Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 60

Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 60
Hún er r ■ inu sinni skoðaði ■ ég hús til sölu I eftir auglýsingu í ■ blaði ásamt öðru M fólki. Kostir Æ hússins voru tíundaðir auglýsingunni. Þetta var einbýlishús á besta stað, á þremur hæðum og með gróðurhúsi með rósatrjám. Við fórum á staðinn til að berja dýrðina augum og það sem blasti við hefði eins getað verið skopstæling á auglýsingunni. Húsið var gamalt og í niðurníðslu enda hafði verkafólkið sem átti húsið sjálfsagt átt fullt í fangi með að vinna fyrir afborgunum og haft lítinn tíma til að glugga í híbýlablöð og gera hlutina í það stand sem hugurinn stóð til. í öllum hornum hússins voru grátandi smáböm og kassar með eigum húsráðenda stóðu í stöflum upp við veggina. Eftir að hafa drukkið kaffi með húsmóðurinni fórum við stutta ferð um húsið. Konan gekk eins og í leiðslu á undan okkur og strauk hverri spýtu og hverjum gluggalista eins og ástvini og lýsti húsinu eins og það væri höll. Áfram gengum við í humátt á eftir konunni, gegnum tvö barnaherbergi, upp og niður þrönga stiga og í gegnum kjallara út í rósahúsið þar sem aðeins ein guggin rós prýddi umhverfið og hún hallaði undir flatt eins og til að túlka þær tilfinningar sem einu sinni bærðust í hjörtum þeirra sem í þessu húsi ætluðu að búa sér og sínum heimili en voru nú á leið hvort í sína áttina. „Ég ætla út á land með börnin í fiskvinnu," upplýsti konan, og maðurinn sem bograði yfir kössum leit upp og hálf hvíslaði: „Við erum að skilja.“ „Við ætlum að kaupa annars staðar,“ sagði konan og reyndi að leyna ástandinu eða vildi ekki sjá það. Hún var ung. Rétt tæplega þrítug og hún barðist við að ýta þeirri hugsun frá sér að verða húsnæðislaus, einstæð móðir með þrjú börn. Við vildum heldur ekki sjá það. Hrósuðum húsinu og ætluðum að hringja seinna. Lugum, létum aldrei heyra frá okkur. En það olli samviskubiti að hafa Bergrún Antonsdóttir býr ásamt tveimur bömum sínum í leiguíbúð frá Örorku- bandalaginu. Hún starfaði sem fóstra fram til ársins 1989 og þá í Noregi þar sem hún veitti forstöðu barnaheimili. í nóvember þetta sama ár greindist hún með krabbamein í brjósti og kom þá til íslands nokkrum dögum seinna og var þá skorin upp. Við tók geisla- og sprautumeðferð og í ágúst 1990 hélt hún aftur út til Noregs. „Ég fór rólega af stað í vinnu samkvæmt læknisráði en var fljótlega farin að fá verki í mjöðmina. Læknarnir sem ég ráðfærði mig við úti héldu að þetta stafaði ýmist af vöðvabólgu eða klemmdum taugum og væri óviðkomandi krabbameininu, en um jólin var ég orðin svo slæm að ég komst varla úr rúmi og í kringum febrúar var ég lögð inn á spítala enda höfðu fætumir á mér stirðnað. Inni á spítalanum fékk ég morfín og þar lá ég fyrir þangað til fjölskylda mín héma heima hafði samband við íslenskan lækni og Sigurður Bjömsson krabbameins- læknir hringdi í mig út. Eftir að hafa talað við hann tók ég ákvörðun um að fara aftur heim til Islands og mágur minn kom út og aðstoðaði mig við að komast heim en ég var bundin við hjólastól. Bömin komu svo á eftir mér nokkrum dögum seinna ásamt vinafólki mínu og við höfum verið á íslandi síðan þá. Ef ég hefði verið áfram úti hefði ég þurft að bíða fram í apríl eftir að komast í geislameðferð en hér voru strax gerðar ráðstafanir. Það er mikill munur á læknis- þjónustunni hér og í Noregi og ég fann glöggt hvað ég var í góðum höndum er ég var komin heim. Krabbameinið var komið í beinin og í dag er ég metin 75% öryrki og er til skiptis í sprautu- og geislameðferð. Bömin eru núna sex og ellefu ára gömul og það hefur verið erfitt fyrir okkur undanfarin ár að vera stöðugt á faraldsfæti. En þau eru ánægð að við höfum fengið fastan samastað og þau ganga í skóla héma. Nú er ég á átta mánaða sprautukúr en þetta hefur verið sitt og hvað síðustu árin og heilmikil barátta. Minn lífsstíll markast af því að ég er HEIMS 60 mikið rúmliggjandi og ákaflega bundin við heimilið og uppá aðra komin að öllu öðm leyti. Það fer stundum í taugarnar á mér þegar fólk er að koma með ráðleggingar um hitt og þetta sem á að létta mér lífið en mér er algerlega ókleift sjúkdómsins vegna. Það er ekki óalgengt að mér sé ráðlagt að fara í langar gönguferðir, en staðreyndin er sú að það hefur mjög slæma verkun fyrir mig og kostar langar rúm- legur. Stundum líður mér eins og ég sé í fangelsi inni á heimilinu því að ég má lítið sem ekkert aðhafast sem ég gerði áður til að stytta mér stundir, ég get til dæmis ekki prjónað lengur. Fjárhagurinn segir líka sitt því að það sem ég má gera get ég oftar en ekki gert sökum peningaleysis. Ég hef í ráðstöfunartekjur tæplega 80.000 krónur og í því er allt innifalið, örorkubætur, tekjutrygging, meðlög, barnabætur og mæðralaun. Af því borga ég tuttugu og fimm þúsund í húsaleigu og þá á ég eftir fimmtíu og fimm þúsund í ráðstöfunar- tekjur. Lyfin sem ég fékk áður ókeypis þarf ég að borga í dag og mín hlutdeild í kostnaðinum hefur verið svo rokkandi að mér er ómögulegt að taka saman hvað ég borga mikið í allt. Það er svo breytilegt milli mánaða. Hver lyfjaskammtur dugir mér í tvo mánuði og kostar um tíu þúsund krónur en að auki þarf ég ýmis lyf til að slá á aukaverkanirnar og kostnaður við þau bætist ofan á. Þetta hefur þó lagast síðan ég fékk lyfjakortið fyrir stuttu en áður voru þetta svimandi háar upphæðir. Ég fékk með póstinum í dag synjun um frekari lækkun á lyfjakostnaði en læknirinn minn hafði sótt um undanþágu frá kostnaðar- hlutdeild í sjö af þeim lyfjum sem ég þarf að nota. Það er eitt í sambandi við þessi lyfjakaup sem mér er ómögulegt að skilja. Ég er öryrki með lyfjakort og fæ afslátt af öllum þeim lyfjum sem ég þarf að nota, en veikist börnin mín eins og gerðist fyrir skömmu þá þarf ég að greiða lyfin þeirra fullu verði. Þetta er undarlegt í ljósi þess að allt kemur þetta úr sömu buddunni. Ég gæti aldrei lifað af þessum peningum, nema MYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.