Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 48

Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 48
w Istað fyrirsæta á borð við Cindy Crawford og Claudia Schiffer sem einkenndu níunda áratuginn með ávölum línum og stórum brjóstum, prýða mjóslegnar stúlkur nú forsíð- ur tíunda áratugarins og þekktustu tískublöðin skarta fyrirsætum eins og Meghan Douglas, Kate Moss og Patricia Hartman, en þær voru á forsíðu janúarheftis tímaritsins Harpers Bazar. Imynd tísku sjöunda áratugarins var fyrirsætan Twiggy, veikluleg, horuð og flatbrjósta. Vöxtur hennar þótti svo eftir- sóknarverður að jafnvel harðsvíruðustu feitabollur lögðust volandi undir megr- unarpískinn og fóru ekki á mannamót fyrr en heilu vörubílshlössin af hrossabjúgum og ljómasmjörlíki höfðu gufað út í andrúmsloftið. Plastskór, hárkollur, gerviaugnhár, plokkaðar augabrúnir, bjöllubuxur og megrunarkúrar. Ef þetta hringir einhverri bjöllu í hausnum á kvenkynslesendum eru þær sjálfsagt smitaðar af Twiggy-bakt- eríunni. Nema þær séu virðulegar hús- mæður með Twiggy-búninginn ofan í dragkistu. Hann fær þá ekki að vera í friði mikið lengur. Eftir nokkurra ára baráttu við að komast aftur í mjúkinn hjá ungu kynslóðinni hefur þessi tíska náð almenn- um vinsældum aftur. I búðargluggum má nú líta sama varninginn og gerði allar stelpur vitlausar árið 1967 þegar verslunin Karnabær sá um að reykvískar ungpíur gætu tollað í tískunni. „Tískan er komin niður á jörðina aftur,“ segja bandarískir tískuspekúlantar. „Sýn- ingarstúlkur nota minni farða og klæðast ódýrari fötum. Þær spila ekki kynferði sitt á hæsta mögulega styrk. Þær eru ekki fullkomnar og nærri hvaða stúlka sem er gæti verið ein af þeim.“ í takt við fatnaðinn spila útvarps- stöðvamar nú tónlist frá sjöunda áratugn- um oftar en nokkurn tímann áður. Loksins, loksins segja þeir sem ekki hafa fundið útvíðar buxur við sitt hæfi í verslunum undanfarin tvö ár því verslunareigendur hafa sagt því miður, það gengur svo illa að koma þeim út. Eftirlegukindur sextíu og átta-kynslóðarinnar sem ekki náðu að tileinka sér íhaldssemi og upparnir dæmdu til dauða, fá nú loksins uppreisn æru. Þeir hafa yfirbragð gúrúa þar sem þeir spranga um síðhærðir með bönd í hárinu og flauta með hippatónlist nútímans. Unga kynslóð- in hefur tekið þá í sátt. Hanna Frímanns- dóttir hjá Karon-samtökunum tilheyrði hinum eftirsóknarverðu Twiggy-týpum á sínum tíma. Af öðrum Twiggy-týpum sem voru og hétu og við þekkjum í dag má nefna Svanhildi Jakobsdóttur, Ragnheiði Pétursdóttur sem varð þriðja í keppninni Fulltrúi ungu kynslóðarinnar árið 1969 og starfaði eftir það með Módelsamtökunum og Matthildi Guðmundsdóttur sem var aðalskvísan hjá Módel 79 á sínum tíma. Henný Hermannsdóttir var Fulltrúi ungu kynslóðarinnar árið 1969 og sigraði eftir það í keppninni Young International og starfaði um tíma að fyrirsætustörfum erlendis. Hún hefur eftir það unnið með Módelsamtökunum auk þess sem hún starfar sem danskennari. „Eg var að vinna erlendis, bæði í London og Kaupmannahöfn, á þeim tíma sem Twiggy-tískunnar fór að gæta,“ sagði Henný Hermannsdóttir. Ég hafði því betri aðgang að tískunni en margar aðrar. I Reykjavík var aðeins ein tískuverslun á þessum tíma og það var Kamabær. Hún sá um að mata okkur á því sem var að gerast erlendis og við bókstaflega rifumst um allt sem kom þar í hillumar. Það var því æðislegt að koma heim með fullar töskur af fötum sem ekki höfðu sést héma heima. I þessari línu var alveg sérstök áhersla á augun og þau áttu að virka mjög stór. Áður en gerviaugnhárin komu til sögunnar máluðum við augnhár í kringum augun. Hárgreiðsla Twiggy var einnig mjög sérstök og hárkollur urðu mjög vinsælar fyrir þær sem ekki vildu fóma síða hárinu og ég var ein þeirra. „Mér finnst orðið tímabært að fá þetta útlit aftur,“ sagði Svanhildur Jakobsdóttir. „Það em liðin tæplega þrjátíu ár. Ég man eftir því þegar Oli Gaukur, maðurinn minn, fór til London og kom aftur með alveg æðisgengin föt einmitt í þessum stíl. Það var fjólublá buxnadragt; þröngur jakki og útvíðar buxur í stíl og við þetta voru fjólubláir uppreimaðir skór. Hárgreiðslan var stutt og tvískipt í anda Twiggy og maður lét ekki sjá sig úti á götu öðravísi en með fölsk augnhár.“ „Mesta áherslan var lögð á augnmálning- una,“ sagði Hanna Frímannsdóttir. Það voru svört breið strik í kringum augun og fölsku Frá vinstri: Hanna Frímannsdóttir hjá Karon-samtökunum sem ung mjóna. Hanna eins og hún lítur út í dag. Twiggy sem kom afstað megrunarceði meðal unglingsstúlkna á sjöunda áratugnum. Henný Hermanns- dóttir danskennari og fyrrverandi fyrirsœta sem ung skvísa. Henný í dag. Svanhildur Jakobs- dóttir söngkona á mjónu-tímabilinu. Svanhildur ídag. 8131!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.