Heimsmynd - 01.05.1993, Page 37

Heimsmynd - 01.05.1993, Page 37
smáf réttir Augu sem drepu Já, einmitt. Hvað er sameiginlegt með fréttamönnunum á Stöð tvö, þeim Sigmundi Erni, Inga Hrafni og Elínu Hirst. Já, augnaráðið. Þú hafðir alveg rétt fyrir þér. En þú hefur ekki unnið neitt, nema réttindi til að horfa á sjónvarpsfréttimar á báðum rásum með skoplegu ívafi. Það er engu líkara en Stöð tvö hafi sótt um einkaleyfi á þessum ránfuglsaugum fyrir sjónvarpsstöðina og margur svikahrappurinn hefur kiknað í hnjáliðunum undan fréttahaukunum og játað umsvifalaust misgjörðir sínar gagnvart náunganum. Eða er ekki svo? Sigmundur Ernir ætlaði að verða ljóðskáld og í haukfránu augnaráði hans sem er orðið einskonar vörumerki fyrir æsifréttamennsku má greina, ef glöggt er athugað, bæði heimsharm ljóðskáldsins og glöggskyggni fréttamannsins sem stöðugt hrærist í hringiðu æsilegra Ingvi Hrafn sér í gegnum holt og hæðir ýmislegt sem öðrum er hulið og ábúðamikið fas hans þegar hann þylur upp af blaðinu fær spennuna til að hríslast niður eftir bakinu á sönnum fréttaunnendum. Það er að segja ef þeir hafa ekki lesið ævisögu Ingva Hrafns þar sem hann afhjúpaði ótta sinn við að leysa vind í beinni útsendingu. Elín Hirst hefur þetta alvarlega yfirbragð frétta- konunnar og augnaráð sem gefur ýmislegt fréttnæmt til kynna. En framsögn fréttakonunnar er svo úc og suður að um leið og myndavélin hverfur af vel snyrtu andlitinu fer fréttin líka út og suður. Það er ákveðinn harmleikur að fæðast með slíkt augnaráð í þjóðfélagi þar sem fátt gerist sem gefur tilefni til þess að fréttamaðurinn sé vitstola af æsingi yfir fréttinni og stórkostlegum afleiðingum hennar fyrir áhorfandann. En úr því að við sveitafólkið búum í fásinninu þar sem ekki allt er jafn markvert og fréttamenn verða að uppfylla kröfur um jókvæðni með því að færa fréttir af jólasveinum og sauðkindum með reglulegu millbili, þá getum við þakkað fyrir að hafa augnaráð á heimsmælikvarða fyrir okkur á skjánum, jafnvel þó að bæði frétta- mennskan og fréttimar séu í sauða- litunum. - ÞÓRA KRISTÍN ÁSGEIRSDÓTTIR atburða á vettvangi þjóðmála. Nýjasfa tíska elstu tískuhönnuðir heims kynntu nýjustu vor- og sumarlínuna í ár nú á dögunum og vakti klæðnaður þeirra ekki síst athygli fyrir myndþrykkt, áberandi efni. Hvort sem það eru jakkar, buxur, hattar, klútar; myndþrykkt skal það vera og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sækir hönnuðurinn Vivienne Westwood myndefni sitt í Koss Herkúlesar eftir listamanninn Boucher. Italski hönnuðurinn Valentino notaði hefðbundin frönsk húsgagnaáklæði í sinnfcitnað, en Dolce & Gabbana sóttu í smiðju Botticelli. Karl Lagerfeldfór hins vegar ekki útfyrir tískuhús Chanel heldur notaði öll helstu tákn hönnunar þess fræga merkis. HEIMS 37 MYND

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.