Heimsmynd - 01.05.1993, Síða 40
mafrettir
BRYNJA BLÓMSTRAR
Fyrirsætan, fegurðardísin og
flugfreyjan orðin fertug. Fjöldi
manns hélt upp á afmælið með
henni nýlega, þeirra á meðal
draumurinn í lífi hennar,
sonurinn Róbert, sem hún vonar
að verði lýtalæknir!
örg stúlkan á sér þann draum í æsku að gerast
fyrirsæta, flugfreyja eða dansari þegar hún
„verður stór“ og því má kannski líkja lífi
Brynju Nordquist við draum ungu stúlk-
unnar sem varð að veruleika. Brynja var prúð
og stillt sem bam, en var þó jafnvíg á bæði
hlutverk sín í Gullna hliðinu þar sem hún lék
engil og púka í uppfærslu Þjóðleikhússins
árið 1966. Nýorðin fertug segist hún aldrei
hafa losnað við púkann úr sér.
Brynja bauð til 130 manna stórveislu á
veitingahúsinu Barrokk, Laugavegi 73, í
tilefni fertugsafmælisins og það geislaði af
henni lífsgleðin og hamingjan. Við Brynja
mælum okkur mót fyrr um daginn á
hárgreiðslustofu Dúdda á Hótel Esju, sem
fer fimlegum höndum um hár hennar á
meðan á tali okkar stendur. Dúddi og
Brynja eru ekki að hittast í fyrsta skipti. Þau
hafa verið vinir, dansfélagar og samstarfs-
menn í mörg ár og eru bæði ein af stofnendum sýningar-
samtakanna Módel '79.
„Leið mín í sýningarstarfið lá í gegnum dansinn," segir
Brynja. „Eg byrjaði í ballett átta ára gömul, var einnig í
jassballett og síðar aðstoðarkennari hjá Hermanni Ragnari í
samkvæmisdönsum í nokkur ár. Eg hef yndi af því að dansa og
mitt fyrsta verk þegar ég kynntist manninum mínum var að
kenna honum að dansa.“ Og dansfélagar Brynju hafa heldur
ekki verið neinir aukvisar, hún sýndi á sínum tíma meðal annars
dansa með sjálfum rokkkónginum og lögreglumanninum Sæma
rokk í sjónvarpi og á skemmtistöðum.
Eiginmaður Brynju er Magnús Ketilsson, eigandi tískuvöru-
verslunarinnar Poseidon í Keflavík. Sonur þeirra, Róbert Aron,
er á næstsíðasta ári í Verslunarskólanum og það er auðheyrt á
Brynju að það er stórt í henni móðurhjartað.
„Hann er draumurinn minn,“ segir Brynja um son sinn. „Við
erum mjög tengd og mikið saman fjölskyldan. Hann fæddist á
þeim tíma sem ég var að byrja að starfa við sýningarstörf og ég
tók hann oftast með mér á æfingar.“ Lá þá ekki beinast við að
drengurinn yrði módel? „Hann hefur eitthvað fengist við
sýningarstörf, en langar að leggja fyrir sig
leiklistina í framtíðinni. Ég vil að hann verði
lýtalæknir,“ segir Brynja skellihlæjandi og nú er
púkinn kominn upp í henni.
Foreldrar Brynju eru þau Halla Sigríður
Jónsdóttir húsmóðir og Jónas Nordquist,
fjármálastjóri Varnarliðsins. Brynja ritjar það
upp að hafa einu sinni spurt móður sína, hvort að
verið gæti að móðir hennar hafi í misgripum
tekið annað barn en sitt eigið þegar hún fór
heim af fæðingardeildinni fyrir fjörutíu árum,
því svo ólík sé hún bróður sínum Jóni. „Hann
er svo blíður, góður og rólegur og því datt mér
í hug hvort verið gæti að einhvers staðar væri
önnur Brynja sem færi minna fyrir og ekki
væri alltaf á fleygiferð."
Brynja kynntist eiginmanni sínurn
Magnúsi tvítug að aldri og hafa þau því
gengið saman í gegnum súrt og sætt. Það
hlýtur að krefjast mikils trausts og mikillar
þolinmæði að vera kvæntur konu sem er svo
mikið í sviðsljósinu og (framhald á hls. 45)
HEIMS
40
MYND