Fréttablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 20
Í Lónsöræfum við austurjaðar Vatnajökuls eru margar spennandi gönguleiðir og tindar. Einn þeirra er 1.319 m hár og að því er virðist sak-leysislegur, Sauðhamarstindur. Af tindinum er stórkostlegt útsýni yfir Lónsöræfin eins og þau leggja sig, austur að Horni og Jökulgilstindum
en líka yfir Vatnajökul og Snæfell. Gönguleiðin upp
Sauðhamarstind er hins vegar snúnari en virðist í
fyrstu og má líkja við völundarhús þar sem aðeins ein
greiðfær leið er í boði. Þessi úlfur í sauðagæru ætti þó
að vera á færi f lests göngufólks svo fremi sem stað-
kunnugir séu með í för.
Tilvalið er að hefja gönguna frá Múlaskála þar sem
er snotur skáli og tjaldstæði. Þangað er 40 mínútna
ganga frá Illakambi sem hægt er að aka að á sérútbún-
um fjallabifreiðum úr Lóni. Er þá farið yfir viðsjár-
verða Skyndidalsá sem getur vaxið hratt í rigningum.
Því er ekki óskynsamlegt að kaupa sér far inn eftir
með aðilum á Höfn eða í Lóni, eða ganga þangað á
einum eða tveimur dögum, sem er stórkostleg göngu-
leið. Að rótum Sauðhamarstinds er merkt gönguleið
frá Múlaskála sem liggur eftir litfögrum giljum. Síðan
sleppir stikunum og þá er mikilvægt að velja rétta leið
í gegnum að því er virðist ófært klettastálið.
En leiðin er auðfundnari en margan grunar og er
stefnt á tilkomumikinn foss sem steypist fram af
miðju klettabeltinu. Haldið er vinstra megin við foss-
inn og síðan undir hann. Eftir það er þröng klettasylla
þrædd nokkur hundruð metra í norður uns komið er
að þröngu gili með litlum fossi. Þar er hægt að klöngr-
ast upp gilið að stalli fyrir ofan klettabeltið. Síðan er
snjóbrekku fylgt upp að Röðli sem er tilkomumikill
hryggur sem vísar veginn á litskrúðugan Sauðham-
arstind. Tilvalið er að toppa þá báða og síðan haldið
niður klettabeltið sömu leið, enda aðrar gönguleiðir í
gegnum klettabeltið viðsjárverðar.
Gaman er að ganga heim í gegnum litskrúðugar
líparítbrekkur sem kallast Víðibrekkusker, en neðan
þeirra eru svartir berggangar, Kambahryggir, sem
skera gljúfrin eins og hnífar. Þetta er litaveisla fyrir
allan peninginn sem gefur þeirri í Land-
mannalaugum ekkert eftir. Gangan tekur
yfirleitt daginn (6-8 klst.) og er mikilvægt
að taka með jöklabúnað og ekki leggja á
tindinn í viðsjárverðu veðri eða þoku.
Tindur í
sauðagæru
Tómas
Guðbjartsson,
hjartaskurð-
læknir og nátt-
úruunnandi,
og Ólafur Már
Björnsson,
augnlæknir og
ljósmyndari.
Gönguleiðinni
upp á Sauðham-
arstind má líkja
við völundar-
hús, sem þó
er sérlega
skemmtileg sé
farin rétt leið en
myndræna lýs-
ingu má finna
með greininni á
frettabladid.is.
MYND/TG
Gangan í gegnum klettabeltið er ekki fyrir lofthrædda en er þó einfaldari en margur heldur. MYND/ÓMB
Af Sauðhamarstindi er frábært útsýni. MYND/ÓMB
TILVERAN
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð