni standa að falli. Loksins. Hingað til hafa valdamenn haldið að þeir kæmust upp með alls konar svínarí án þess að almenningur léti þá gjalda fyrir. En umræðan undanfarið, bæði hér og víða annars staðar, bendir til þess að mælirinn sé fullur. Þeir sem sækjast eftir að vera í forsvari verða að ganga á undan með góðu fordæmi. Það dugir ekki að kalla til einhvern í grímubúningi galdranornar og ógna þeim sem andmæla. McCarthy og félagar hans voru afhjúpaðir og svo fer einnig hér fyrir þeim sem ofsækja þá sem tala í nafni lýðræðis og frelsis. ■ Irjc^ÁCi p€>/iýclwÁcttl\ SIGRÍÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR heimspekingur skrifar frá Berlín um hrottaverkin í Bosníu. Þar er ekki aðeins konum nauðgað og þær neyddar til að fæða börnin. Karlar eru einnig geldir og limlestir og bendir höfundur greinarinnar á hvemig hryðjuverkin gegn múhameðs- trúarfólki hafa aðeins eitt að takmarki: Hægfara útrýmingu þess. Sigríður er fyrsta íslenska konan sem lýkur doktors- prófi í heimspeki en viðfangsefni hennar var samband listar og sannleika í kenn- ingum Nietzsches. Hún lauk BA-prófi frá Boston University í Bandaríkjunum og stundaði síðan framhaldsnám við Freie Universitat í Berlín. MflR JÓNSSON, höfundur greinarinnar um bandarísk furðufréttarit (bls. 88), vinnur um þessar mundir að sagnfræðirannsóknum í Princeton. Már lagði fram doktorsritgerð við Háskóla Islands síðastliðið sumar sem fjallar um blóðskömm á Islandi frá 1270- 1870. Hann skrifar reglulega í HEIMSMYND. ÞÓRA KRISTÍN ÁSGEIRSDÓTTIR blaðamaður skrifar athyglisverða grein sem hún kallar Krabbamein í kerfinu (bls. 58). Þóra Kristín ræðir þar við fólk af ólíkum þjóðfélagsstigum og ber saman kjör þeirra og lífsstíl. Hún tók einnig viðtalið við Móeiði Júníusdóttur, hina glæsilegu söngkonu, sem prýðir forsíðuna að þessu sinni. JONfl FflNNEY FRIÐRIKSDÓTTIR er nýútskrifaður fjölmiðlafræðingur frá Freie Universitat í Berlín en þaðan lauk hún magisterprófi í vetur. Hún dvaldist um árabil í Þýskalandi ásamt manni sínum Guðna Franssyni klarinettuleik- ara. Jóna Fanney tók viðtal fyrir HEIMS- MYND við ísraelsku kvikmyndagerðar- konuna Michal Aviad, sem fékk friðar- verðlaun á alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni í Berlín í ár fyrir heimildar- mynd sína um líf kvenna í Palestínu og Israel (bls. 78). GUÐJÓN FRIDRIKSSON fjallar um kreppuárin og fylgifiska þess tíma í grein sinni Krakkar í kreppu (bls. 90). Guðjón Friðriksson sagnfræðingur er þjóðkunnur fyrir skrif sín. Hann hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Saga Reykjavíkur. Hann hefur skrifað í HEIMSMYND í fimm ár. HEIMS 6 MYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.