Fréttablaðið - 10.10.2019, Page 40
Fyrirtækjasamstarf er þýðingarmikill og vaxandi hluti fjáröf lunar Bleiku
slaufunnar. Samstarfið gengur út
á að veita fólki f leiri möguleika til
að styrkja málstaðinn og að gefa
fyrirtækjum færi á að leggja sitt
af mörkum til fjáröf lunar Bleiku
slaufunnar.
„Þá rennur hluti af greiðslu fyrir
vöru eða þjónustu til Bleiku slauf-
unnar. Með þessum hætti getur
fólk fjárfest í vöru eða þjónustu
sem það langar í og styrkt gott
málefni í leiðinni,“ segir Kolbrún
Silja Ásgeirsdóttir, fjáröf lunar- og
markaðsstjóri Krabbameinsfé-
lagsins. „Margir vilja helst styrkja
átakið með kaupum á Bleiku
slaufunni en það er stór hópur
fólks sem vill gjarnan styrkja
Bleiku slaufuna með kaupum á
margs konar vöru eða þjónustu.
Reyndar staðfesti könnun okkar
í sumar að 75% karla og kvenna
um land allt velja frekar að kaupa
vöru þar sem hluti verðsins rennur
til Bleiku slaufunnar en sambæri-
lega vöru sem tengist ekki Bleiku
slaufunni,“ segir Kolbrún. „Fólk
getur svo verslað hjá þessum fyrir-
tækjum eða í vefverslun Krabba-
meinsfélagsins og stutt Bleiku
slaufuna í leiðinni.“
Sífellt fleiri taka þátt
Samstarfið skilar drjúgri upphæð
á ári hverju og skiptir miklu.
„Við erum með mjög marga
öfluga samstarfsaðila sem taka
þátt og þeim er alltaf að fjölga,“
segir Kolbrún. „Við finnum að það
er síaukinn stuðningur við fjár-
öflunina okkar.
Það er líka áhugi fyrir þessu
innan fyrirtækjanna, ekki bara
af því að þau fá aukna sölu og
jákvæða athygli viðskiptavina,
heldur taka starfsmenn fyrir-
tækjanna oft líka heilmikinn þátt,“
segir Kolbrún. „Við höfum komið
á marga vinnustaði og verið með
fræðslu fyrir starfsmenn. Vinnu-
staðirnir halda sjálfir upp á sína
Bleiku daga þar sem þeir sýna
bæði samstarfsfólki sínu og við-
skiptavinum sem hafa glímt við
krabbamein stuðning.“
Margar leiðir til að taka þátt
Kolbrún segir að þátttakan í fyrirtækjasamstarfi Bleiku slaufunnar sé sífellt að aukast. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mörg fyrirtæki
leggja fjáröflun
Bleiku slaufunnar
lið í gegnum fyrir-
tækjasamstarf og
sífellt fleiri bæt-
ast í hópinn. Fólk
getur svo verslað
hjá þessum fyrir-
tækjum og stutt
Bleiku slaufuna í
leiðinni.
Margir vilja helst
styrkja átakið með
kaupum á Bleiku slauf-
unni en það er stór
hópur fólks sem vill
gjarnan styrkja Bleiku
slaufuna með kaupum á
margs konar vöru eða
þjónustu.
Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir
8 BLEIKA SLAUFAN 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R