Fréttablaðið - 19.01.2019, Side 2
Veður
Víða rigning eða slydda fyrri part
dags, einkum vestan til, en snýst í
suðvestan 5-13 með éljum síðdegis,
fyrst vestast. Hiti 0 til 5 stig sunnan-
og vestanlands, en annars frost 1 til
7 stig. Yfirleitt vægt frost í kvöld.
SJÁ SÍÐU 44
Spegilslétt tjörn
Ölduhæðin var ekki mikil þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið fram hjá Reykjavíkurtjörn. Tjörnin var fallega spegilslétt í þessu sæmilegasta
veðri sem lék við höfuðborgarbúa í gær. Veðurstofa spáir rigningu og slyddu í borginni í dag en ágætu veðri fyrripartinn á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Prótínríkt og gott
hvenær sem er!
MENNING Ákvörðun hefur verið
tekin um að fjarlægja alfarið nektar
málverk eftir Gunnlaug Blöndal
af veggjum Seðlabanka Íslands.
Verkin hafa verið sett í geymslu um
ókomna tíð eftir að gerð var athuga
semd við hina ósæmilegu nekt.
Fréttablaðið fjallaði um það síð
astliðið sumar að til skoðunar væri
með hvaða hætti ætti að bregðast
við kvörtun starfsmanns sem var
misboðið af málverkunum sem
innihalda nekt. Fréttin vakti verð
skuldaða athygli og sitt sýndist
hverjum. Nú liggur fyrir niðurstaða
þessarar skoðunar og var hún að
myndirnar skyldu fjúka.
„Ákveðið var að þessi málverk
yrðu ekki á almennum vinnu
svæðum eða á skrifstofum yfir
manna, þ.e. á þeim svæðum þar
sem almennir starfsmenn vinna
eða þurfa að leita með erindi,“ segir
Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri
Seðlabanka Íslands, í skriflegu svari
við fyrirspurn blaðsins um lyktir
málsins.
Í Seðlabanka Íslands er að finna
nokkurt safn klassískra myndlistar
verka eftir meðal annars marga af
meisturum íslenskrar málaralistar.
Á einhverjum þeirra, nánar tiltekið
myndum eftir Gunnlaug Blöndal, er
að finna nekt. Líkt og Fréttablaðið
greindi frá í júní gerði starfsmaður
athugasemd við myndirnar, taldi
þær ósæmilegar og fór fram á að
þær yrðu fjarlægðar. Kvörtunin kom
í kjölfar mikillar MeTooumræðu í
þjóðfélaginu og var hún tekin föst
um tökum af stjórnendum bankans
sem settu málið í ferli til að ákveða
örlög nektarverkanna.
Ljóst er að listunnendur munu
margir súpa hveljur yfir morgun
kaffinu í dag yfir svörum Stefáns
Jóhanns.
„Þau eru um þessar mundir í
geymslu og ekki hefur verið tekin
ákvörðun um aðra notkun þeirra.“
Listamaðurinn og prófessorinn,
Guðmundur Oddur Magnússon, oft
kallaður Goddur, gagnrýnir það sem
hann kallar púrítanastefnu Seðla
bankans í þessu máli.
„Þá mætti alveg eins pakka hálfri
listasögunni ofan í geymslu. Manns
líkaminn, bæði karla og kvenna,
hefur lengi verið viðfangsefni
listamanna,“ segir Goddur og fer á
flug. Hann viti til þess að það séu
styttur af berum karlmanni eftir
Bertel Thorvaldsen í borginni, fullt
af brjóstum í verkum Ásmundar
Sveinssonar líka.
„Það þarf aldeilis að taka hér til.
Við þurfum að gerast aftur alvöru
púritanar og fara með hálft lista
safn þjóðarinnar og allra þjóða
og læsa það í geymslum! Ég styð
púrítanisma. Lengi hann lifi!“ segir
listspekúlantinn kaldhæðinn að
lokum. mikael@frettabladid.is
Nektarlist í Seðlabanka
komið fyrir í geymslu
Eftir skoðun innan Seðlabankans varð niðurstaða stjórnenda sú að málverk
sem innihalda nekt eftir Gunnlaug Blöndal skuli fjarlægð úr almennum vinnu-
svæðum og skrifstofum yfirmanna. Sett í geymslu þar til annað er ákveðið.
KJARAMÁL „Þetta er algjört auka
atriði og skiptir engu máli en það
virðist hafa verið ógurlegur titringur
hjá SA út af þessu,“ segir Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðsfélags
Akraness (VLFA), um fjölda félags
manna sinna sem heyri undir kjara
viðræðurnar við SA.
Ríkissáttasemjari kallaði eftir
fjölda félagsmanna sem samning
arnir ná til frá stéttarfélögunum.
Samkvæmt upphaflegu svari VLFA
voru félagsmenn alls 2.509 en sam
kvæmt leiðréttu svari eru þeir 1.102.
„Ég sendi tölvupóst á SA og sagði
að ef þetta væri nú það sem SA
hefðu mestar áhyggjur af þá væru
áhyggjurnar sem við þyrftum að
hafa ekki miklar.“
Vilhjálmur segir að vegna mis
skilnings hafi verið tekinn saman
listi þar sem einnig var að finna
félagsmenn sem heyra undir sér
kjarasamninga. Stærstur hluti þeirra
starfar í stóriðju á Grundartanga.
„Það fór vitlaus tala til Ríkissátta
semjara en ég er búinn að leiðrétta
það. Við erum aldrei að spá í þetta
fyrr en við þurfum að láta kjósa um
verkfall eða samning. Þetta hefur
aldrei verið gert á meðan viðræður
eru í gangi þannig að þetta eru ný
vinnubrögð hjá sáttasemjara.“
Vilhjálmur vill á móti vita hversu
mörg fyrirtæki eigi aðild að SA.
„Ég ætla að senda erindi og spyrja
að því hvað það séu mörg fyrir
tæki sem tengjast SA
á mínu félagssvæði.
Við höfum ekki hug
mynd um það hvort
fyrirtæki sem félags
menn okkar vinna
hjá tilheyra SA
eða ekki. Ég kalla
e f t i r þ e ssu m
upplýsingum og
að þetta verði
greint niður á
félagssvæði.“
– sar
Fækkaði um
1.400 hjá VLFA
Þau eru um þessar
mundir í geymslu
og ekki hefur verið tekin
ákvörðun um aðra notkun
þeirra.
Stefán Jóhann
Stefánsson,
ritstjóri Seðla-
banka Íslands
Seðlabankinn á mikið málverkasafn en nekt líkt og á meðfylgjandi mynd eftir
Gunnlaug Blöndal fær ekki að prýða veggi bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Vilhjálmur
Birgisson.
VIÐSKIPTI Stefnt er að því að viðræður
um kaup Indigo Partners á 49 pró
sentum í WOW air klárist í febrúar.
Þetta segir Skúli Mogensen forstjóri.
Þeir fjárfestar sem tóku þátt í
skuldabréfaútboði WOW í fyrra og
eignuðust þannig kauprétti að hluta
bréfum í félaginu hafa samþykkt að
falla frá kaupréttunum, samkvæmt
tilkynningu frá WOW air í gær.
Niðurfelling umræddra kauprétta,
sem samið var um í 60 milljóna dala
skuldabréfaútboði flugfélagsins sem
lauk í september í fyrra, er skilyrði
þess að fjárfesting bandaríska félags
ins Indigo Partners í WOW air gangi
eftir. – þea / kij
Stefna á að klára
fyrir lok febrúar
Skúli
Mogensen.
1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð