Fréttablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 2
Veður
Gengur í norðaustan 10-18 m/s
í dag, en að mestu hægari S- og
SA-lands. Víða rigning og snjókoma
til fjalla, jafnvel talsverð úrkoma
á köflum um landið NA-vert. Bjart
með köflum SV-til. SJÁ SÍÐU 34
Perry á Íslandi
SAMFÉLAG „Þetta verkefni er unnið
í sjálf boðaliðavinnu eins og allt
annað starf Kiwanis,“ segir Gylfi
Ing varsson, formaður K-dags-
nefndar Kiwanis. „Við erum ekki
með neina launaða sölumenn þann-
ig að allt söfnunarfé fer til styrktar
verkefninu,“ bætir hann við.
„Við höfum gert þetta fimmtán
sinnum á síðastliðnum 45 árum
og uppreiknað eru þetta trúlega
um eða yfir 300 milljónir sem við
höfum safnað,“ segir Gylfi.
Kiwanishreyfingin hefur í gegn-
um tíðina veitt styrki til ýmissa
málefna sem öll tengjast geðvernd
á einhvern hátt. Í ár hlutu Barna- og
unglingageðdeild og Píeta samtökin
hvort um sig 10 milljóna króna styrk
frá Kiwanis. Styrkurinn er ágóði
af sölu K-lykilsins sem seldur er á
þriggja ára fresti. „Við völdum þessi
tvö málefni núna og við gerðum það
líka árið 2016,“ segir Gylfi.
„BUGL hefur langoftast fengið
styrk frá okkur en markmið Kiw-
anishreyfingarinnar er „Hjálpum
börnum heimsins“ og þar passar
BUGL vel inn,“ segir Gylfi.
„Árið 2016 vorum við svo að
kynna okkur starfsemi í kringum
geðræn vandamál og funduðum
með Píeta samtökunum sem voru
þá rétt að byrja hér á landi. Þegar
þau kynntu fyrir okkur starfsemi
sína fannst okkur hún bæði mikil-
væg og áhugaverð,“ segir hann.
„Við ákváðum að styrkja Píeta
þrátt fyrir að samtökin væru ný af
nálinni og það gæti verið áskorun.
Þau sögðu okkur svo síðar að
styrkurinn frá okkur hefði verið
hvatning og viðurkenning til þess
að halda áfram,“ segir Gylfi. „Þau
voru svo ánægð að þau spurðu hvort
þau mættu knúsa okkur, það voru
viðbrögðin, alveg frábært,“ bætir
hann við glaður í bragði.
Gylfi segir allar líkur á því að farið
verði aftur í verkefnið að þremur
árum liðnum og vonast hann til
þess að enn sem áður verði safnað
til styrktar geðvernd á Íslandi.
„Landsmenn hafa tekið mjög vel
í verkefnið og það er ekkert mál
að selja lykilinn. Það er frábært að
geta styrkt samtök í geðvernd hér
á landi og svo hefur þetta bæði ýtt
undir opnari umræðu um geðheil-
brigðismál og hvatt f leiri fyrirtæki
og félagasamtök til þess að styrkja
málaflokkinn,“ segir Gylfi og bætir
við að Kiwanishreyfingin þakki
landsmönnum stuðninginn.
birnadrofn@frettabladid.is
Tugmilljóna styrkir
Kiwanis til geðverndar
Kiwanishreyfingin gaf á dögunum 20 milljónir til styrktar geðheilbrigðis-
málum. BUGL hlaut 10 milljóna króna styrk og Píeta samtökin einnig. Verk-
efnið er kallað K-dagurinn og fer fram sem sala á K-lyklinum um land allt.
Barna- og unglingageðdeild hlaut 10 milljónir í styrk frá Kiwanis.
HEILBRIGÐISMÁL Kallað var á prest
til að vera viðstaddur starfsmanna-
fund á Reykjalundi nýverið eftir að
Birgi Gunnarsyni, forstjóra Reykja-
lundar til 12 ára, var sagt upp. Ekki
er búið að auglýsa stöðu nýs for-
stjóra.
„Hann var þarna sem sálgætir.
Það var ákveðið að kalla til einstak-
ling sem hefur mikla reynslu í því að
ræða við fólk þegar upp koma atvik,
sem setja sorg í fólk,“ segir Sveinn
Guðmundsson, stjórnarformaður
samtakanna SÍBS.
Viðmælendur Fréttablaðsins
innan Reykjalundar segja ástand-
ið viðkvæmt og að starfsfólki líði
mörgu hverju illa. Andrúmsloftið
hafi verið þungt í nokkurn tíma
áður en Birgi var sagt upp.
Það skánaði ekki þegar Magnúsi
Ólafssyni, forstöðumanni lækninga
á Reykjalundi, var sagt upp seinni-
partinn í gær. Fundað verður með
starfsmönnum í dag . – ab
Prestur sat fund
á Reykjalundi
ALVÖRU MATUR
Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM
+PLÚS
Rick Perry, orkumálaráðherra Bandaríkjanna og fyrrverandi ríkisstjóri Texas, heimsótti höfuðstöðvar HS Orku í Svartsengi eftir
hádegi í gær og ræddi við Finn Beck forstjóra. Perry er ræðumaður á ráðstefnunni Arctic Circle sem hefst í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Landsmenn hafa
tekið mjög vel í
verkefnið og það er ekkert
mál að selja lykilinn.
Gylfi Ingvarsson, formaður
K-dagsnefndar Kiwanis
VIÐSKIPTI Afskornir túlípanar eru
ófáanlegir á Íslandi þessa dagana.
Það þarf þó ekki að koma að öllu
leyti á óvart því innlendir framleið-
endur geta bara boðið upp á þessi
vinsælu blóm frá desembermánuði
til páska. Þessu vilja blómaheild-
salar breyta og vilja ólmir f lytja
inn túlípana þaðan sem framboðið
er nægt allt árið um kring. Það sem
hamlar þó innflutningi eru gríðar-
lega háir tollar á vöruna.
Félag atvinnurekenda hefur sent
ráðgjafarnefnd um inn- og útflutn-
ing landbúnaðarvara erindi þar sem
farið er fram á að hinir háu tollar
verði felldir niður. „Tollurinn er
gríðarlega hár. Verðtollur er 30 pró-
sent og auk þess er 95 króna stykkja-
tollur á hvert blóm. Tíu túlípana
búnt, sem kostar 600 krónur í inn-
kaupum, fær því á sig 1.130 krónur
í toll, þannig að innkaupsverðið
hartnær þrefaldast. Þessi skattlagn-
ing er að mati FA ekki forsvaranleg
gagnvart neytendum,“ segir Ólafur
Stephensen, framkvæmdastjóri
samtakanna.
Blómasalar eru á því að talsverð
eftirspurn sé eftir túlípönum allt
árið um kring en þó virðist ekki
einhugur um hvort þörf sé á inn-
flutningi. „Mér finnst bara hið besta
mál að sum blóm séu bara fáanleg
yfir eitthvað tímabil. Það er nóg af
öðrum fallegum blómum til,“ segir
Sigríður Gunnarsdóttir, blómasali
í 18 rauðum rósum í Kópavogi. – bþ
Vilja vinna bug
á túlípanaskorti
Túlípanarnir eftirsóttu eru ófáan-
legir á Íslandi sem stendur.
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð