Heimsmynd - 01.05.1993, Qupperneq 88
f jölmiðlar
Myndin er af
furðuskepnu úr
alfrœðiorðabók um
slík fyrirbœri sem
fyrirfinnast hvergi í
raunveruleikanum.
Vinstri myndin er af
Karli ríkisarfa
bresku krúnunnar.
ýverið hleyptu drukknir
starfsmenn kjarnorkuvers í
Síberíu milljónum lítra af
sjóðheitu vatni út í gadd-
freðna náttúruna og fimmtán
karlar sem voru að veiða
niður um vök drukknuðu.
Eru þetta tvær af helstu
fréttum nýjasta tölublaðs vikuritsins
Weekly World News. Að mati vikuritsins
National Enquirer ber það nú helst til
tíðinda að nágranni Elísabetar Taylor er
flúinn undan hótunum eiginmanns hennar,
Larry Fortensky, vegna ágreinings um
girðingu. Einnig birtir blaðið spá „mesta
sjáanda heims“ um framtíð bresku
konungsfjölskyldunnar. Spámaðurinn er
enginn annar en Uri Geller, sá sem forðum
beygði skeiðar og stöðvaði klukkur með
afli augna sinna. Hann spáir því meðal
annars að skilnaður Karls og Díönu verði
til þess að Karl finni upp skallameðal og
auðgist óskaplega.
Fleiri blöð sem þessi koma út vikulega
og verða þau nefnd á nafn þegar tilefni
gefst hér á eftir. Öll kosta þau um dollar
stykkið og eru til sölu við afgreiðslukassa í
öllum helstu og stærstu matvörumörkuðum
Bandaríkjanna, innan um rit á borð við
People, Women’s Weekly, Vanity Fair,
Rolling Stone, Vogue og TV-Guide. Það
ber vott um að útgefendur fara ekki með
fleipur þegar þeir fullyrða að lesendur
nemi milljónum. National Enquirer státar
meira að segja af því á forsíðu að vera
útbreiddasta blað í Bandaríkjunum. Tölur
liggja ekki fyrir, en fullvíst má telja að
blöðin seljist í gríðarlegum upplögum. Þá
má spyrja hvort mark sé á þeim takandi.
Getur verið að sýningarstúlka hafi drepið
og étið kærasta sinn og sagt þegar upp
komst að kjötið hafi verið meyrt og veru-
Ofrúlejt en satt?
Um bandarisk furðufréttarit
Stærsti köttur í heimi vegur 36 kíló og borðar
90 dósir af túnfiski á viku. Hann býr í Connecticut
í Bandaríkjunum.
EFTIRMÁ JÓNSSON
lega bragðgott? Þetta á að hafa gerst í
Orange-héraði skammt frá Los Angeles, en
stúlkan var frá Egyptalandi. Ótal smáatriði
styðja þessa sögu vikuritsins Globe, meðal
annars að kærastinn, sem var bandarískur,
hafi verið 110 kíló, þótt aðeins 50 kíló
fyndust í rusli nágrannans. Er svo kannski
hugsanlegt líka að Galína dóttir Bresnjevs
heitins Sovétleiðtoga sé nú kynóð
fyllibytta, orðin 63 ára? Það segir sama rit
að minnsta kosti.
Aðeins Weekly World News (sem ótví-
rætt er öflugast þessara rita) gefur til kynna
meðal upplýsinga um ritstjórn og
símanúmer að greinar séu einvörðungu
birtar lesendum til skemmtunar. Ekki er þó
tekið fram hvort einhverju sé logið og heilu
sögumar búnar til. Hin ritin láta ekki annað
í ljós en að mark sé á öllu takandi sem í
þeim stendur. Fyrir fáeinum árum fór
leikkonan Carol Bumett í mál við National
Enquirer vegna loginnar fréttar um hana og
fékk sem nemur hundrað milljónum
íslenskra króna í skaðabætur. Blaðið sjálft
viðurkenndi aldrei að stefna þess væri
annað en að segja satt og rétt frá. Einstakir
starfsmenn þess játuðu þó því að sumar
sögur blaðsins" væru uppspuni frá rótum,
aðrar byggðu á orðrómi sem ekki væri haft
fyrir því að fá staðfestan, enn aðrar tækju
HEIMS
MYND