Heimsmynd - 01.05.1993, Síða 78
Kvikmynd Michal Aviad, Nágrannakonur,
hlaut friðarverðlaun alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Berlín í ár.
Þessari mynd smellti ég afhenni er við
hittumst að aflokinni sýningu á mynd
hennarþar í borg.
r gyðingar
tóku að
flykkjast til
Palestínu und-
ir lok síðustu
aldar var land-
ið þéttbyggt
aröbum sem
litu á sig sem
sérstaka þjóð
innan arabaheimsins. Sú stað-
reynd féll engan veginn að þeirri
óskhyggju zíonista sem dreymdi
um „land án þjóðar, fyrir þjóð án
lands“, eins og Israel Zangwill,
formælandi zíonista, orðaði það.
Israelsríki var formlega stofnað
árið 1948, þremur árum eftir að
verstu fjöldamorðum mannkyns-
sögunnar undir stjórn nasista
Nágrannakonur
Heimildarmynd ísraelsku
kvikmyndagerðarkonunnar
Michal Aviad, The Women
Next Door eða
Nágrannakonur, leiðir okkur
inn í heim ísraelskra og
palestínskra kvenna. Þetta er
heimur sem einkennist af
hervaldi, þar sem ótti,
sársauki, niðurlæging og kúgun
eru daglegt brauð.
Hlutskipti palestínskrar konu
er að vera móðir ogfœða af
sér kynslóð sigursins.
lauk. Þjáningum og örbirgð gyðinga sem
fylgdu í kjölfar ofsókna nasista verður ekki
með orðum lýst, enda áttu þeir dyggan
stuðning flestra þjóða heims þegar skipting
Palestínu var samþykkt með miklum
meirihluta aðildarríkja Sameinuðu þjóð-
anna.
Fimm ár eru nú liðin frá því að uppreisn
Palestínumanna gegn kúgun og yfirræði
ísraelsmanna braust út. Steinastríðið eða
Intifada, sem á arabísku merkir „að hrista
af sér“, hefur verið íbúum landsins
dýrkeypt og litar hversdagslíf fólksins í
landinu með blóði og tárum.
Heimildarmyndin Nágranna-
konur eftir ísraelsku kvikmynda-
gerðarkonuna Michal Aviad lýsir
hlutskipti ísraelskra og palest-
ínskra kvenna í þessum hatrömmu
átökum gyðinga og araba. Þetta er
önnur mynd Michal í fullri lengd,
en mynd hennar Acting Our Age,
sem fmmsýnd var fyrir um það bil
fimm árum og fjallar um hvaða
þýðingu það hafi fyrir konur að
eldast, hlaut einnig góðar viðtökur
og vann til fjölda verðlauna á
kvikmyndahátíðum víðsvegar um
heiminn.
Michal Aviad brást fúslega við
beiðni minni um viðtal er við
vorum staddar á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Berlín eftir
sýningu myndar hennar Ná-
grannakonur.
„Eg veit nú ekki mikið um
Island, en það litla sem ég veit er
það að formæður ykkar úr
íslendingasögunum voru miklir
kvenskörungar,“ hrópar Michal
upp yfir sig þegar ég segist vera
frá íslandi. í mín-um huga er
Michal Aviad kvenskörungur
mikill. Hún ræðst í ferðalag í
gegnum ísrael og hernumdu
svæðin ásamt tveimur öðrum
konum, palestínskum aðstoðarleikstjóra og
ísraelskri kvikmyndatökukonu, til að
kanna stöðu nágrannakvenna af ólíku þjóð-
erni og menningu. Nágrannakonur segir
sögu þessa ferðalags, sem byrjar í hjarta
Jerúsalem.
HEIMS 78 MYND