Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 92

Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 92
Skemmdarverk afvega- leiddra unglinga á nokkrum sumarbú- stöðum í nágrenni Reykjavíkur á önd- verðu þessu ári vöktu mikla athygli og urðu til þess að margir mál- uðu skrattann á vegg- inn. Sannleikurinn er hins vegar sá að æsku- lýður nútímans er einhver sá efnilegasti sem Island hefur alið. Yfirleitt eru börn og unglingar frjálslegir, vel að sér, víðförlir, prúðir, iðjusamir og áhugasamir um landsins gögn og nauðsynjar. Hins vegar verður nokkur hópur ávallt illa úti vegna fátæktar, óreglu eða geðtruflunar foreldra. Þetta er kannski að færast í vöxt núna vegna atvinnuleysis og versnandi afkomu heimila. Engu að síður var fátæktin, atvinnuleysið og eymdin margfalt meiri á fyrri hluta þessarar aldar þegar þjóðfélagið var þó smærra í sniðum og fábrotnara. Það er því alls ekki víst að heimur fari versnandi. Líklega hefur hann farið batnandi að því er varðar unglinga - ef eitthvað er. Hér verður farið nokkrum orðurn um afbrot unglinga í Reykjavík á þeim tímum, sem gamla fólkið okkar var að alast upp, og ástæðumar fyrir þeim. Ef til vill er hægt að draga einhverja lærdóma af þeirri sögu. Vegna búhokurs og fásinnis í sveitum landsins og bágrar afkomu streymdi fólk til Reykjavíkur á fyrri hluta aldarinnar. Það var í leit að betra lífi. í byrjun hafðist hvergi nærri undan að byggja húsnæði yfir allt þetta fólk. „Ef ekki skal telja fátæktina og fáfræðina þá eru húsakynnin langstærsta heilbrigðis- og menn- ingarmálið hér á landi.“ Fátækt aðkomufólk varð að láta sér nægja, meðan það var að koma undir sig fótunum, að búa við afar frumstæð skilyrði. Margir bjuggu í saggafullum kjöllurum, kannski stór fjölskylda í einu herbergi með eldunaraðstöðu frammi á gangi, uppi á hanabjálkum eða í kofaskriflum, gerðum af kassafjölum, sem hróflað var upp víða í bæjarlandinu. Börnin úr þessu fátæktar- standi urðu að veltast úti allan guðs langan daginn því að ekki var pláss fyrir þau heima nema rétt yfir blánóttina og dag- legur skólatími í Bamaskóla Reykjavíkur var kannski ekki nema tveir tímar á dag. Til eru rnargar lýsingar á þessu ástandi. Guðmundur Hannesson prófessor skrifaði árið 1924: „Ef ekki skal telja fátæktina og fáfræðina þá eru húsakynnin langstærsta heilbrigðis- og menningarmálið hér á landi. Ef landsstjóm og landshagur væri í góðu lagi þá ættum vér að verja stórfé á hverju ári til þess að bæta húsakynnin og láta flest annað mæta afgangi ... Við síðasta manntal var í Reykjavík 34% íbúða eða rúmlega þriðjungur aðeins eitt herbergi og helmingur slíkra íbúða var algerlega án eldhúss. 29% voru tveggja herbergja íbúðir. Og svo bætist það við að margt af þessu eru rakar og dimmar kjall- araholur." Lýsing á einni slíkri íbúð birtist í Alþýðublaðinu vorið 1924. Það var norð- urherbergi í niðurgröfnum og rökum kjallara, um það bil 7-8 fermetrar að stærð en lofthæðin var 1,90 metrar. Síðan sagði í greininni: „En skorsteinn og klóakpípa sem eru í herberginu taka töluvert af þessu rúmi. Þarna búa hjón með sex börn á aldrinum þriggja til fjórtán ára; sjöunda barnið hafa þau látið frá sér af því að þau komu því ekki fyrir, en eitt barn hafa þau misst. ^Maðurinn er í siglingum og kemur ekki heim nema fáa daga með löngu millibili. Menn geta ímyndað sér Jircngslin þegar búið er að búa um. ^Elsti drengurinn sefur á gólfinu milli rúmsendans og kommóð- ^unnar og er það bil aðeins ^sextán þumlunga breitt en fæturna hefur drengurinn undir ofninum sem verður kþó að leggja í þegar kalt er. Vatnsrör liggja um L loftið í herbergi þessu ^og lekur alltaf af ^þeim, þó sí og æ séu þau þurrkuð, k en konan vill ekki verja þau til þess að forðast vonda lykt sem af því leiddi. Gluggarnir eru svo grautfúnir að ómögulegt er að opna þá; rennur vatn ein- att inn í þá og niður í gegnum fúnar kist- umar og undir gólfið sem er fúið og hefur verið bætt með pjátursplötum. Slagi er svo mikill að rúmbotninn og madressurnar hafa orðið ónýt og er þetta þó alltaf tekið alveg upp þegar búið er um. Vatn er leitt inn í herbergi þetta og er kraninn yfir höfðalagi á legubekk sem tvö böm sofa á og getur hver kona hugsað sér hvað það muni vera þægilegt. Það má nærri geta hvað kalt er í þessu herbergi þar sem aldrei sér sól. Konan eldar á prímus í glugga- lausri kompu sem er svo lítil að naumast verður komist inn í hana en allt skólp ber hún út í rennu í götunni.“ Ekki er lengra síðan þetta var að líklegt er að einhver af bömum þessara hjóna séu enn á lífi. Slíkar uppeldisaðstæður og niðurlægingin, sem fylgir þeim, leiða oftar en ekki til óreglu og afbrota. Enda sást fátæktin utan á þessum börnum og þau urðu fyrir aðkasti ef þau hópuðu sig ekki saman og reyndu þannig að verja sig. Umkomuleysi og örvænting, sem fylgir slíkum aðstæðum, fær oftast útrás á einhvern hátt. Börnin ná sér niðri á þjóðfélaginu með skemmdarverkum eða óspektum, leggja kannski á hraðan flótta inn í heim brennivíns og annarra nautna, verða byltingarsinnar eða hverfa í athvarf trúarinnar. Þau sterkustu brjótast kannski út úr fátæktinni og komast til auðs og mannvirðinga. En æði mörg verða undir. Grimmd götubarna í Reykjavík langt fram eftir öldinni virðist hafa verið mikil. Grimmdin var þeirra aðferð til þess að ná sér niðri á þjóðfélaginu og jafnframt til að vekja á sér athygli sem annars var af skom- um skammti. Hún kom út í afbrotum, skemmdarverkum, óþvegnu orðbragði og aðsúgi að þeim sem ekki gátu borið hönd fyrir höfuð sér. Reykvísku götubörnin eltu vangefið fólk og aðra lítilmagna með hróp- um og jafnvel grjótkasti. Þannig gátu þau fengið uppbót fyrir eigin vanmetakennd sem skapaðist af aðstæðum þeirra. Fatlað fólk, örvasa gamalmenni og vangefnir einstaklingar áttu stundum ekki sjö dagana sæla. Að því leyti hefur þjóðfélagið meðal annars breyst mjög til hins betra. Slíkt er fátítt nú til dags. Blaðið Ingólfur sagði frá því 24. janúar 1912 að kvöldið áður hefðu orðið mikil ólæti á götum úti svo að sækja varð lög- regluna til að skakka leikinn. Þama voru götustrákar, eins og blaðið nefnir þá, sem höfðu elt tvær konur neðan úr bæ upp Laugaveginn með ópum og óhljóðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.