Fréttablaðið - 10.10.2019, Síða 53
Norrænu höfuðborgirnar
raða sér alltaf í efstu sætin
á alþjóðlegum listum yfir
lífvænlegustu borgir í heimi.
Þar eigum við heima.
Stundum er sagt að við vitum ekkert hvað framtíðin beri í skauti sér. Það er hárrétt en samt vitleysa. Við vitum eitt og annað, sem betur fer. Annars
gætum við ekkert skipulagt fram í
tímann og þyrftum að ganga aftur á
bak inn í framtíðina. Í svæðisskipu
lagi höfuðborgarsvæðisins 2015 til
2040 er vitnað í mannfjöldaspár
Hagstofunnar um að íbúunum fjölgi
um sirka 70.000 á tímabilinu. Við
vitum að ef höfuðborgarbyggðin
myndi þenjast jafnmikið út næstu
25 ár og hún gerði árin 1987 til 2012
og ferðavenjur yrðu óbreyttar, eykst
bílaumferð örugglega langt umfram
fólksfjölgun. Umferðartafir verða
óbærilegar. Sú leið er ófær. Það er
niðurstaðan úr ýtarlegum sviðs
myndagreiningum sem fylgdu
aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 til
2030 og svæðisskipulaginu. Í báðum
tilvikum náðist þverpólitísk sátt
um róttæka stefnubreytingu. Betri
landnýting, samgöngumiðuð upp
bygging, minni mengun, skilvirk
ari vistvænni samgöngur, betra
umhverfi fyrir gangandi og hjólandi
vegfarendur. Á þeim grunni byggir
nýr samgöngusáttmáli ríkisins og
sveitarfélaganna á höfuðborgar
svæðinu. Hann markar álíka sögu
leg tímamót og hraðbrautarskipu
lagið sem samþykkt var í Reykjavík
um miðjan 7. áratuginn – nema nú
er forgangsröðunin önnur.
Mannfjölgunin er í borgum
Hvað vitum við meira? Jú, í nýlegri
skýrslu norrænu rannsóknarmið
stöðvarinnar Nordregio kemur
fram að síðustu 20 árin hefur
nánast öll mannfjölgun, eða 97%,
átt sér stað á 30 stærstu borgar
svæðum Norðurlandanna. Til
fróðleiks má geta þess að höfuð
borgarsvæðið okkar er 11. stærsta
norræna borgin. Innf lytjendur
eiga sinn þátt í þessari öru fjölgun
í borgunum, en margt fólk kemur
líka frá minni plássum á lands
byggðinni. Norræna strjálbýlið
glímir við þann vanda að unga
fólkið streymir inn í borgirnar og
aðliggjandi svæði. Ekkert bendir
til að þróunin verði öðruvísi næstu
tvo til þrjá áratugina enda gera
borgaryfirvöld í Ósló, Stokkhólmi
og Helsinki ráð fyrir því í sínum
skipulagsáætlunum.
Hlutfallsleg fjölgun í þessum
þremur borgum er með því mesta
sem þekkist í Evrópu. Í skipulags
áætlunum er gert ráð fyrir að fjölg
unin eigi sér að miklu leyti stað
innan núverandi byggðarmarka
og fyrst og fremst í gisnari hverfum
borganna, á úr sér gengnum iðn
aðarsvæðum, hafnarsvæðum, veg
helgunarsvæðum og flennistórum
vannýttum bílastæðum. Í Helsinki
svo dæmi sé tekið er unnið eftir
skipulagsáætlun sem heitir Vision
2050. Þar sett fram landnotkunar
stefna til framtíðar og áhersla lögð
á þéttriðið net almenningssam
gangna, ef lingu miðborgarsvæð
isins og styrkingu borgarinnar í
alþjóðlegri samkeppni um fólk,
fjármagn og verðmætasköpun.
Það er grundvallaratriði í þessum
skipulagsáætlunum að ekki er gert
ráð fyrir að bílaumferð aukist í
sama hlutfalli og fólkinu fjölgar.
Það er einfaldlega ekki pláss fyrir
f leiri bíla.
Takmarkað göturými
Hvernig verður takmarkað götu
rýmið í borgunum nýtt sem best?
