Heimsmynd - 01.05.1993, Síða 45

Heimsmynd - 01.05.1993, Síða 45
Brynja blómstrar (framhald af bls. 41) er stöðugt á ferð og flugi um heiminn. „Við vorum algjörir krakkar og mjög óþroskuð þegar við kynntumst. Auðvitað hafa komið smábrestir í sambandið í þau tuttugu ár sem við höfum verið saman og tímabil þar sem maður heldur að grasið sé grænna hinumegin. Þetta er bara eðlilegt. Ég virði manninn minn mikið fyrir að leyfa mér óhindrað að vera ég sjálf, sinna mínum áhugamálum og starfi. Það fylgir alltaf kjaftagangur fólki sem er áberandi í þjóð- félaginu og oft hef ég heyrt tilbúnar sögur um mig sem eiga ekki við nein rök að styðjast. Ein slík var á þá leið að ég héldi við tiltekinn mann sem er þekktur úr bæjarlífinu! Ég var lengi að átta mig á því hvað hefði komið þessari sögu á kreik, því ég þekki bæði hann og konuna hans mjög vel. Við vorum í boði með þessum hjónum fyrir nokkrum árum og fyrir tilviljun lenti ég með honum í leigubíl. Greinilega hefur einhver kjaftaglaður orðið vitni að því. Mér er skítsama þótt ég sé á milli tannanna á fólki, eri svona sögur finnst mér ljótar. Ég held þó að það sé ekkert meira um kjaftasögur hér á landi en erlendis, en smæð landsins gerir það að verkum að maður finnur meira fyrir þeim. Ég hugsa oft til orða Jónasar R. Jónssonar þegar hann kom eitt sinn til mín og sagði: Varaðu þig á slúðrinu. Brynja, en aldrei taka það of nærri þér, þú verður að byggja upp persónuleika sem vinnur á móti því.“ Nýr fjölskyldumeðlimur bættist í hópinn hjá Brynju, Magnúsi og Róbert á sjálfan afmælisdaginn. Tilvist hans ætti þó varla að gefa kjaftasögunum byr undir báða vængi, því nýi fjölskyldumeðlimur- inn er hundur af íslensku kyni. Brynja hefur í dag lagt sýningarstarfið á hilluna og starfar sem flugfreyja. Hún segist þó gera undantekningu fyrir vinkonu sína Báru Sigurjóns, sem fær „gömlu brýnin“ endrum og eins til að sýna föt úr verslun sinn Hjá Báru. „Ég starfaði sem flugfreyja hér á árum áður, en hætti því og fór að vinna hjá Frjálsu framtaki um tíma. Þegar hringt var í mig einn góðan veður- dag og mér boðið að starfa aftur sem flug- freyja, ákvað ég að slá til,“ og kímin á svip bætir hún við, „ég ætla mér að fljúga þar til ég verð 64 ára.“ Brynja er glæsileg kona, hún er tágrönn, í góðu formi og það geislar af henni. En við fertugsaldurinn eru oft tímamót í lífi kvenna með rriiklum andlegum og líkam- legum breytingum. „Jú, ég skynja þessi tímamót, en ég er mjög sátt við lífið og finnst það með hverju árinu yndislegra. Mér finnst bara meiriháttar að vera fertug. Hrukkumar mega mín vegna koma, en ég held áfram að vera ung í anda líkt og hún Bára Sigurjóns vinkona mín sem er orðin 71 árs. Ég er óttaleg stelpa í mér og mér finnst það líka mikilvægt að fólk varðveiti í sér barnið. Það er óþarfi að taka sig of hátíðlega þó maður sé í árum svo og svo gamall. Ég reyni að halda mér í formi með því að fara stundum í æfingatæki og styrkja mig, því ekki þarf ég að hafa áhyggjur af því að þurfa að fara í megrun,“ segir hún og klípur prakkaralega í lærið á sér. Brynja segist vera vinmörg og meta einlægni og tryggð sem helstu kosti í fari fólks. „Vinkonur mínar eru margar mjög ólíkar, en ég á mín leyndarmál með hverri og einni. Margar þeirra hef ég þekkt frá 13 ára aldri og slíkan vinskap met ég mikils.