Fréttablaðið - 10.10.2019, Page 54
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Það verður við ramman
reip að draga þegar íslenska karla
landsliðið í k nattspy rnu fær
ríkjandi heimsmeistara, Frakka,
í heimsókn á Laugardalsvöllinn í
leik liðanna í sjöttu umferð í undan
keppni EM 2020. Ekki er hægt
að segja að tölfræðin sá á bandi
íslenska liðsins en liðin hafa mæst
14 sinnum í sögunni og Ísland hefur
aldrei haft betur. Tíu sinnum hefur
franska liðið farið með sigur af
hólmi og fjórum sinnum hafa liðin
gert jafntefli.
Frakkar unnu sannfærandi 40
sigur þegar liðin áttust við í fyrri
leik sínum í undankeppninni en þar
áður mættust liðin í vináttulands
leik þar sem íslenska liðið komst
tveimur mörkum yfir með mörkum
Birkis Bjarnasonar og Kára Árna
sonar. Franska liðið kom hins vegar
til baka og jafnaði metin í 22 og hélt
tölfræði sinni um að vera taplaust
gegn Íslandi.
Það þarf svo að fara allt aftur til
ársins 1998 til þess að finna síðasta
skiptið þar sem Ísland náði að
hrifsa stig af Frakklandi í mótsleik.
Þá voru Frakkar nýkrýndir heims
meistarar frá því um sumarið og
mættu sigurvissir til leiks á pakk
fullan Laugardalsvöllinn. Allir sem
vettlingi gátu valdið sáu til þess að
eins margir og mögulegt væri kæm
ust á völlinn og hent var upp bráða
birgðastúkum bak við bæði mörkin
til þess að auka stemminguna.
Ríkharður Daðason stökk eins
og lax fyrir ofan Fabian Barthez og
stangaði boltann í netið eftir hár
nákvæma fyrirgjöf Rúnars Krist
inssonar en Cristoph Dugarry
eyðilagði partíið með því að sjá til
þess að Frakkar færu með stig í far
teskinu af Laugardalsvellinum það
haustkvöldið.
Það er spurning hvaða íþrótta
fréttamaður bregður sér í hlutverk
Ingólfs Hannessonar sem fagnaði
jafntef linu innilega með Guðjóni
Þórðarsyni, þáverandi þjálfara
íslenska liðsins, og smelli kossi á
kinn Eriks Hamrén takist honum
og lærisveinum hans að brjóta ísinn
með sigri í leiknum annað kvöld.
Frakkland verður án lykilleik
manna í þessum leik en Hugo Lloris
meiddist um síðustu helgi á oln
boga og Samuel Umtiti, Paul Pogba
og Kylian Mbappé eru þar að auki
að glíma við meiðsli. Hjá Íslandi
er stórt skarð hoggið með fjar
veru fyrirliða liðsins, Arons Einars
Gunnarssonar, af miðsvæðinu og
þá er Hörður Björgvin Magnússon
meiddur og Rúnar Alex Rúnarsson
að bíða eftir frumburði sínum.
Mannval Frakka er slíkt að þótt
þeir væru vissulega til í að hafa alla
leikmenn sína klára í slaginn koma
afar frambærilegir leikmenn í stað
fyrrgreindra leikmanna. Það mun
líklega ekki sjá högg á vatni hjá
franska liðinu í þessum leik. Það
er aftur á móti lag fyrir Ísland að
bæta upp fyrir tapið í Albaníu með
óvæntum sigri annað kvöld.
hjorvaro@frettabladid.is
Kominn tími til að vinna Frakkland
Nú er rúmlega sólarhringur í að Ísland og Frakkland eigist við í undankeppni EM 2020 í knattspyrnu karla á Laugardalsvellinum.
Þrátt fyrir að sterka leikmenn vanti í franska liðið þegar það kemur hingað mætir öflugt lið Íslandi á Laugardalsvelli annað kvöld.
Pétur Hafliði Marteinsson, Rúnar Kristinsson og Ríkharður Daðason fagna markinu sem Ísland skoraði gegn Frökkum í undankeppni EM 2000 með Guðjóni Þórðarsyni. MYND/HILMAR ÞÓR
14
leiki hafa Íslendingar leikið
gegn Frökkun án þess að ná
að leggja þá að velli.
FÓTBOLTI Hjörtur Hermannsson
kveðst vera búinn að skilja tapið
gegn Albaníu eftir í baksýnisspegl
inum og er spenntur fyrir tækifær
inu að takast á við stærstu stjörnur
heimsins á morgun. Hjörtur sem
er miðvörður að upplagi tók stöðu
Birkis Más Sævarssonar í hægri bak
verðinum fyrr á árinu og er búinn
að byrja síðustu fjóra leiki Íslands.
„Það hefur gengið vel að undir
búa þetta verkefni. Eftir leikinn
gegn Albaníu þurfti maður að vera
f ljótur að hreinsa hugann og ein
beita sér að félagsliðinu. Auðvitað
hugsaði maður að einhverju leyti
að maður þyrfti að svara fyrir eigin
frammistöðu í leiknum í Albaníu.
Nú er komið að nýju verkefni og við
mætum einbeittir til leiks.“
Hjörtur fékk sinn skerf af gagn
rýni eftir tapið í Albaníu. Aðspurð
ur segist hann hafa tekið eftir
gagnrýninni en lítið velt sér upp úr
henni.
„Gagnrýnin fór ekkert fram hjá
manni eftir Albaníuleikinn. Maður
verður að draga lærdóm af því, bæði
sem leikmaður og persóna. Það er
hægt að deila um hvort hún hafi átt
rétt á sér, það er hlutverk fjölmiðla
að fjalla um og gagnrýna liðið og ég
tel mig og liðið hafa lært heilmargt
af þessum leik. Við þurfum að svara
fyrir það gegn Frökkunum,“ segir
Hjörtur sem segir ekki erfitt að gíra
sig upp fyrir leik af þessari stærðar
gráðu.
„Ef maður á erfitt með að mótív
era sig fyrir leik af þessari stærðar
gráðu eða bara landsleiki yfirhöfuð
á maður varla að vera í landsliðinu.“
Hjörtur er fæddur árið 1995, er
einn af yngstu leikmönnum hópsins
og man því ekki eftir leiknum fræga
árið 1998.
„Maður hefur margoft heyrt
þessa sögur af leiknum 1998 og séð
margar klippur en ég ætla ekki að
ljúga að ég muni eftir leiknum enda
bara þriggja ára þegar hann fór
fram,“ segir Hjörtur hlæjandi:
„Það voru mögnuð úrslit, núna
er það okkar að jafna það eða gera
betur á morgun.“
Miðvörðurinn kom aftur inn í
lið BrØndby um síðustu helgi og lék
allan leikinn í 31 sigri á erkifjend
unum í FC KØbenhavn.
„Þetta var magnaður leikur.
Leikir þessara liða eru þeir stærstu
í Skandinavíu og það er ekkert sæt
ara en að vinna FCK. Með sigrinum
héldum við okkur á lífi í toppbarátt
unni. Þetta hefur verið upp og niður
hjá okkur en vonandi kemur þessi
sigur boltanum af stað.“
Síðasta sumar sýndi rússneskt
félag Hirti áhuga en hann segist
ánægður í bili í Danmörku.
„Það eru alltaf einhverjir orð
rómar og einhver áhugi og í fót
boltanum eru hlutirnir f ljótir að
gerast. Undanfarin ár hefur maður
heyrt hitt og þetta. Ég er sáttur
hjá BrØndby í dag þótt að það hafi
komið tilboð. Það hefur annað
hvort ekki hentað mér eða félaginu
en það mun koma sá tímapunktur
að maður leitar í eitthvað nýtt og
spennandi.“ – kpt
Gagnrýnin eftir leikinn í Albaníu fór ekkert fram hjá manni
Árbæingurinn hefur byrjað síðustu fjóra leiki Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Arnór Sigurðsson,
núverandi leikmaður
íslenska liðsins, var ekki
fæddur þegar liðin gerðu
síðast jafntefli í mótsleik.