Útreikningar verkfræðinga sýna
að einkabílaumferðin nýtir götu
Fleira fólk og takmarkað rými
Hjálmar
Sveinsson
borgarfulltrúi
Samfylkingar-
innar
2TB FERÐAFLAKKARI
Backup Plus Slim með tímamóta hugbúnaði
14.990
TRUST LEIKJASTÓLL
Glæsilegur GXT 707 leikjastóll frá Trust
29.990
VERÐ ÁÐ
UR
34.990
FRÁBÆR
T
TILBOÐ
LEIKJALYKLABORÐ
Magnað GXT860 leikjalykborð frá Trust
5.992
25%AfslátturVerð áður 7.990
RTX 2060 SUPER
Öflugt skjákort frá Zotac með 8GB GDDR6
69.990
VERÐ ÁÐ
UR
72.990
FRÁBÆR
T
TILBOÐ
NOCTUA NH-D15
Örgjörvakæling fyrir AMD/Intel 6 ára ábyrgð
14.990
69.990PS4 PRO MEÐ FIFA20Öflugri PRO HDR útgáfa með 1TB disk og FIFA 209.990
GLORIOUS MODEL O
Loksins fáanleg á Íslandi
léttasta RGB leikjamúsin!129.990
MEÐAN
BIRGÐIR
ENDAST
FRÁBÆR
T
VERÐ
LEGION C530 Cube
Fullkominn leikjaturn með
LED lýsingu og handfangi
GTX 1050 Ti
4GB VR Ready leikjaskjákort
Intel i5 8400
6 kjarna 4.0GHz Turbo
8GB minni
DDR4 2666MHz
512GB SSD
NVMe diskur
99.990Ideapad 330Öflug og nett Lenovo
fartölva sem hentar vel
í alla almenna vinnslu í
skólanum og heima
Glæsileg 15” fartölva
sem er flott í skólann
15” FHD
1920x1080 Antiglare
Intel i5-8250U
3.4GHz Turbo Quad Core
8GB minni
DDR4 2133MHz
256GB SSD
M.2 diskur
149.990YOGA 530Lúxus Yoga fartölva með
Harmon Dolby hljóðkerfi,
fingrafaraskanna og
10 tíma rafhlöðu
Enn öflugri lúxus Yoga
með 360° snertiskjá
14” FHD IPS
Snertiskjár, 1920x1080
Intel i7 8550U
3.7GHz Turbo Quad Core
8GB minni
DDR4 2400MHz
512GB SSD
NVMe diskur
SNERT
I
SKJÁR
149.990ACER C27-865Einstök skjátölva með
örþunnan skjáramma
með HD vefmyndavél
og þráðlaust AC net
Glæsileg skjátölva á
demantskornum standi
27” FHD IPS
Rammalaus Slim skjár
Intel i5-8250U
3.4GHz Turbo Quad Core
8GB minni
DDR4 2400MHz
256GB SSD
M.2 diskur
VERÐ ÁÐ
UR
169.990
FRÁBÆR
T
TILBOÐ
10. október 2019 • B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900
Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
Opnunartímar
Virka daga 10-18
Laugardaga 11-16
SPENNANDI NÝJAR GRÆJUR Í OKTÓBER
GRÆJUBÚÐIN
rýmið illa. Skipulagsyf irvöld í
Stokkhólmi hafa tekið saman
stefnu sem segir til um hvernig
beri að forgangsraða í þessu tak
markaða rými. Forgangsröðin
myndar eins konar pýramída þar
sem fararmátar sem taka minnst
pláss eru á toppnum og þeir farar
mátar sem taka mest pláss á botn
inum. Því skal forgangsraða gang
andi og hjólandi fyrst, á eftir þeim
almenningssamgöngum, síðan
vöruf lutningum og leigubílum og
síðastur í röðinni er einkabíllinn.
Þetta er útfært þannig að gang
stéttir og hjólastígar breikka á
kostnað akreina og bílastæða, for
gangsreinar eru lagðar fyrir stræt
isvagna, sérstakur miðborgartollur
er innheimtur af þeim sem keyra á
einkabílum inn í miðborgina.
Svipaða sögu er að segja frá Ósló.
Í dag trúir maður því varla að í
kringum ráðhúsið í borginni, sem er
einstök bygging, hafi fyrir örfáum
árum verið linnulaus bílaumferð og
að hraðbraut skorið miðborgina frá
höfninni.
Sömu skipulagsstefnu og tekin
hefur verið í höfuðborgum hinna
Norðurlandanna er fylgt í skipu
lagsáætlunum höfuðborgarsvæðis
ins. Búsetuþróunin hefur verið svip
uð á Íslandi og á Norðurlöndunum.
Við erum á sömu leið inn í framtíð
ina. Norrænu höfuðborgirnar raða
sér alltaf í efstu sætin á alþjóðlegum
listum yfir lífvænlegustu borgir í
heimi. Þar eigum við heima.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27F I M M T U D A G U R 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9