Heimsmynd - 01.05.1993, Page 94

Heimsmynd - 01.05.1993, Page 94
nokkur börn hafa afvegaleiðst. Lögreglu- stjóri hefur falið barnaverndarnefnd Reykjavíkur mál þetta til þess að ráða ein- hverja bót á því. Nú er henni málið kunn- ara en flestum öðrum. Vegna blaðaskrifa og umtals skal nefndin láta þess getið að yfirsjón barna þessara er ekki hægt að kenna starfsmönnum neinnar sérstakrar skólastofnunar. Umgetin börn eru að því er nefndinni er nú kunnugt úr fjórum skólum borgarinnar. Það er engin nýjung, hvorki hér né annars staðar, þótt einstök börn lifi kynlífi. En kynfærasýki hefur verið fátíð hér fram að þessu.“ Þá sagði ennfremur til skýringar í þessari orðsendingu frá formanni barna- verndarnefndar: „Margt er það sem veldur afvegaleiðslu barnanna. Má þar minna á óhollt félagslíf að kveldlagi, daðurdansa, nætursukk, létt- úðarkvikmyndir, bókmenntir sem fjalla um lauslæti, heimilisóreglu, eftirlitsvöntun og agaleysi á heimilum, í skólum og á götum borgarinnar.“ Skemmdarverk og hvers konar vandalismi voru einnig daglegt brauð. í Morgunblaðsgrein frá því í ágúst 1928 sagði um nokkra spellvirkja: „Unglingar sem temja sér svona framferði eru sannarlega illa upp alinn skríll og svartur blettur á höfuðstað landsins. Þetta skrílsframferði kemur líka víðar fram, það kemur einnig fram í athöfnum. Þessir hópar kærulausra unglinga vaða yfir eignir manna og lóðir, girðingar og hvað sem fyrir er, enda eru þau ekki fá hermdarverkin sem unglingar vinna öðrum til tjóns og skapraunar. Gagnvart þessum ófögnuði standa flestir vamarlausir ... Þessar „Þá klukkan átta um kvöldið byrjuðu Reykyfldngar að safnast saman í hópa á aðalgötunum og bar þar langmest á unglingum á aldrinum tólf til sextán ára. Þó tóku margir fullorðnir þátt í ólátunum.*" skemmdarathafnir fara flestar fram á kvöld- in og þá helst í skjóli rökkursins eða myrkursins ..." I upphafi þessarar greinar var vikið að skemmdarverkum sem framin voru á sum- arbústöðum á þessu ári. Slík verk eru ekki nýlunda á Islandi. Snemma árs 1925 voru til dæmis handteknir tuttugu reykvískir drengir á aldrinum tólf til fjórtán ára gamlir. Þeir höfðu brotið um hundrað rúður í fiskverkunarstöð Hauksfélagsins í Vesturbænum, sagað niður fjölda þvotta- snúrustaura fyrir fólki á svipuðum slóðum og skemmt báta með því að saga í öldu- stokka þeirra. Eitt blaðið sagði að þetta væri svo sem ekki í t'yrsta sinn að smá- strákar stofnuðu með sér glæpamannafélag sem þeir svo kölluðu og þættust miklir menn að. Vorið 1929 upplýstist um þjófnaðarsamtök sjö drengja í Barnaskóla Reykjavíkur á aldrinum sjö til fimmtán ára. Með- gengu þeir um tuttugu þjófnaði. Aðferð þeirra var sú að fara suður í Hafnarfjörð í leigubíl og koma þangað um messutímann þegar margt fólk var í kirkju. Þeir þóttust vera blaðasalar og gengu með einhver blöð og pésa í hús. Ef enginn var heima fóru þeir inn og stálu peningum og hlutum sem þeir álitu að þeir gætu komið í verð. Flestir íbúðir voru hafðar ólæstar í Hafnarfirði á þeim árum, þó að enginn væri heima, en þar sem læst var opnuðu drengirnir íbúðirnar með þjófalykli. I blaðafrétt um þetta félag sagði að þjófn- aður og rupl meðal barna væri miklu algengara í Reykjavík en flesta grunaði. Lögreglustjórinn upplýsti að árlega kæmist upp að börn og unglingar hefðu með sér slíkan félagsskap. Hann var spurður af hverju börnin leiddust inn á þessa braut: „Þeir (peningarnir) fara svo tii allir í bíóin og fyrir sælgæti. Vera ^kann að eitthvað fari þó blátt áfram fyrir mat - börnin steli ^meðal annars af því að þau eru svöng - og er það vitanlega hörmulegast." Innibyrgð gremja kvegna fátæktar og at- i vinnuleysis fékk einnig \ útrás í óeirðum og , skrílslátum á götum k bæjarins. Á kreppu- ^árunum var það .reglulegur við- burður við ýmis tækifæri og ekki síst á gamlárskvöld. Þar voru unglingar fremstir í flokki. Sem dæmi um „venjulegt“, jafnvel fremur rólegt gamlárskvöld má taka árið 1935. Þá klukkan átta um kvöldið byrjuðu Reykvíkingar að safnast saman í hópa á aðalgötunum og bar þar langmest á unglingum á aldrinum tólf til sextán ára. Þó tóku margir fullorðnir þátt í ólátunum. Víða reyndu unglingar að kveikja bál og höfðu safnað saman kassarusli sem uppkveikju. Stærstu kestirnir voru á Austurvelli, hjá Fríkirkjunni og við Menntaskólann. Lögreglunni tókst þó að koma í veg fyrir að bál yrði kveikt. Einnig var reynt að kveikja í jólatré Hjálpræðis- hersins á Austurvelli, en lögreglan greip til þess ráðs að taka það og fara með það á lögregluvarðstofuna í Pósthússtræti. Múg- urinn elti og safnaðist saman í hóp fyrir framan stöðina. Nokkrir unglingar sóttu steina niður í fjöru og létu rigna á lögreglu- stöðina. Brotnuðu sex rúður í húsinu. Lög- reglan kom þá á vettvang og ruddi Póst- hússtrætið og stöðvaði alla umferð gang- andi manna um þær götur sem liggja að lögreglustöðinni. Svo að segja alla nóttina var lögreglan á þönum á eftir óeirðaseggj- unum, við að koma á reglu og þá sér- staklega við að aðstoða fólk vegna yfirgangs þeirra. ^^^pphlaup vandræðaungl- inga voru vaxtarverkir hins nýja borgarsamfél- ags á íslandi og þeirrar fátæktar sem ríkti í ■ Reykjavík. Sómakærir M sveitamenn skildu þetta ástand ekki og fordómar gagnvart borginni voru miklir. Á íslandi hafði verið bændaþjóðfélag í þúsund ár og hinn öri vöxtur kaupstaða var sveitafólkinu þymir í augum. Spillingin í Reykjavík var talin sönnun þeirrar öfugþróunar sem orðin var. Það var skoðun margra bænda og talsmanna þeirra að fólk úrkynjaðist í þéttbýli. Fólk yrði þar að hálfgerðum skepnum og missti allt samband við íslenska menningu og íslenska náttúru. Um þessa skoðun eru óteljandi dæmi í blöðum og ekki síst barnabókum. Þannig hófst til dæmis grein í Morgunblaðinu 11. nóvember 1923: „í augum margra Islendinga, ekki síst út um land, er Reykjavík að verða eins konar Sódóma þar sem framdir eru alls konar glæpir og léttúð og siðleysi skipa önd- vegi.“ Þegar höfundur þessarar greinar var við nám í Austurbæjarskólanum á sjötta ára-

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.