Heimsmynd - 01.05.1993, Side 11
Hvað myndu menn kjósa í borgarstjómarkosningum nú?
Fjöldi Hlutfall Hlutfall,
sem svarar
- Alþýðuflokkur 19 5,2 6,9
- Framsóknarflokkur 38 10,5 13,8
Sjólfstæðisflokkur 128 35,4 46,5
- Alþýðubandalag 44 12,2 16,0
- Kvennalisti 42 11,6 15,3
- Annað 4 U 1,5
- Ekki svaraö 87 24,0
- Alls 362 100,0 100,0
Alþýðuflokkur Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Alþýðubandalag Kvennalisti
Annað
kostnaðaráætlana fór að koma í ljós.
Almennt ábyrgðarleysi yfirmanna virtra
borgarstofnana olli almennum vonbrigð-
um og gæti leitt til þess að kjósendur vildu
draga borgarfulltrúa meirihlutans til
ábyrgðar í kosningum. Davíð Oddsson, þá
borgarstjóri, tók fyrstu skóflustungu á lóð
Ráðhússins í vorbyrjun 1988 og strengdi
þess heit að byggingin skyldi formlega
opnuð í apríl 1992. Þetta gerði borgarstjóri
í trássi við skipulögð mótmæli og undir-
skriftir um tíu þúsund Reykvíkinga. Hann
lét þau mótmæli eins og vind um eyru
þjóta og styrkti þá sumpart ímynd sína
meðal valdamikilla afla í flokknum að
ekkert fengi hindrað hann í að fullkomna
áform sín eða beita sér í mjög umdeildum
málum. Enda virtust kosningaúrslit síðustu
borgarstjórnarkosninga í maí 1990 stað-
festa þessa ímynd. Hitt kann þó að hafa
vegið eins þungt eða þyngra á metunum að
þá var í landinu óvinsæl vinstri stjórn
Steingríms Hermannssonar og andstæð-
ingar Sjálfstæðisflokksins hafa sjaldan
gengið fram jafn veikir og klofnir eins og
þá.
Eftir kosningar fóru hins vegar
reikningarnir að koma í ljós og blöskraði
þá landslýð, ekki síst stórum hópi kjósenda
Sjálfstæðisflokksins. Ein meginsástæða
þess liggur ekki í ákvörðuninni um bygg-
ingu þessara mannvirkja heldur þeirri
spillingu og ábyrgðarleysi sem endur-
speglast í vanhugsuðum og óskipulögðum
vinnubrögðum sem brjóta í bága við
hugmyndafræðilega andúð sjálfstæðis-
Arni Sigfússon borgarfulltrúi sóttist eftir
stól borgarstjóra þegar Davíð lét afþví
embœtti í júní 1991.4,2% tilnefndu Árna.
Heimir Steinsson útvarpsstjóri hefur verið 1
í sviðsljósinu upp á síðkastið. Einhverjir
hljóta að hafa glaðst yfir frammistöðu hans
í Hrafns-málinu því 2,1% vilja sjá hann sem
nœsta borgarstjóra.
Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi
var tilnefnd af2,8%.
Sigrún Magnúsdóttir, fulltrúi
Framsóknarflokks í borgarstjórn, var
tilnefnd af2,l% í stól borgarstjóra,
en sama hlutfall tilnefndi Sigurjón
Pétursson, fulltrúa Alþýðubandalags.