Fréttablaðið - 02.05.2015, Page 8

Fréttablaðið - 02.05.2015, Page 8
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 LSR og LH halda fund fyrir sjóðfélaga á lífeyri 5. maí 2015 á Hilton Reykjavík Nordica Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 14:00. BALTIMORE Sex lögregluþjónar í Baltimore verða ákærðir fyrir að hafa komið að dauða hins 25 ára Freddie Gray. Gray lést af áverkum meðan hann var í umsjá lögreglu og brut- ust út miklar óeirðir í borginni í kjölfar þess. Því hafði meðal ann- ars verið haldið fram að Gray hefði reynt að veita sér áverkana sjálfur. Ákær urn ar eru í nokkr um liðum en að minnsta kosti einn mann- anna hef ur verið ákærður fyr ir mann dráp. Marilyn Mosby ríkissaksóknari sagði á blaðamannafundi í gær að um manndráp hefði verið að ræða og að handataka Grays hefði verið ólögleg. Hún sagði að áverkar sem Gray hlaut á mænu eftir handtök- una hefðu dregið hann til dauða. Fyrir liggur að Gray var handtek- inn og hafður í lögreglubíl í um fjörutíu mínútur áður en hann var færður á lögreglustöð. „Til fólksins í Baltimore og mót- mælenda víða um Bandaríkin. Ég heyrði kall ykkar „ekkert réttlæti, enginn friður“. Það er þörf á friði meðan ég vinn að því að ná fram réttlæti fyrir hönd þessa unga manns,“ sagði Moby á fundinum í gær og vísaði þar til Grays. Mótmælendur í Baltimore fögn- uðu mjög yfirlýsingu Mosby. Neyð- arástandi var lýst yfir í borginni þegar óeirðirnar stóðu sem hæst og þjóðvarðliðar kallaðir til. Gray var dökkur á hörund og sá síðasti meðal margra ungra svartra manna sem látið hafa lífið í átökum við lögreglu í Bandaríkj- unum undanfarin misseri. Lögregluþjónarnir sex voru allir leystir frá störfum í kjölfar dauða Grays. Ekki hefur verið greint frá því hvort þeir séu nú í haldi lög- reglu eður ei. viktoria@frettabladid.is Ákært fyrir manndráp Sex lögregluþjónar verða ákærðir vegna dauða Freddie Gray. Saksóknari segir að um manndráp hafi verið að ræða og ætlar að ná fram réttlæti fyrir hönd Grays. FÖGNUÐU ÁKAFT Mótmælendur í Baltimore fögnuðu ákaft eftir yfirlýsingu sak- sóknarans. NORDICPHOTOS/GETTY SAKSÓKNARINN Marilyn Mosby sagði á fundinum í gær að um manndráp hefði verið að ræða. NORDICPHOTOS/GETTY Það er þörf á friði meðan ég vinn að því að ná fram réttlæti fyrir hönd þessa unga manns. Marilyn Mosby, ríkissaksóknari í Baltimore. SAMGÖNGUR „Þetta er stór dagur fyrir samfélagið okkar hérna, enda erfiður vetur að baki fyrir eyja- skeggja,“ segir Gunnlaugur Grett- isson, rekstrarstjóri Herjólfs. Herjólfur sigldi fyrstu ferð sum- arsins til Landeyjahafnar í gær. „Þetta er virkilega gleðilegt,“ segir Gunnlaugur og bætir við að héðan í frá muni ekki siglt meira til Þorlákshafnar. „Við munum ekki sigla á blúss- andi háfjöru til að byrja með, en enn er unnið að dýpkun hafnar- innar svo við reiknum með að eitthvert hnjask verði á áætlun,“ segir Gunnlaug- ur. Segist hann gera ráð fyrir að áætlunarferð- ir verði komnar í eðlilegt horf á næstu dögum og kappkostað sé að gera botninn klár- an sem allra fyrst. Nú eru tvö skip sem vinna að því að dýpka höfnina. Gunnlaugur er þó vongóður á framhaldið og sumarið í heild sinni. „Landeyjahöfn er frábær sam- gönguleið fyrir okkur. Í fyrra sigldum við aðeins einu sinni til Þorlákshafnar og við sjáum fyrir okkur að þetta verði svipað í ár. Við vonumst eftir að halda því svo- leiðis fram á haustið að minnsta kosti, þó alltaf sé gaman að heilsa upp á nágranna okkar í Þorláks- höfn, þá er afar ljúft að þurfa ekki að standa mikið í því.“ - ga Herjólfur sigldi fyrstu ferð sumarsins til Landeyjahafnar í gær og rekstrarstjóri segir erfiðan vetur að baki fyrir Eyjamenn: Segir hilla undir góða tíma í samgöngum til Eyja GUNNLAUGUR GRETTISSON HERJÓLFUR Mikil gleði var meðal Eyjamanna í gær þegar Herjólfur sigldi sína fyrstu ferð frá Landeyjahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.