Heimsmynd - 01.05.1993, Page 36

Heimsmynd - 01.05.1993, Page 36
Eins og fram kom í skoðanakönnun fyrir fáeinum árum var íslenska þjóðin á einum allsherjar hamingjutúr, en íslenskur veruleiki er annar í dag. Samdráttur í heilbrigðisþjónustu hefur verið bitbein landsmanna um nokkurt skeið. Við getum því miður ekki lengur státað af því að vera í hópi hamingjusömustu þjóða, né af því að vera í hópi helstu velferðarríkja heims. Nú státar íslenska þjóðin af því að hún er barnmörg miðað við flest önnur nágrannaríki í Evrópu þar sem fæðingum fer fjölgandi. Það skýtur því skökku við þegar ráðamenn landsins horfa framhjá þessari staðreynd og í anda sparnaðar leggja niður starfsemi annarrar af stærstu fæðingarstofnunum landsins. Fæðingarheimili Reykjavíkur annaðist á síðastliðnum árurn um fjögur til fimmhundruð fæðingar á ári. Við lokun stofnunarinnar hefur þessi fjöldi nú flust yfir á herðar starfsfólks fæðingardeildar Landspítalans og álag þar því aukist til muna. Samtímis eru nútímakröfur um fæðingarhjálp að engu hafðar, að konur eigi þeirra kosta völ að fæða á tæknivæddu háskólasjúkrahúsi sem Landspítalinn er eða í heimilislegra umhverfi Fæðingarheimilis Reykjavíkur. í samtali við HEIMSMYND sagði Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra, að samkvæmt upp- lýsingum Borgarspítalans væri áhugi kvenna hér á landi lítill fyrir svokölluðum náttúrulegum fæðingum eins og tíðkuðust á Fæðingarheimilinu. Rekstur heimilisins með þeim tíu rúmum sem þar eru fyrir væri mjög óhagkvæmur, þar sem fullskipuð vakt lækna, hjúkrunarkvenna og ljósmæðra gæti afkastað helmingi meira. Að sögn Guðrúnar Gunnarsdóttur aðstoðardeildarstjóra sængurkvennadeildar getur Landspítalinn annast urn 250 fæðingar á mánuði. Þá fjóra mánuði sem af eru þessu ári hafa fæðingar á deildinni verið yfir þessum mörkum og við tekur metmánuðurinn maí, þar sem áætlaðar eru 317 fæðingar. Það gefur augaleið að Landspítalinn er engan veginn í stakk búinn til að anna þessari aukningu og hefur því verið ákveðið að opna Fæðingarheimilið tímabundið til að mæta þessari aukningu. Ein af starfsstúlkum fæðingardeildarinnar kvað það dapurlegt að geta ekki veitt konunum bestu mögulega þjónustu, en að starfsfólk legði hart að sér til að láta ástandið bitna sem minnst á sængurkonunum. Hún sagði mikla þreytu vera í starfsfólki, sem þó hefði enn ekki bitnað á góðum starfsanda. Aðspurður sagði heilbrigðisráðherra að hugmyndir væru uppi um að opna Fæðingarheimilið aftur til frambúðar, en ekki í því formi sem starfsemin var áður. Þar sem miklar sveiflur væru í fjölda fæðinga milli mánuða væri ein hugmyndin sú, að opna stofnunina um það bil fjóra mánuði á ári þegar mikil aukning væri á fæðingum. Önnur hugmynd er að auka legupláss um helming, úr tíu rúmum í tuttugu, og gefa þeim konum sem áhuga hafa, kost á náttúrulegri fæðingu. / Aárum áður var lágmarks legutími sængurkvenna á fæðingarstofnunum landsins sjö dagar og sagði Guðrún aðstoðardeildarstjóri að þær konur sem þá hefðu krafist þess að útskrifast fyrir þann tíma hafi oft á tíðum þurft að beita hörku til að fá vilja sínum framgengt. I dag er raunin önnur. Nú er lagt hart að konunr í líkamlega góðu ástandi að yfirgefa stofnunina fjórum dögum eftir að barn þeirra kemur í heiminn. Á þeim tíma er hormónakerfið venjulega í mikilli umbreytingu, stálrni eða stíflaðir kirtlar eru að myndast í brjóstum vegna mjólkurframleiðslu og valda óbærilegum kvölum og vanlíðan. „Fjórði dagurinn“ er margri konunni sem fætt hefur bam minnisstæður, því að andlegt ástand hennar er þá oft heldur bágborið og kvað Guðrún það reglu að þessi dagur væri konunum tilfinningalega erfiður. Við þetta bætist að þegar heim er komið mætir hin nýorðna móðir oft skilningsleysi maka og bama sem halda að við útskrift sé hún fær í flestan sjó. Til viðbótar erfiðleikunum sem margar konur eiga við að glíma fyrstu dagana eftir heimkomu, hafa þær ekki jafn greiðan aðgang að faglegri ráðgjöf og ef þær dveldu nokkrum dögum lengur í umönnun ljósmæðra á fæðingardeildinni. Guðrún kvað það því nauðsynlegt að koma þeim hætti á, að ljósmæður heimsæktu konur að minnsta kosti einu sinni til tvisvar eftir útskrift þeirra af fæðingardeildinni. Það er siður okkar Islendinga að spara hvergi og hlúa sem best að ungviði okkar þegar það kemur í heiminn. Þegar sparnaður í ríkiskassanum er farinn að teygja arma sína þangað sem nýtt líf kviknar og bæði mæður og starfsfólk fæðingardeildarinnar taka á sig aukið álag, spyr maður sig hvort ekki sé hægt að spara annarstaðar. Því það eru nefnilega ekki allir sem sætta sig við að taka út sængurleguna inn á baðherbergi fæðingardeildar Land- spítalans eins og móðir ein gerði fyrir hálfri öld með snáðann sinn, Sighvat litla Björgvinsson. - JÓNA FANNEY FRIÐRIKSDÓTTIR Starfsstúlka fæðingardeildarinnar kvað það dapurlegt að geta ekki veitt konum betri þjónustu en sagði starfsfólk leggja hart að sér að láta ekki þetta slæma ástand bitna á sængurkonum. 36 HEIMS MYND

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.