Heimsmynd - 01.05.1993, Side 12
fólks á ógætilegri meðferð almannafjár.
„Davíð stóð í þessum stórframkvæmdum
vegna byggingar Ráðhúss og Perlu,“ segir
Sigurjón Pétursson, fulltrúi Alþýðubanda-
lags, og bætir við: „Auk þess sem hann fór
langt fram úr fjárhagsáætlun fékk hann
einn milljarð árið 1991 fyrir hönd
borgarinnar vegna skuldar ríkisins og þessi
milljarður hvarf í einu lagi í Ráðhúsið og
þó var aldrei gert ráð fyrir að þessi
milljarður kæmi inn og einu framkvæmd-
imar sem jukust við tilkomu hans vom í
Ráðhúsinu. Það lá svo á þessum peningum
að Davíð og félagar seldu skuldabréfið
með miklum afföllum fyrir um 780
milljónir.“ Sigrún Magnúsdóttir, fulltrúi
Framsóknarflokks, segir Davíð hafa
knékropið fyrir Olafi Ragnari Grímssyni,
þáverandi fjármálaráðherra, skömmu fyrir
þingkosningar 1991 til að fá þessa
peninga. En Sigrún segist státa sig af því
að hafa fyrst bent á versnandi fjárhags-
stöðu Reykjavíkurborgar. „Þegar Markús
kom inn var Davíð ekki bara búinn að eyða
þessum peningum heldur er borgin komin
með mikinn fortíðarvanda vegna kostn-
aðar við Ráðhúsið og Perluna og vegna
þess að engum fjármunum hafði verið
varið til uppbyggingar atvinnulífs í borg-
inni,“ segir fulltrúi Alþýðubandalags.
Og fyrir næstu borgarstjómarkosningar
á Sjálfstæðisflokkurinn líklega eftir að
súpa seyðið af umdeildri ákvörðun um
uppbyggingu Korpúlfsstaða fyrir listasafn
það sem Erró gaf borginni en þessi
framkvæmd er talin munu kosta milljarða.
A krepputímum fer þetta fyrir brjóstið á
stórum hópi kjósenda, ekki síst ungum
foreldrum sem eiga undir högg að sækja
með vistun fyrir böm sín að sjá að það er
betur hlúð að myndum af Stalín, Gaddafi,
Maó og Kastró en uppvaxandi Reyk-
Svavar Gestsson alþingismaður var tilnefndur
afl,4% í embœtti borgarstjóra.
Ellert B. Schram, ritstjóri og fyrrum þingmaður
Sjálfstœðisflokks, var tilnefndur af0,7%.
Olafur Ragnar Gnmsson,
formaður Alþýðubandalags, var
tilnefndur af0,7% í
borgarstjóraembœttið, en
Alþýðubandalagið eykur mjög
fylgi sitt ef borgarstjórnar-
kosningar fœru fram nú.