Fréttablaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 69
til sín og í Taílandi er afar góður
matur. Phuket-eyja er ákaflega vin-
sæll staður að heimsækja. Phuket
er stærsta eyja Taílands og býður
upp á gríðarlega fallegar strendur
og stórbrotið umhverfi. Jafnframt
er upplifun að koma til Bangkok
en þangað er tæplega tíu klukku-
stunda flug frá til dæmis Helsinki.
Víetnam er áhugaverður kostur.
Þar liggur mikil saga og áhugavert
að hlusta á þarlenda fararstjóra
segja frá sinni hlið á sögunni.
Meðalaldur í Víetnam er ekki hár
þar sem stór hluti þjóðarinnar féll
í stríðinu. Enn eru margir akrar
í Víetnam eitraðir eftir þennan
hörmulega tíma. Margt framandi
er að sjá í Víetnam. Ha Long-flói
er ótrúlegur staður og einstak-
lega áhugavert að sigla þar um á
milli fallegra kletta. Ha Long-flói
hefur komið við sögu í mörgum
bíómyndum, meðal annars James
Bond. Ha Long er ekki langt frá
Hanoí.
Um Karíbahafið
Karíbahafið er vissulega áhugavert.
Þar eru margar fallegar eyjar til
að heimsækja yfir vetrartímann.
Barbados eða Bahamaeyjar. Eða
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Flestir Íslendingar fara til Tenerife eða Gran Kanarí yfir vetrartímann. Þar er eigin-
lega alltaf sól og gott veður. Þótt
Tenerife sé langvinsælasti staðurinn
af Kanaríeyjunum þá væri alveg
gaman að prófa nýjan stað. Hvað
með Lanzarote eða Fuerteventura?
Eða dvelja í borg á þessum eyjum,
Las Palmas á Gran Kanarí eða Santa
Cruz á Tenerife? Í janúar er meðal-
hiti í þessum borgum 17 stig en
heit sólin eykur hitann enn frekar.
Það er þægilegt veðurfar til göngu-
ferða og útiveru. Það tekur um það
bil fimm og hálfa klukkustund að
fljúga til Kanaríeyja frá Íslandi.
Það má vel nefna Máritíus sem
er gríðarlega falleg eyja ekki langt
frá Madagaskar. Eyjan er í Ind-
landshafi úti fyrir suðausturströnd
Afríku. Grænhöfðaeyjar eru líka
spennandi kostur fyrir þá sem vilja
fara á nýjan stað og njóta sólar.
Margt spennandi í boði
Flórída er annar kostur. Þar er
hlýtt og notalegt. Meðalhitinn í
Miami í desember er 20,6 gráður
en algengur hiti er 24,8 gráður. Það
er hægt að velja um marga frábæra
staði á Flórída til að heimsækja.
Orlando þar sem hinn vinsæli
ævintýragarður Disney World er.
Margir fara til Tampa, St. Peters-
borg eða Fort Lauderdale. Þægi-
legast er að hafa bíl til umráða í
Flórída. Það er rúmlega átta stunda
flug til Flórída.
Ástralía er sömuleiðis kostur.
Þar er sumar og sól en sumarmán-
uðir eru frá desember til febrúar.
Meðalhiti getur farið upp í 25
gráður og jafnvel meira í janúar.
Þann 26. janúar er þjóðhátíðar-
dagur Ástrala og mikið um að vera
alls staðar. Sydney hefur upp á
margt skemmtilegt að bjóða. Ekki
er beint flug frá borgum í Evrópu
til Sydney en hægt að millilenda í
Singapore sem er reyndar ákaflega
skemmtileg borg að heimsækja.
Taíland eða Víetnam
Hvernig væri að finna sólina í
Taílandi? Það er reyndar uppá-
haldsstaður margra Íslendinga sem
fara þangað ár eftir ár þrátt fyrir
langt flug. Það er þurrkatímabil í
Taílandi frá desember fram í apríl.
Fallegar strendur draga marga
Viltu finna sólina í vetur?
Nú þegar einn lengsti mánuður ársins er genginn í garð eru væntanlega margir sem sakna hlýju,
birtu og sólar. Vetrarfrí styttir biðina til sumarsins og það eru allmargir staðir að velja um.
Phuket í Taílandi
er uppáhalds-
staður margra
Íslendinga.
Ha Long-flói í
Víetnam er ein-
stakur staður
að heimsækja.
Boðið er upp
á siglingu um-
hverfis kletta og
smáeyjar.
Margir velja að fara aftur og aftur til Tenerife yfir vetrartímann í stað þess að
leggja í ævintýri í framandi löndum. Tenerife er góður staður fyrir afslöppun.
heimsækja nokkrar eyjar í einni
ferð með skemmtiferðaskipi. Þá er
að vísu stutt stopp á hverjum stað.
Mexíkó gæti líka verið ákaflega
spennandi áfangastaður.
Margir staðir koma til greina yfir
vetrartímann þar sem sólina er að
finna. Allt eftir því hvað fólk vill
eyða miklum peningum í ferðina
eða hverju það er að sækjast eftir.
Brasilía væri örugglega áhuga-
verður staður fyrir marga á meðan
aðrir kjósa að fara alltaf á sama
staðinn, til dæmis Tenerife.
Ef maður er ekki að hugsa um
sólina þá er hægt að skreppa í
borgarferð og gera góð kaup á
útsölum í janúar. Ofarlega á lista
eru Barcelona, Berlín, Kaupmanna-
höfn, París, London, New York
eða Boston. Það er kalt í mörgum
þessara borga yfir vetrartímann og
þess vegna nauðsynlegt að klæða
sig vel sé haldið þangað.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
VEGANÚAR
Föstudaginn 11. janúar gefur Fréttablaðið út sérblaðið Veganúar.
Markmið veganúar er að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða
og kynna kosti vegan fæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Arnar Magnússon
Sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins
arnarm@frettabladid.is Sími: 550 5652
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R