Heimsmynd - 01.05.1993, Side 39
orðið til um Marilyn eru dregnar til baka. Því
hefur verið haldið stíft fram að Marilyn hafi
verið að æra alla þegar hún lék í einni af sinni
síðustu myndum, The Misfits. Það er ekki
rétt, segir Spoto, því það var John Huston,
leikstjórinn sjálfur, sem var að gera alla
vitlausa í kringum sig með sífelldu rausi.
Hann lét taka upp sömu senurnar aftur og
aftur í heitri eyðimerkursólinni, jafnvel þótt
ljóst væri að hann væri þegar búinn að fá það
fram sem hann vildi. Spoto lýsir Huston sem
sadista. Og ekki fær rithöfundurinn Arthur
Miller betri dóma. Hann skrifaði handritið að
umræddri kvikmynd og var stöðugt að breyta
því þannig að Marilyn gafst ekki færi á að
æfa nýju setningarnar áður en tökur hófust. A
tökustað leyndi Miller ekki áhuga sínum á
ljósmyndaranum Inge Morath sem varð síðar
eiginkona hans.
Það er fjarri sanni að Marilyn hafi verið
iðjuleysingi samkvæmt Spoto. Hún mætti
alltaf á tökustað þrátt fyrir eymsli í móður-
lífinu, sem hrjáðu hana á þessum tíma. Og
það var ekki Marilyn að kenna að mótleikari
hennar Clark Gable fékk hjartaáfall eins og
ekkja hans hélt fram, miklu fremur var það
sök Johns Hustons, sem píndi hann misk-
unnarlaust áfram.
Mestu vonbrigðin fyrir Marilyn við gerð
þessarar myndar var hvemig Miller skrifaði
hlutverk Roslyn fyrir hana. Hann hafði lofaði
henni því að þetta hlutverk myndi sýna
umheiminum í eitt skipti fyrir öll að hún væri
alvöru skapgerðarleikkona, en þetta hlutverk
var síst frábrugðið fyrri rullum Marilyn þar
sem hún lék hina rugluðu, bamalegu konu,
hlutverk sem hún var löngu komin með ógeð
á. Hún var mjög reið Arthur fyrir að gera sér
þetta og lýsti því yfir.
Allt þetta og fleira sýnir að Marilyn var
ekki heimsk ljóska, segir Spoto, fjarri því.
Hún var á undan sinni samtíð, eins konar
Sharon Stone síns tíma, nema greindari,
þokkafyllri, ráðríkari og stundum notfærði
hún sér fólk.
Spoto bendir jafnframt á veikleikana í
málflutningi Millers í eigin sögu þar sem
hann reynir að gera „lítið úr Marilyn“ með
því að kalla hana bamalega og mglaða. Spoto
segir að sjálfur hafi Miller þjáðst af óöryggi í
eigin listsköpun, hann hafi verið upptekinn af
sjálfum sér og haft mikla þörf fyrir að réttlæta
eigin persónu.
Og enn heldur Spoto áfram að afsanna
ýmsar sögusagnir um ástamál Marilyn. Hún
stóð ekki í ástarsamböndum við Kennedy-
bræðurna báða eins og Norman Mailer hélt
meðal annars fram. Hún svaf hjá forsetanum
og gerði það af álíka kæruleysi og hann
sjálfur. Spoto heldur því fram að maðurinn í
lífi Marilyn hafi verið Joe Di Maggio sem
vitað er að elskaði hana út yfir gröf og dauða.
Eini raunverulegi þorparinn í lífi Marilyn
var geðlæknirinn Ralph Greenson, sem Spoto
heldur fram að hafi valdið dauða Marilyn
með of stórri lyfjagjöf.
Með þessari bók vill Spoto hrekja þær
tilgátur að Kennedybræður hafi staðið að
baki morðinu á Marilyn. Hann vill meira að
segja meina að sögusagnir um ástarsambönd
hennar og bræðranna hafi verið tilbúningur af
hálfu þeirra sem vildu klekkja á pólitísku
veldi Kennedyanna.
Sú lýsing sem er dregin upp af Marilyn
Monroe í þessari bók er að því leytinu ný að
hún er ekki gerð að þessu fræga fómarlambi
heldur hlýrri og gefandi konu. Burtséð frá því
öllu og hinum eilífu sögusögnum um þessa
goðsögn þá tala myndirnar í bókinni sínu
máli rétt eins og í öðrum bókum um Marilyn.
Burtséð frá öllum fullyrðingum staðnæmist
lesandinn alltaf við þetta frábæra andlit, hið
þokkafulla bros og guðdómlega augnaráð.
Engar fullyrðingar löngu eftir lát hennar
standast því snúning. Að horfa á andlit
hennar, sagði Lenny Bruce, kemst næst því
að kyssa guð. ■
Stærsta stólaverksmiðja Bandaríkjanna
Lazy-boy framleiðir þennan einstaka stól
sem fæst aðeins í Húsgagnahöllinni.
Það eru sjö atriði sem gera þennan
stól frábrugðinn öðrum stólum
á markaðnum. Komdu til
okkar og fáðu upplýsingar
um þennan stól sem hefur
selst í milljónum eintaka
um allan heim.
MUNALÁN
¥
¥ *
Frá kr*
HúsgagnahölUn
BILDSHOFÐA 20 - 112 REYKJAVIK - SIMI 91-681199