Heimsmynd - 01.05.1993, Page 85
Gullöldin í Hollywood. Fred Astaire (til
& vinstri) var glœsilegur en líka
B afslappaöur í jakkafötum og Erol
Flynn klœddist sínum fötum á
Hg karlmannlegan hátt.
Kvikmyndastjörnur ”
Hollywood höfðu mikil
áhrifá tískuna áfjórða og
fimmta áratugnum. Clark
Gahle (til vinstri) og Cary
Grant (að ofan), jafnvel
Maurice Chevalier (til
hliðar), voru fyrirmyndir
fjöldans.
jakkaföt voru vinsæl meðal skemmtikrafta
í Bandaríkjunum, síður jakki við víðar
buxur og sniðin voru yfirleitt frjálsleg,
eðlileg axlabreidd og mjög víðar skálmar á
buxunum.
Þegar fjórði áratugurinn gekk í garð
blómstraði karlmannatískan sem aldrei fyrr
og sá maður sem hafði mest áhrif í
tískuheiminum var prinsinn af Wales sem
afsalaði sér svo eftirminnilega krúnunni
1936. Játvarður þessi var ágætur kunningi
Coco Chanel en hún var undir sterkum
áhrifum af klæðnaði enskra aðalsmanna í
hönnun sinni. A þessum árum eru
tweedefnin hafin til vegs og virðingar.
Hinn afslappaði stíll píputottandi
aðalsmanna á enskum herrasetrum fær að
njóta sín og jakkafötin eru vel sniðin en
augljóslega einnig þægileg. London verður
á þessum tíma tískuborg karlmannanna
með klæðskerana í Saville Row í
fararbroddi. Jakkafötin voru með ákveðnu
sniði og sem sveipuð eftir karlmanns-
líkamanum. Þessi snið fóru hvorum tveggja
jafn vel, hinum grannvaxna dansara Fred
Astaire sem og hinum karlmannlega
kvikmyndaleikara Erol Flynn. Með þessum
jakkafötum náðist hinn fullkomlega
hversdagslegi glæsileiki með öllum sínum
hrukkum og brotum en jafnframt skörpum
útlínum. Hápunktur þessarar þróunar í
karlmannafatnaðinum var sportfatnað-
urinn, hið afslappaða útlit samfara glæsi-
mennskunni. Á fjórða áratugnum og allt
fram á stríðsárin einkenndi þessi glæsileiki
og munaður karlmannatískuna og margir
minnast hans enn með eftirsjá.
Aftur setti heimsstyrjöld strik í reikning-
inn og munaður tískunnar heyrði sögunni
til. Tvíhnepptir kvöldjakkar, vesti, erma-
líningar, efnismiklar síðbuxur og fellingar
settu ekki lengur svip á karlmannafatnað-
inn. I lok stríðsins, þegar munaður var aftur
leyfilegur, var mun léttari svipur yfir
jakkafötunum. Axlapúðar voru notaðir til
að leggja áherslu á breiðar herðar og
boðungarnir voru einnig breiðari. Þessi stíll
vék fljótt fyrir íhaldssömum fatnaði kalda
stríðsins og kommúnistahræðslunnar í
Bandaríkjunum. Nú var karlmönnum ekki
lengur leyft að berast á í klæðaburði. Fötin
áttu að vera einföld og lítið áberandi.
Kolgrátt varð vinsæll litur og sniðin voru
bein og flest með sama móti.
Með blómabyltingu og tísku hins
alræmda sjöunda áratugar varð gerbreyting
á afstöðunni til klæðnaðar karlmanna en
þeir sem voru í gráum flannelsfötum þóttu
líkjast gömlum geirfuglum. Karnabæjar-
tískan hafði tekið völdin. Þetta nýtti
hátískuhönnuðurinn Pierre Cardin sér til að
hafa áhrif á klæðnað þeirra betur settu.
Hann hannaði kragalausa jakka í anda
Nehrus sem höfðu
mikil áhrif í
tískunni og afar
þröngsniðin jakka-
föt.
Áttundi áratug-
urinn er almennt
nefndur stíllausi
áratugurinn þótt
ýmsir séu að
rembast við að
innleiða ýmis áhrif þaðan inn í tísku
nútímans. Jakkaföt þessa tíma voru iðulega
úr gerviefnum. Polyester var til dæmis afar
vinsælt efni en á þessum tíma komu einnig
fram hönnuðir sem áttu eftir að hafa
afdrifarík áhrif á karlmannatískuna.
Bandaríski hönnuðurinn Ralph Lauren er
einn þeirra og hann leit aftur til þess tíma
þegar prinsinn af Wales (Játvarður, sá sem
fyrr er getið) setti sem mestan svip á
tískuna. Klæðnaður breskra aðalsmanna
varð fyrirmynd Ralphs Laurens, það er að
segja sá klæðnaður sem breski aðallinn
notar til að slappa af á sveitasetrum sínum.
Lauren notaði tweedefni, smáköflótt efni,-
reiðfatnað, tvíhneppta jakka með breiðari
boðungum en áður og fellingar. Hann
innleiddi alveg nýjan vinkil í tískuna,
sambland af ensku aðalsmannsútliti og
bandarískum sportfatnaði. Italinn Giorgio
Armani heillaðist af þessari sömu
hugmynd og endurvakti glæsimennsku
millistríðsáranna með ítölsku yfirbragði.
Armani kom með laussniðin jakkaföt,
síðar, laussniðnar buxur og allt í einu voru
þægindi og glæsimennska komin saman í
einum jakkafötum og almennri afstöðu
karlmanna til eigin
útlits gerbreytt. Armani
tekur mið af þeim
breytingum sem verða í
samfélaginu og hann er
alltaf skrefi á undan
ríkjandi sveiflum.
Þegar upparnir settu
svip sinn á tískuna með
Hertoginn af
Edinborg (með
Wallis Simpson
1939) hafði meiri
áhrifá tísku
karlmanna en
nokkur annar á
þessum tíma.