Fréttablaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 18
M18 FUEL™ skilar ai til að
saga á við bestu bensínknúnu
keðjusagirnar.
POWESTATE™ mótor.
REDLINK PLUS™ yrálagsvörn.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðuker
sem virkar með öllum
Milwaukee ® M12™ rafhlöðum.
M18 FCHS
Alvöru keðjusög
frá Milwaukee
vfs.is
FÓTBOLTI Landsliðskonan Fanndís
Friðriksdóttir skoraði á dögunum
fyrsta mark sitt fyrir Adelaide
United í áströlsku kvennadeildinni
þar sem hún leikur við hlið Gunn-
hildar Yrsu Jónsdóttur. Fanndís
jafnaði metin skömmu eftir að hafa
komið inn á sem varamaður í 3-2
sigri Adelaide sem hefur unnið tvo
leiki í röð og er með fimmtán stig
eftir átta leiki í baráttunni um sæti í
úrslitakeppninni.
Þrátt fyrir að fjórar umferðir
séu eftir er Adelaide búið að bæta
stigamet félagsins í efstu deild.
Liðið hefur aldrei komist í úrslita-
keppnina, mest náð fjórtán stigum
og lenti í neðsta sæti í fyrra en með
íslensku landsliðskonurnar innan-
borðs hefur gengi liðsins snúist
við. Eftir átta umferðir er Adelaide
aðeins stigi frá toppsætinu og hefur
aðeins tapað einum leik.
Aðspurð sagði Fanndís að árang-
urinn hefði verið betri en hún bjóst
við.
„Þetta er búið að ganga framar
vonum miðað við styrkleika lið-
anna í deildinni. Markmiðið var að
gera betur en í fyrra þegar liðið lenti
í neðsta sæti og þegar stutt er eftir
eigum við möguleika á að komast
í úrslitakeppnina,“ sagði Fanndís
þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til
hennar í Ástralíu.
Íslensku leikmennirnir eru komn-
ir í leiðtogahlutverk.
„Við Gunnhildur höfum reynt að
segja þeim að allt sé hægt, þetta er
ungt lið og við höfum verið að vinna
í hugarfarinu með þeim. Þær voru
kannski aðeins of varasamar en við
finnum að andinn er orðinn betri.
Það smitast út og við förum í alla
leiki til að vinna þá sem skilar betri
frammistöðu og úrslitum.“
Fanndís kann Gunnhildi bestu
þakkir en Gunnhildur mælti með
liðsfélaga sínum hjá landsliðinu
þegar forráðamenn Adelaide voru
að leita eftir sóknarsinnuðum leik-
manni.
„Ég verð að þakka henni, hún
samdi við félagið þegar þjálfarinn
spurði um framliggjandi leikmann.
Ég var svo heppin að vera efst á blaði
hjá henni,“ sagði Fanndís hlæjandi.
Fagmennskan í deildinni og
umgjörðin heillar Fanndísi sem
hefur einnig leikið í Noregi, Frakk-
landi og á Íslandi.
„Þetta er sterkari deild en bæði
Pepsi-deildin og sú norska en
stærstu liðin í Frakklandi, PSG og
Lyon eru sterkari. Það er mikil fag-
mennska hérna, meiri en ég bjóst
við og öll umgjörðin er frábær. Það
koma frábærir leikmenn á láni frá
Bandaríkjunum sem gerir þessa
deild skemmtilega,“ sagði Fanndís
sem gæti hugsað sér að koma aftur.
„Leikjadagskráin hér passar full-
komlega fyrir bandarísku deildina
og þær skandinavísku. Ég kaus að
taka undirbúningstímabilið hér
í sól og blíðu sem er talsvert betra
en íslenski veturinn ef ég á að vera
hreinskilin. Ég er alveg í skýjunum
yfir að hafa stokkið á þetta því þetta
gæti verið einstakt tækifæri. Ég
myndi hiklaust mæla með þessu,“
sagði Fanndís og hélt áfram:
„Liðin hérna horfa mikið til
Bandaríkjanna en þau verða
kannski opnari fyrir Íslandi núna
eftir að hafa séð okkur Gunnhildi
leika þótt liðin megi bara vera með
fjóra erlenda leikmenn.“
Þrátt fyrir að vera að lifa atvinnu-
mannsdrauminn hinum megin á
hnettinum stefnir hún á að koma
aftur í Pepsi-deildina og leika með
Val í sumar.
„Þetta er ævintýri sem tekur sinn
enda, ég er á lánssamningi og ég
mun snúa aftur í Val þegar tímabil-
inu lýkur hér. Mér finnst gaman að
spila í Pepsi-deildinni og næ núna
öllu tímabilinu eftir að hafa komið
inn um mitt tímabil í fyrra. Þegar ég
var í Frakklandi fann ég að ég vildi
koma heim og spila í íslensku deild-
inni svo að ég er spennt að koma
aftur,“ sagði hún glaðbeitt að lokum.
kristinnpall@frettabladid.is
Opnum vonandi dyrnar fyrir
íslenska leikmenn í Ástralíu
Landsliðskonurnar Fanndís Friðriksdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hafa gert það gott með liði Adel
aide United í Ástralíu sem er búið að bæta stigamet félagsins þegar fjórar umferðir eru eftir. Fanndís virtist
afar sátt með að hafa tekið tilboði ástralska félagsins í stað þess að taka undirbúningstímabilið á Íslandi.