“ Og ekki fer á milli mála í afmælis- veislunni að Brynja hefur safnað að sér mörgum vinum um ævina. Hún svífur um í hvítri dragt sem væri hún engillinn í Gullna hliðinu forðum og þeir sem þekkja hana vita að litli skemmtilegi púkinn er heldur ekki langt undan. - JÓNA FANNEY FRIÐRIKSDÓTTIR Nýtt í svitalyktarvörnum: Kristalsteinn LeCrystal Naturel Heilsuval, Barónsstíg20, hefurhafiðinnflutningáfullkominni svítalyktarvörn. Umeraðræðaalnáttúrulegan kristalstein.Le Crystal Naturel. Honum er strokið eftir blautum handakrika eða il á fæti og kemur þá algjörlega i veg fyrir að lyktarbakteríur kvikni. Engin aukalykt, engin kemísk efni. Fæst í verslunum sem selja Græðandi Banana Boat línuna. Hárvandamál? í Heilsuvali, Barónsstíg 20, fást nú yfir 20 sjampó- og hárnæringar. Þ.á.m. er Banana Boat hárnæring sem lýsir háriðá náttúrulegan háttá nokkrum mínútum, Naturade djúphreinsandi 80% Aloe Vera sjampó fyrir venjulegt og feitt hár, mýkjandi Faith In Nature sjampó úr Jojoba-olíu, Royal Collection lúxussjampófyrir þurra hárendaog skaðað hár vegna permanetts og hárlita, Joe Soap Hair Care hárlýsandi kamillusjampó fyrir Ijóshærða, Banana Boat flækjubaninn Hair Guard, nærandi Naturica sjampó, hágæða GNC Aloe Vera sjampó með lesitíni, B-vítamíni, kamillu og PABA. Fást í verslunum sem selja Græðandi Banana Boat linuna. Hrukkubaninn Sænski húðsérfræðingurinn Birgitta Klemo hefursett á markað öfluga hrukkuvörn, Náturica hrukkubanann GLA+, 24. tíma krem úr glandínsýru (hraðar frumuendurnýjun), Aloe Vera (inniheldur50steinefniogvítamín),PCA(rakaefni), A-vítamíni (eflir súrefnisflæði um vefi og ver húðina gegn öldrun) og E- vítamini (hraðar endurnýjun fruma í ysta húðlaginu ogvinnur gegn exemi og sporiasis). í Naturica húðverndarlínunni er líka græðandi rakakremið Hud+kram sem hentar einnig viðkvæmnri húð, þurri, bólóttri og exemhúð. Naturica húðverndarlínan fæst í Heilsuvali, Barónsstíg 20, og öllum verslunum sem selja Græðandi Banana Boat línuna. NÝTT - NÝTT! í Heilsuvali, Barónsstíg 20, er stöðugt verið að kynna nýjar vörur. Nú er farið að selja þar gullfallega íslenska módeleyrnalokka úr brenndum leir og gómsæta granóla- barinn Sweet Bar með eplum, hnetum og súkkulaðibitum. í Heilsuvali er líka boðið upp á hárrækt, megrun o.fl. með leyser, rafmagnsnuddi og orkupunktum. Nýtt frá Banana Boat Nýjungarnar streyma á markað frá Græðandi Banana Boat línunni. Nú er komið á markað húðnærandi Banana Boat Dökksólbrunkugel (unnið úr gulrótum) fyrir Ijósaböð, Banana Boat hreint A-vítamín Retinol & Beta Karotín, sem hjálpar húðinni aðvinna upp eigin næringarefni, styrkir frumuhimnurnar, mýkir húðina og stillir rakastig hennar, Banana Boat hreint kollagen & Elastin, sem mýkir og stinnir húðina og vinna þannig gegn hrukkumyndun, Banana Boat E-gel fyrirexem og sporiasis, Banana Boat Bað- & sturtugel án skaðlegra sápuefna, græðandi Banana Boataugngel, Banana Boat sólbrunkufestir fyrir Ijósaböð o.m.fl. Nú fæst Banana Boat hreinasta Aloe Vera gelið á markaðnum (99,7%) í 4 túpu- og brúsastærðum. Verð frákr.295,- ‘RdtMNd HvarfæstGRÆÐANDI LÍNAN? Reykjavík HEIISUVAL Barónsstíg 20, ÁRBÆJAR-APÓTEK, BORGARAPÓTEK, BREIBHOLTSAPÓTEK Borgar- fjördur:BAULAN ísafjörður STÚDÍÓ DAN Bolungar- vík:SNYRTISTOFAN ARENA HvammstangLFLOTT FORM - Maria Sigurðardóttir Blönduós: APÓTEKIÐ Sauðárkrókur.KÚNST Ólafsfjörður: SIGGA & VALA DalvíkSUNNA Akureyri:HEILSUHORNIÐ Húsavík: HILMA Þórshöfn ÞÓRDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR Egils- staðirS.M.Á. NeskaupstaðurSIGURRÓS RÍKHARÐS- DÓTTIR Reyðarfjöröur:HEILSURÆKTIN Eskifjörður: SÓLBAÐSST INGUNNAR Fáskrúðsfjörður íSBLÓM Höfn:APÓTEKIÐ Vestmannaeyjar:SÓLSKIN Selfoss: HEILSUHORNIÐ Hveragerði:VERSLUN NLFÍ Grindavik: BLÁA LÓNIÐ Vogar:SÓLARLAMPI Margrétar Helgadóttur Hafnarfjörður:HEILSUBÚÐIN Kópavogur BERGVAL
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.