Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 14
Samanburður á úrslitum borgarstjómarkosninganna 1990 og niðurstöðum könnunarinnar nú.
70
60
50
40
30
20
10
0
Úrslit kosninganna 1990
Nýr vettvangur 1990 / Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Alþýðubandalag Kvennalisti
Alþýðuflokkur 1993
víkingum. Þó ber þess að geta að ákvörð-
unina um Korpúlfsstaði tóku fulltrúar allra
flokka í borgarstjórn og virðast ekki iðrast
þess þótt allir hljóti að sjá að þessi
framkvæmd flokkist ekki undir skyldu-
verkefni sveitarfélaga. Sigrún Magnús-
dóttir talar um menningu í þessu sambandi
og Sigurjón Pétursson talar um byggingu
Borgarleikhúss og Viðeyjarstofu í sömu
andrá. Ekkert þeirra virðist iðrast þessarar
ákvörðunar varðandi Korpúlfsstaði. Fjár-
hagslega ábyrgðin við framkvæmdina
kann þó að leggjast þyngst á
Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að hann
hefur alla forystu um ákvarðanatöku.
VERSNANDI STAÐA
BORGARSJÓÐS
B orgarfulltrúi Framsóknarflokksins
heldur því fram að Davíð Oddsson hafi
meðal annars forðað sér úr stól borgar-
stjóra þar eð hann sá hvert stefndi í fjár-
málum borgarinnar. „Eg sá það þegar við
fórum yfir ársreikninginn 1990 hvernig
lausafjárskuldir höfðu aukist og veltu-
fjárhlutfall hrapað,“ segir Sigrún Magnús-
dóttir.
Staða borgarsjóðs hefur versnað að mun
á þessu kjörtímabili. Nú þegar hafa
borgarsjóður og Hitaveitan orðið að taka
erlend lán til að mæta yfirdrætti í bönk-
unum og Ijóst er að með missi aðstöðu-
gjalda hlýtur fjárhagur borgarinnar að fara
stórlega versnandi það sem eftir er þessa
kjörtímabils og litlar batahorfur fyrir það
næsta. Fulltrúar stjómarandstöðu í borgar-
stjórn segja versnandi fjárhag ekki hafa
bitnað á félagslegri þjónustu en tekjur
borgarinnar dugi ekki lengur fyrir
útgjöldum. Tekin voru erlend lán í ár og
síðastliðið ár fyrir tvo og hálfan milljarð.
Fulltrúi Alþýðubandalags segir engan
niðurskurð hafa orðið í félagsgeiranum en
bætir við að munurinn sé sá að tekjur
borgarinnar dugi ekki lengur til að mæta
aukinni þörf fyrir félagslega aðstoð og því
hafi verið tekin þessi lán fyrir tvo og hálfan
milljarð. Greiðslur af þessum lánum
hefjast eftir þrjú ár. Sigurjón Pétursson
bendir á að afborganir á ári verði um hálfur
milljarður með vöxtum.
VEIKARI BORGARSTJÓRI
Andstæðingar Sjálfstæðisflokks í borg-
Halldór Asgrímsson varaformaður
Framsóknarflokks var tilnefndur af
0,7% í borgarstjóraembœttið.
Fulltrúar Nýs vettvangs, Ólína Þorvarðardóttir
(0,7%) og Kristín Ólafsdóttir (1,4%).
BMUS1
GíGN
HtOKN'JH
KViHHOJAH
}^G0AIEH|
SCHRANi J
t-nu ík's ’-4 \
i\m
kárasoh
íMjMic*'
Wflss®
Davíð Scheving Thorsteinsson\
forstjóri var tilnefndur af 0,7%
og Magdalena Schram idaut
samafylgi.