Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 70
hann fylgir mér í gegnum lífið. Mamma á
mikla virðingu skilið fyrir að berjast eins
og ljón fyrir fjölskyldunni undir þessum
erfiðu kringumstæðum. Hún giftist aftur
þegar ég var ellefu ára og fósturpabbi minn
heitir Benedikt Jónsson, hann er fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda. Það
þarf örugglega sérstakan mann til að taka
að sér fimm börn eins og hann gerði og
ganga þeim öllum í föðurstað.
Tónlistin sem hún semur ásamt sam-
býlismanni sínum sækir aðeins hugmyndir
í liðna tíð. Utfærslan er algerlega ný af
nálinni. Þung og seiðandi rödd Móeiðar í
laginu Komdu til mín gefur laginu alveg
nýja merkingu. Takturinn er þungur dans-
taktur og túlkunin í öllu ólík þessu sama
gamla Hljómalagi sem allir þekkja undir
nafninu An þín og Shady Owens söng svo
eftirminnilega. Sjálf segir Móeiður að
margir haldi að Hljómar hafi samið þetta
lag. „Þetta er gamalt lag frá hljómsveitinni
Supremes, My life is empty without you.
Það er ýmislegt í bígerð hjá okkur
og væntanleg eru tvö lög á
safnplötu í sumar. Það er
þó alveg eins líklegt
að það komi
meira í
erum allar mjög skapmiklar systurnar og
mamma líka. Það verður stundum heitt í
kolunum þegar við þurfum að gera út um
einhverja hluti. Ég er sjálf mjög lokuð og
mundi segja að ég hefði skrítið skap. Ég er
algert mömmubam, eiginlega mömmufrík,
og það hafa orðið nokkrar skrítnar
uppákomur í tengslum við það. Ég vildi
algerlega ráða yfir henni og sleppti henni
helst ekki úr augsýn þegar ég var lítil og
það voru sjálfsagt hræðileg örlög fyrir hana
að hafa krakka hangandi yfir sér alla tíð.
Ég man sérstaklega eftir því þegar ég var
átta ára gömul og eftir það má segja að ég
hafi látið aðeins af stjómseminni. Mamma
var þá að vinna á útvarpinu og hún var á
leiðinni í ferðalag ásamt vinnufélögum
sínum. Eins og vanalega átti ég mjög erfitt
með að sleppa hendinni af henni
en börn voru ekki
velkomin og ég
tók til minna
ráða.
Þegar
hún
framtíðinni því samstarfið gengur mjög vel
og ég hef mikla trú á því.“ Sjálfri fannst
mér Móeiður gera vel á barnaplötunni
Stóru börnin leika sér. Mín kisa dansar
tangó hefði getað verið samið fyrir þessa
djúpu, sérkennilegu rödd og þennan
granna, kattliðuga líkama. Hún segir samt
þegar líður á viðtalið að hún eigi meira
sameiginlegt með fiskum en köttum. „Mér
líður alveg ofboðslega vel í vatni og fer í
sund eins oft og ég get. Ég hef örugglega
verið hafmeyja í fyrra lífi. En ég verð að fá
reglulega líkamlega útrás, annars verð ég
svo slæm í skapinu að ég geri alla vitlausa
í kringum mig.“ Þetta er áhugavert og ég
ákveð að fara nánar út í þessa sálma ég hef
nefnilega áður heyrt því fleygt að Móeiður
sé mjög skapmikil og láti ekki teyma sig á
asnaeyrunum.
„Við