Heimsmynd - 01.05.1993, Side 71

Heimsmynd - 01.05.1993, Side 71
„Þetta er fyrsta alvarlega ástarsambandið sem ég hef verið í og ég vona að við verðum alltaf saman,“ segir Móeiður. A myndinni er hún ásamt kœrastanum sínum, honum Eyþóri Arnalds. var á leið út úr dyrunum ákvað ég að veita henni eftirför og mamma tók það ekki alvarlega fyrr en ég var komin inn í strætisvagninn og búin að semja við strætóstjórann um ókeypis far. Þá skipaði hún mér að fara út á næstu stoppistöð og fara beinustu leið heim en ég lést ekki heyra það og sat sem fastast. Það endaði með því að ég fór á þrjóskunni og skoðaði Surtshelli og nágrenni en mamma virti mig ekki viðlitis alla ferðina og mér fannst það frekar óþægileg tilfinning. Vinnufélagar mömmu störðu á mig furðu lostnir og áttuðu sig ekki á því af hverju ég væri þarna. Þegar heim var komið talaði mamma við mig inni á herbergi og sagði þá: „Móeiður Júníus- dóttir, nú hefurðu gengið of langt.“ Upp fra þeim degi hef ég reynt að stilla skap mitt og hemja frekjuna. Við mamma erum í dag mjög góðar vinkonur og mér finnst stundum að hún sakni þess að ég hangi ekki í pilsfaldinum á henni lengur. Annars er ég ekki besta manneskjan til að lýsa sjálfri mér. Það kemur allt svo ruglingslega út þegar fólk reynir að tala mikið um sjálft sig. Margir hafa svo brenglaðar sjálfshugmyndir og halda í rauninni að þeir séu allt öðruvísi en þeir eru í raun og veru.“ Og nú verður hún mjög svo alvarleg á svipinn og hallar undir flatt. „í alvöru,“ segir hún, þegar ég fer að hlæja. „Það eru ýmsir þannig, ekki bara ég. Ef ég reyni samt að lýsa mér þá er ég ofboðslega sjálfsgagnrýnin og á erfitt með að þola sjálfri mér mistök í því sem ég er að gera en mér finnst gaman að syngja og það á eiginlega við um hvað sem ég er að syngja. Þó að eitthvað komi uppá á

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.