Fréttablaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 32
Við stofnun Concept Events í upphafi árs 2017 lögðu þær Sandra Ýr Dungal og
Dagmar Haraldsdóttir saman ára-
tuga reynslu sína í framkvæmd og
hönnun viðburða en báðar höfðu
þær mikla reynslu úr viðburða-,
ráðstefnu- og ferðageiranum. „Við
leggjum fyrst og fremst áherslu
á viðburði, eins og árshátíðir,
galaveislur, starfsmannafagnaði,
hvataferðir og minni fundi og
ráðstefnur. Þá höfum við séð um
framkvæmd borgarhátíða eins og
Hátíðar hafsins í Reykjavík síðan
árið 2012 auk þess sem við sjáum
um sjónvarpsviðburðinn Íslensku
tónlistarverðlaunin sem haldinn er
árlega í beinni útsendingu á RÚV,“
segir Sandra Ýr.
Dagmar segir helstu viðskiptavini
þeirra vera fyrirtæki og stofnanir
auk erlendra viðburðafyrirtækja.
„Við vinnum líka fyrir íslenskar
ferðaskrifstofur sem skipuleggja
ferðir fyrir erlenda lúxushópa
hingað til Íslands. Þá erum við
fengnar til að halda utan um veislur
þar sem krafist er þeirrar þjónustu
sem við bjóðum upp á.“
Auk Dagmarar og Söndru eru
fastir starfsmenn Concept Events
þær Alexandra Eir Andrésdóttir
og Sandra Vignisdóttir. Fyrirtækið
hefur líka á að skipa stórum og
traustum hópi verktaka, sem þær
hafa unnið með til fjölda ára, hver
og einn sérhæfður á sínu sviði.
Skipulag og hugmyndaauðgi
Þær segja gott skipulag og hug-
myndaauðgi vera það sem helst
þurfi til að skapa vel heppnaða
viðburði. „Hver viðburður þarf
að vera einstakur á sinn hátt og
við nálgumst viðburðastjórn
Hver viðburður er einstakur
Á bak við Concept Events er áratuga reynsla starfsmanna fyrirtækisins af hönnun og framkvæmd
ýmissa viðburða á borð við árshátíðir, gala veislur, starfsmannafagnaði og hvataferðir.
Dagmar Haraldsdóttir (t.v.) og Sandra Ýr Dungal, eigendur Concept Events.
Frá Sjómannadeginum við HB Granda og Hátíð hafsins í Reykjavík.
okkar með það í huga. Við segjum
stundum við viðskiptavini okkar
að við skipuleggjum ekki bara við-
burði – við sköpum þá. Við elskum
það sem við gerum og hefur það
bein áhrif á viðburðina sem við
framkvæmum. Þegar tekist er á við
verkefnin með jákvæðu hugarfari
þá skilar það sér í betra verki,“
segir Sandra Ýr.
„Saman höfum við mikla reynslu
og við vitum svo sannarlega hvað
við erum að gera. Þar sem við
nálgumst líka hvern viðburð eins
og hann væri okkar eigin, geta við-
skiptavinir okkar treyst því að við-
burður þeirra verði vel heppnaður.
Við fylgjum öllum viðburðum
okkar eftir alla leið og erum með
augun á hverju smáatriði og
reynum að tryggja að allir skemmti
sér sem best. Þá förum við glaðar
heim og markmiðinu er náð,“
bætir Dagmar við.
Spennandi ár
Árið fram undan er spenn-
andi að þeirra sögn. Þær segjast
vera komnar með fullt af nýjum
hugmyndum að þemum, litum,
atriðum og öðru sem þær hlakka
til að kynna fyrir viðskiptavinum
sínum. „Við leggjum mikla áherslu
á að fylgjast með straumum og
stefnum, ekki bara í viðburða-
iðnaðinum erlendis, heldur einnig
í tísku, kvikmyndum og hönnun
sem dæmi. Það gefur okkur inn-
blástur til að skapa frumlega og
skemmtilega umgjörð í kringum
viðburðina. Okkar markmið er
alltaf að fara fram úr væntingum
viðskiptavinarins. Þetta er einfald-
lega ástríða okkar.“
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 RÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐIR