Fréttablaðið - 02.05.2015, Page 2
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
5°
0°
1°
3°
-1°
3
6
3
2
8
VEÐUR
Austan 8-15 m/s í dag , hvassast með
suðurströndinni. Víða él eða slydduél,
en hægari vindur vestanlands. Hiti mjög
svipaður því sem hann var í gær.
SJÁ SÍÐU 52
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
VITA er lífið
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Tilboðsverð frá 69.900 kr.
m.v. 2 í herbergi með hálfu fæði á Melia Benidorm.
Flugsæti til Alicante 8. maí 14.950 kr.
önnur leiðin og 39.900 kr. fram og til baka.
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
V
IT
7
42
93
0
4/
15
Löng helgi á Spáni
Alicante
8.–12. maí
SKÓLAMÁL Móðir stúlku í Háteigs-
skóla gerir alvarlegar athuga-
semdir við vinnubrögð samtak-
anna Blátt áfram eftir fyrirlestur
þeirra um kynferðislegt ofbeldi
fyrir nemendur í 8. bekk skólans.
Foreldrar nemenda fengu ekki til-
kynningu um fyrirlesturinn fyrr
en eftir að hann var fluttur.
„Með tilkynningunni kom fram
að börnin ættu að svara spurning-
um í tengslum við fyrirlesturinn.
Ég bað um að fá að sjá listann og
þau leyfi sem þau ættu að hafa til
að leggja slíka lista fyrir börn-
in. Ég hef ekki fengið nein svör,“
segir Berglind Gísladóttir, móðir
nemanda.
„Það getur vel verið að þetta
séu saklausar spurningar, en for-
eldrar eiga að fá að vita um svona
hluti. Þessi vinnubrögð tel ég að
séu ekki leyfileg og brjóti gegn
per sónuvernd,“ segir Berglind.
„Spurningarnar voru aldrei send-
ar eftir að ég hafði samband við
skólayfirvöld.“
Guðrún Helga Bjarnadóttir,
starfsmaður Blátt áfram sem flutti
fyrirlesturinn, segir mikilvægt að
foreldrar séu ekki látnir vita áður
en fyrirlestrarnir eru haldnir. „Það
eru dæmi um að börn og jafnvel
systkinahópar sem verða fyrir
ofbeldi heima hjá sér mæti ekki
þann dag sem fyrirlesturinn fer
fram. Ef það er verið að brjóta á
þeim vilja þeir aðilar ekki að börn-
in fái fræðslu um það,“ segir Guð-
rún. Hún segir að börnin fái spurn-
ingalista eftir fyrirlesturinn sem
þau séu ekki skyldug til að svara.
Listarnir eru nafnlausir.
Berglind segir að í póstinum sem
foreldrar fengu hafi komið fram að
bekkurinn hefði fengið fyrirlestur
frá Guðrúnu Helgu um kynferð-
islegt ofbeldi. „Ég bað þá um að
fá upplýsingar um hver menntun
hennar væri og hvers vegna hún
væri talin fær til að ræða svona
viðkvæmt málefni við grunnskóla-
börn. Ég fékk þau svör að hún væri
leikskólakennari,“ segir Berglind.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins voru spurningarnar á list-
anum flestar almennt í tengslum
við fyrirlesturinn. Hvað lærðir
þú á fyrirlestrinum? Hvað þótti
þér áhugaverðast? Kom eitthvað á
óvart? Eitthvað sem þú vilt spyrja
um? Eitthvað sem þú vilt fá að vita
um kynferðislegt ofbeldi? Á list-
anum voru einnig spurningar um
hvort börnin teldu sig treysta ein-
hverjum fullkomlega og ef svo
væri hver það væri.
Skólastjóri Háteigsskóla segir
að mistök hafi átt sér stað með
spurningalistanum og að málið
verði skoðað frekar. Hann segir
þó að samstarfið hafi gengið vel í
gegnum árin. Hann vildi ekki tjá
sig meira um málið að svo stöddu.
- ag
Spurningalisti Blátt
áfram gagnrýndur
Móðir nemanda í Háteigsskóla telur að spurningalisti Blátt áfram í tengslum við
fyrirlestur um kynferðislegt ofbeldi brjóti gegn persónuvernd. Hún segir að for-
eldrar hafi ekki fengið að vita af fyrirlestrinum fyrr en eftir að hann var fluttur.
HEFUR EKKI FENGIÐ SVÖR Berglind vildi fá að sjá spurningarnar og þau leyfi sem
samtökin ættu að hafa til að leggja spurningalista fyrir börnin. NORDICPHOTOS/GETTY
Það getur
vel verið að
þetta séu
saklausar
spurningar, en
foreldrar eiga
að fá að vita
um svona hluti.
Berglind Gísladóttir,
móðir nemanda í Háteigsskóla.
MANNLÍF Íbúar höfuðborgarsvæðisins duttu í lukkupottinn á baráttu-
degi verkalýðsins í gær, þann 1. maí. Sólin skein og þrátt fyrir að hit-
inn mældist aðeins mest 4 stig hjá Veðurstofunni virtist sem fólk upp-
lifði mun hærri hitatölur. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni
mun hitinn hækka á morgun og fara upp í 5 til 6 stig. - fbj
Borgarbúar nutu veðurblíðunnar fyrir utan kaf ihúsin:
Bongóblíða í miðbæ Reykjavíkur
SETIÐ ÚTI Vegfarendur létu ekki lágt hitastig aftra sér frá að njóta sólarinnar í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUMÁL Tilkynnt var
um tvær líkamsárásir í mið-
borginni aðfaranótt föstudags.
Árásarmaður var handtekinn á
veitingastað við Austurstræti
en hann var í mjög annarlegu
ástandi að sögn lögreglu. Maður-
inn lét ófriðlega þegar hann var
handtekinn og skallaði meðal
annars lögreglumann.
Þá var tilkynnt um aðra lík-
amsárás á veitingahúsi við
Laugaveg. Sá sem varð fyrir
árásinni var fluttur á slysadeild
en lögreglan segist hafa upplýs-
ingar um gerendur.
- vh
Handtekinn í Austurstræti:
Tilkynnt um
tvær líkamsárásir
STJÓRNMÁL Nokkrir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hafa lagt
fram frumvarp um breytingu á
upplýsingalögum. Þeir vilja með
frumvarpinu skylda stjórnvöld,
sveitarfélög og opinberar stofn-
anir til að gera grein fyrir öllum
innkaupum á vöru og þjónustu yfir
150 þúsund krónum.
Ef frumvarpið myndi ná fram að
ganga gæti almenningur haft aukið
aðgengi að upplýsingum af þessum
toga. Fyrirmynd frumvarpsins er
frá Bretlandi og Bandaríkjunum
en þar getur almenningur fylgst
með opinberum útgjöldum mánað-
arlega. - srs
Gera grein fyrir innkaupum:
Vilja auka upp-
lýsingaflæði
Reynir Pétur Ingvarsson göngugarpur
auglýsti eftir styttu af sjálfum sér í
vikunni. Styttan var gerð af honum
fyrir um þrjátíu árum í tilefni af
göngu hans hringinn í kringum landið
en hann vissi ekki hvað hefði
orðið um hana. „Ég fer
í bæinn og sæki mig,“
sagði Reynir Pétur
glaður í bragði þegar
símtalið barst um
að styttan væri
fundin.
Fann sjálfan sig Ragnheiður Elín Árna-
dóttir ferðamálaráðherra
lýsti því yfir að stjórnvöld
myndu ekki taka upp
samræmda gjaldtöku
til uppbyggingar ferða-
mannastaða. Allt stefnir í að uppbygg-
ingin verði sett á fjárlög.
FIMM Í FRÉTTUM: KÖRFUBOLTI OG KÆRÐ HATURSORÐRÆÐA
Sigríður Hallgrímsdóttir
aðstoðarmaður mennta-
málaráðherra bað um viðtal
hjá fréttastofu RÚV á þeim
grundvelli að stofnunin
heyrði undir ráðuneytið.
Fréttastofa RÚV var verulega undrandi á
ummælunum.
Hilmar Hildarson Magnúsar-
son og Samtökin 78 lögðu
fram kæru á hendur tíu ein-
staklingum vegna meiðandi
orðræðu í garð hinsegin fólks
á opinberum vettvangi.
Erpur Eyvindarson
rappari gaf út nýtt
myndband við lag
sitt Fyrirliði þar
sem hann fer yfir
ferilinn. Í mynd-
bandinu birtast
margar af helstu
íþróttahetjum
þjóðarinnar, eins
og Margrét Lára
Viðarsdóttir og
Gunnar Nelson.
Pavel Ermolinskij og
félagar hans í körfuknatt-
leiksliði KR urðu Íslands-
meistarar annað árið í
röð eftir 88-81 sigur á
Tindastóli í fjórða leiknum
í Síkinu á miðvikudagskvöld.
STJÓRNMÁL „Mér þykir það undar-
legt þegar Bjarni segir að það sé
mikilvægt að viðhalda stöðugleika
með því að gefa stóriðjunni afslátt
af sköttum á sama tíma og launum
er haldið lágum til að viðhalda stöð-
ugleikanum,“ sagði Oddný G. Harð-
ardóttir, fyrrverandi fjármálaráð-
herra.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra sagði á ársfundi Samáls
að afnám raforkuskatts á álver
væri forgangsmál fyrir ríkisstjórn-
ina þar sem það félli vel að mark-
miðum stjórnarinnar um að treysta
efnahagslegan stöðugleika.
Skatturinn var upphaflega lagð-
ur á árið 2009 sem hluti af samn-
ingi álfyrirtækjanna, Samtaka
atvinnulífsins og stjórnvalda.
Skatturinn skilaði ríkissjóði 1,6
milljörðum króna í fyrra. Pétur
Blöndal, framkvæmdastjóri Sam-
áls, segir að skatturinn hafi upp-
runalega átt að vera tímabundinn
en hafi verið framlengdur þrátt
fyrir loforð um annað.
Oddný segir að áliðnaðurinn í
landinu verði að vera samfélags-
lega ábyrgur. „Það er eðlilegt að
stóriðjan greiði skatt af þeim auð-
lindum sem hún nýtir. Við getum
bara kallað þetta auðlindaskatt. Og
við eigum að feta þessa slóð með
allar okkar auðlindir, getum ekki
gefið þær frá okkur,“ sagði Oddný.
- srs
Fyrrverandi ráðherra segir eðlilegt að iðnaðurinn greiði skatt af auðlindum:
Ættu að halda í raforkuskattinn
ÁLVER Álverin greiddu 1,6 milljarða króna í skatt í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/BIG