Heimsmynd - 01.05.1993, Side 82
innar, þar sem mjög fáir karlmenn voru
viðstaddir. Hin ýmsu kvennasamtök hafa
nú ákveðið að stofna stuðningshópa til að
vinna með konum að tilfinningahliðinni.
Sársaukann er búið að kæfa niður og kon-
umar þurfa að læra að tala um tilfinningar
sínar. A hinn bóginn er þjáning þeirra dag-
legt brauð og því er þetta kannski líka
spurning um að halda sönsum og bæla
niður tilfinningar.“
Þú minnist á kvennasamtök í þessu
karlaríki, eru þetta þá samtök sem starfa
innan herteknu svæðanna?
„Já, það eru mörg kvennasamtök út-
breidd á Gazasvæðinu og Vesturbakkanum
sem hafa samvinnu við önnur samtök og öll
eru þau í tengslum við Frelsissamtök
Palestínumanna, PLO. Þau voru stofnuð
árið 1979 og hafa nokkur þúsund konur á
félagsskrá."
Er eitthvert samband á milli kvenna-
samtaka gyðinga og arabakvenna?
„Báðir þessir hópar hafa haft samvinnu í
mörg ár. Það er auðveldara fyrir konur að
hittast og skiptast á skoðunum, þar sem
fleiri konur en karlar sinna daglegum störf-
um innan hersetnu svæðanna.
Frásögn Dönu Eizenberg í Nágranna-
konum er áhrifamikil. Þessi unga kona, sem
er fyrrurn hermaður í ísraelska hernum,
hafði það að atvinnu að leita á
palestínskum konum við landamæri Israels
og Jórdaníu. Rödd hennar er einlæg og ekki
laus við blygðun. Hún lýsir því hversu erfitt
það var að afklæða eldri konur og
niðurlægja þær með því að leita á þeim.
„Hver þessara kvenna hefði getað verið
móðir mín eða amma,“ segir hún. „Þegar
ég neitaði einu sinni að leita á tveimur
gömlum konum, sem nánast lágu á bana-
beði sínu, brugðust yfirmenn mínir æfir við
og sögðu að ég ætti ekki að blanda til-
finningum mínum í vinnu sem þessa, þetta
væru hvort sem er skepnur. I hitanum var
loftið þrungið svitastækju og hlandfýlu svo
mér varð óglatt.“ Dana segir okkur einnig
frá því þegar einn yfirmanna hennar neyddi
hana til samræðis við sig og hvernig hún
barðist á móti og að lokum kærði hann.
Þegar maður þessi var kallaður fyrir
dómstóla, sagði hann vinum og
kunningjum ástæðuna vera þá, að hann
hefði áreitt nokkra „arabaskratta“. Fyrir
þessum manni er það greinilega réttmætara
en að leita á samstarfskonu sína.
Viðtalið við Dönu fer fram í lítilli tísku-
vöruverslun þar sem hún starfar í dag og
enn er hún að fylgja konum inn í klefa og
bíða eftir því að þær afklæði sig, þó á mun
manneskjulegri hátt.
„ísraelskar konur eru skyldugar til að
gegna herþjónustu,“ tjáir Michal mér. „Um
það bil helmingur ísraelskra kvenna fer í
herinn, en mun auðveldara er fyrir þær að
neita en karlmenn. Þær losna til dæmis
undan herþjónustu ef þær eru giftar,
þungaðar, strangtrúaðar eða ómenntaðar.
Það er öllu erfiðara fyrir ísraelska karlmenn
að komast hjá herþjónustu. Neiti þeir verða
þeir að sitja herþjónustuna af sér í fangelsi.
En fáir ungir menn mótmæla, 18 ára gamlir
vita þeir varla um hvað málið snýst.
Herþjónusta er hluti af menningu þeirra og
mjög stór þáttur í uppeldinu."
Þær konur sem við sjáum gráta í Ná-
grannakonum eru mæður þessara drengja
að kveðja syni sína á leið í herinn. Þeir
virðast flestir ganga glaðir og reifir á vit
nýrra „ævintýra“.
„Já, en ég held að þær gráti ekki af ótta
við að synir þeirra fremji ofbeldisverk eða
mannréttindabrot. Eg held að þær gráti af
því að þær elska syni sína. Þær eru, eins og
flestar mæður, hræddar um að börnunum
sínum verði kalt, að þau hafi ekki peysu til
að fara í, eru jafnvel hræddar um að
drengirnir fari á puttanum til baka heim og
lendi í árekstri, eða að eitthvað hendi þá.“
Stefna ríkisstjórnarinnar í Israel er að
fjölga gyðingum á hersetnu svæðunum og
Ótrúlegt úrval,
endalausir möguleikar
mismunandi gerðir af
veggfóSri og borðum
tegundir af veggfóSri
og mynsturborSum
Veggfóðrarinn hefur örugglega
veggfóðrið sem passar hjá þér.
Mynstur fyrir stofur,
svefnherbergi, barnaherbergi og
aðrar vistarverur sem þú vilt
gera hlýlegar og notalegar.
Við bjóðum einnig efni í stfl,
fyrir gluggatjöld, púða
og ábreiður.
Kynntu þér úrvalið, verðið er
lægra en flestir halda.
Hcegt er aS sérpanta
ATHUGIÐ: VEGGFÓÐRARINN E R FLUTTUR í NÝTT HÚSNÆÐI AÐ FAXAFENI 12
arnaherbergið verður
skemmtilegt með glaðlegu
og litríku veggfóðri. Glugga-
tjaldaefni, rúmföt og púðar í stíl. Ef
tekið er dæmi þar sem veggfóðraður er
einn veggur, u.þ.b. 10 fm, og mynstur-
borði lagður hringinn um herbergið,
u.þ.b. 10 m, þá er kostnaðurinn:
Umhverfið breytir um svip með fallegu veggfóðri.
2 rúllur veggf. (10,5 fm)
1 rúlla borði (10 m)
1 pk. lím
kr. 1.990,
kr. 1.380,
380
Samtals
kr. 3.750,
VEGGFÓÐRARINN
\_J VERSLUN M
FAXAFEN 1