Fanndís, hér í leik gegn Tékklandi í undankeppni HM, nálgast hundrað leiki fyrir Íslands hönd. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Liðin hérna horfa
mikið til Banda-
ríkjanna en þau verða
kannski opnari fyrir Íslandi
eftir að hafa séð okkur spila.
Fanndís Friðriksdóttir
FÓTBOLTI Það var staðfest í gær að
Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári
Guðjohnsen myndu taka við U21
árs liði Íslands í karlaflokki af Eyj-
ólfi Sverrissyni. Arnar Þór og Eiður
Smári, fyrrverandi herbergisfélagar
þegar þeir léku með A-landsliðinu
skrifuðu undir tveggja ára samning
sem gildir út næstu undankeppni
EM sem lýkur í nóvember 2020.
Þetta verður fyrsta þjálfarastarf
Eiðs Smára en Arnar hefur unnið
fyrir Lokeren og Club Brugge
undan farin ár ásamt því að aðstoða
A-landsliðið við að leikgreina Belga
í haust.
„Þetta skref kom aðeins fyrr en ég
átti von á en ég þurfti ekki langan
tíma til að hugsa um þetta þegar til-
boðið kom. Við Arnar þekkjumst
vel, innan sem utan vallar, og hann
er einn af fáum mönnum sem ég
hefði farið með í þetta verkefni,“
sagði Eiður Smári. Arnar mun áfram
vinna hjá Lokeren en tók því fagn-
andi að vinna með íslenska liðið.
„Ég verð áfram hjá Lokeren út
þetta tímabil hið minnsta, við
munum spila þetta eftir hendinni
næstu mánuðina en ég mun fylgjast
vandlega með þeim leikmönnum
sem eru úti. Ég er miðsvæðis og get
því farið víða og Eiður getur fylgst
betur með hérna heima. Næstu
mánuðirnir fara í að skoða vand-
lega leikmenn þar sem við höfum
góðan tíma fyrir fyrsta keppnis-
leikinn.“ – kpt
Tók ekki langan tíma að hugsa þetta
Eiður Smári, Arnar Þór og Guðni Bergsson, formaður KSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Jón Þór Hauksson, þjálfari
íslenska kvennalandsliðsins í fót-
bolta, tilkynnti í gær 23 manna hóp
fyrir fyrsta leik sinn með liðið, gegn
Skotlandi á La Manga 21. janúar
næstkomandi. Tveir leikmenn í
hópnum hafa ekki leikið A-lands-
leik; markvörðurinn Bryndís Lára
Hrafnkelsdóttir og miðjumaðurinn
Alexandra Jóhannsdóttir.
„Það er komin eftirvænting og
við getum ekki beðið eftir því að
byrja þetta saman. Það er komið
stórt mengi af leikmönnum sem við
erum sífellt að skoða í ljósi þróunar
kvennaknattspyrnu á Íslandi og við
erum spenntir að hitta liðið,“ sagði
Jón Þór í samtali við Fréttablaðið.
„Það eru stórir karakterar innan
hópsins, reynslumiklir leiðtogar
sem hjálpa yngri leikmönnum liðs-
ins því það er mikill hugur í liðinu.“
Dagný Brynjarsdóttir og Guð-
björg Gunnarsdóttir eru báðar fjar-
verandi þar sem þær eru í endur-
hæfingu eftir meiðsli en allar aðrar
eru klárar í slaginn. „Það eru auð-
vitað margar sem eru ekki að spila
þessa dagana en heilt yfir er standið
á hópnum gott og lítið um meiðsli.“
Eftirtaldir leikmenn skipa
íslenska hópinn: Sonný Lára Þráins-
dóttir, Sandra Sigurðardóttir, Bryn-
dís Lára Hrafnkelsdóttir, Anna Rakel
Pétursdóttir, Guðrún Arnardóttir,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Elísa
Viðarsdóttir, Anna Björk Kristjáns-
dóttir, Glódís Perla Viggósdóttir,
Sif Atladóttir, Hallbera Guðný
Gísladóttir, Sara Björk Gunnars-
dóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir,
Sigríður Lára Garðarsdóttir, Selma
Sól Magnúsdóttir, Andrea Rán
Hauksdóttir, Alexandra Jóhanns-
dóttir, Fanndís Friðriksdóttir, Rakel
Hönnudóttir, Elín Metta Jensen,
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Agla
María Albertsdóttir og Svava Rós
Guðmundsdóttir. – kpt
Guðbjörg og
Dagný ekki með
Jón Þór ásamt aðstoðarmanni
sínum, Ian Jeffs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT