Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 32

Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 32
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Fyrsta spurningin er venju samkvæmt sú hvort þið kannist eitthvað hvort við annað? Hilmar: Ég kannast náttúrulega við Guðrúnu. Ég held að ég muni eftir henni fyrst úr áramótaskaupinu að brillera og svo auðvitað úr alls kyns leiksýning- um. En ég er nú ekki viss um að hún kannist við mig. Guðrún: Ég hef séð myndir af þessum fallega manni. Þegar maður byrjar að standa í stríði þá fylgir því mynd í blöðunum. Þannig að ég hef bara fylgst með þér í fréttum og finnst flott hjá þér að stoppa þessi illmælgi af. Það þarf bara að berja hundana niður um leið og þeir fara að gjamma. Ég óska ykkur alls hins besta. Hilmar: Takk kærlega fyrir það. Viss um að Guð elski homma Kemur ykkur á óvart að Samtök- in 78 þurfi að eiga við hatursfulla umræðu á sama tíma og talað er um Ísland sem eitt opnasta samfélagið gagnvart hinsegin fólki í heiminum? Hilmar: Fordómar eru viðvarandi ástand undir yfirborðinu. Ef maður vill sjá þetta, þá sér maður þetta. Svona umræða sýnir að björninn er ekkert unninn. Það koma alltaf bakslög í baráttuna. Konur þekkja það úr kvenréttindabaráttunni, svart fólk úr sinni baráttu og svo framvegis. En í rauninni er þetta einfalt, við viljum bara öll fá að vera til og lifa hamingjusömu lífi en við búum við veruleika þar sem sífellt er verið að traðka á okkur og því búum við ekki við jöfn réttindi og lífsgæði. Guðrún: Óréttlæti nær alltaf að smjúga sér einhvers staðar. Hilmar: Já, þetta er marghöfða skrímsli. Guðrún: Ég skrifaði leikrit fyrir tíu árum um samkynhneigðan prest sem lést úr alnæmi. Við settum verkið upp í Guðríðarkirkju og því hlaut ég að taka Guð og trúna með í þetta sem var ekki öllum að skapi. Þá hugsa ég til góðs vinar míns sem var alltaf að tala við mig um guð- dóminn og trúna – og þá sagði hann alltaf: „Ég er viss um að Guð elski mig þótt ég sé hommi.“ Og ég svar- aði alltaf: „Ég veit ekki alveg hvern- ig Guð hugsar, en það er líka eitt- hvað sem ég er alveg viss um.“ Hilmar: Ég fór að hugsa það í vik- unni, þar sem við stóðum í þessari baráttu, hvað ég fékk ótrúlega mikið af fallegum skilaboðum með hlýjum orðum og stuðningi. Það skiptir svo miklu máli að segja fólki að maður styðji það, að maður sé til staðar og þyki vænt um það. Að setja það í orð og passa sig á að segja það við fólk. Ég held að við gerum það ekki nógu oft. Manni hættir til að einblína á þetta neikvæða. Guðrún: Já, maður á að gera meira af þessu. Maður stendur ekki einn í baráttu. Bæði í pólitík Hilmar er formaður Samtakanna 78 í sjálfboðaliðastarfi. Hvað starf- ar þú dagsdaglega? Hilmar: Ég er alþjóðafulltrúi á skrifstofu borgarstjóra. Á okkar tímum eru mikil samskipti á milli ríkja, landa og borga. Ég er mennt- aður alþjóðastjórnmálafræðingur en með arkitektúr í grunninn. List- in og pólitíkin hafa alltaf togast á í mér. Guðrún: Ég er alveg sannfærð um að því fleiri listamenn í pólitík, því betra. Ég átti stuttan pólitískan feril fyrir nokkrum árum. Þá fylgdi ég Ólafi F á F-lista og fór inn í borg- arstjórn sem varaborgarfulltrúi. Það er reynsla sem ég hefði ekki viljað vera án. Það sem kom mest á óvart var hvað fólkið sem starfar við þetta eru miklar ágætismann- eskjur. Alveg frábært fólk. Það eru allir að vinna vinnuna sína og gera eins vel og þeir geta. Ég hafði mjög gaman af þessu en það var svolítið gott að vera á þeim aldri að ég var ekki með neina drauma um pólitísk- an feril. Ég hafði þetta frelsi sem maður fær þegar maður er orðinn gamall. Maður er hættur að vinna og gerir það sem mann langar til. Þetta er svo yndislegt hlé á færi- bandinu, svona áður en því lýkur. En þú, Hilmar? Hefur þú beinlínis verið í pólitík? Hilmar: Ég hef líka átt minn póli- tíska feril. Ég hef alltaf haft mik- inn áhuga á pólitík og byrjaði að lesa blöðin tíu ára. Ég var örugg- lega mjög undarlegt barn, var inni- púki og vildi bara teikna og lita. En minn pólitíski ferill hófst þegar ég var tvítugur í bæjarstjórn á Ísafirði. Við vorum menntaskólakrakkar og buðum fram undir merkjum Fönk- listans og fengum tvo fulltrúa af ell- efu. Það var mjög dýrmæt reynsla. Svo hef ég alltaf verið viðloðandi þetta á einhvern hátt og þá aðallega á sviði mannréttinda. Og það er rétt þetta með pólitíkina og listina. Ég lærði arkitektúr og starfaði við það í einhver ár en tók svo master í alþjóðasamskiptum. Þetta vinnur vel saman. Það er nauðsynlegt að hafa list í pólitíkinni, enda er það skapandi starf að skapa samfélag og pólitíkin er svo mikið í listinni. Svo hangir þetta allt saman á heimspek- inni, hún er alltaf undirliggjandi. Eignast börn á gamals aldri Guðrún: Já, þú ert frá Ísafirði. Ég elska Ísafjörð. Fyrir hundrað árum þegar ég ferðaðist með leikhópum í kringum landið með leiksýningar þá var alltaf aðalatriðið að koma á Ísafjörð. Það voru líka svo margir af gömlu leikurunum að vestan sem rifust um hvaða bær fyrir vestan væri menningarlegastur. Þeir eru allir dánir núna, þegar maður er orðinn 79 ára þá er maður alltaf að tala um dáið fólk. Það var líka svo gamalgróið leikfélag á Ísafirði og áhorfendur svo þjálfaðir. Hilmar: Já, ég tók þátt í starfi Litla leikklúbbsins á Ísafirði og Ísafjörður hefur náttúrulega alltaf verið mikill menningarbær. Hér upphefst mikil umræða um menningarlífið á Ísafirði og gaman- sögur af Ísfirðingum kitla hlátur- taugarnar. Sumt ekki prenthæft og allt er það hreinlega efni í aðra grein. Að lokum talar Hilmar um að hann hafi lært á píanó og verið mikið inni á heimili hjónanna sem ráku tónlistarskólann, sem Guðrún þekkir einnig til. Hilmar: Já, vonandi fer eitthvað af þessu menningarlega uppeldi niður til litla sonarins. Guðrún: Áttu lítinn son? Hilmar: Já, ég var ekki viss um að ég myndi eignast börn en svo fann ég þörfina til þess og eignaðist son á gamalsaldri – orðinn 37 ára. Guðrún: Ég var orðin fertug þegar ég eignaðist Ragnar – þenn- an heimsfræga (hér er mikið hlegið) og ég hef aldrei átt auðveldari með- göngu og fæðingu. En ég á þrjú börn og þau eru í raun þrjú einbirni enda um áratugur á milli þeirra allra. Hilmar: Ég hef ekki samanburð- inn en mér hefur verið sagt að það sé munur á þessu, eftir því hvort maður eignist börn ungur eða eldri. Maður er náttúrulega kominn með heilmikla reynslu sem er gott en svo þarf maður að passa sig að vera ekki of fastur í sínum skorðum. Kannski verður erfiðara að breyta um lífs- stíl en þetta er skemmtileg áskorun. Guðrún: Þú þarft ekki að vera hræddur við neitt. Það eina sem ég kunni var að kela við þau. Ég fór ekki eftir neinum uppeldisreglum og hlustaði á engin ráð. Hilmar: Já, við fjölskyldan höfum það að leiðarljósi. Hann á tvær mæður og einn föður en ég held ekki að aðalatriðið sé hvernig fjöl- skyldan er samansett, við erum bara fjölskylda og það eina sem skiptir máli er að barnið fái ást og atlæti. Guðrún: Já, við eigum ekkert að vera að vanda okkur. Bara elska! Hilmar: Einmitt, svo gera allir sín mistök. Guðrún: Já, og þau láta mann heyra það seinna meir. Hilmar: Ég hlakka til þegar mér verður sagt til syndanna. Og þar með lauk dásamlegri sam- verustund með þessu heiðursfólki á fallegum vordegi í Reykjavík. Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@frettabladid.is Á RÖKSTÓLUM Setja oftar stuðninginn í orð Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og Hilmar Hildarson Magnúsarson, formaður Samtakanna 78, ræða hatursfulla um- ræðu, baráttuna eilífu og pólitíska þátttöku þeirra á rökstólum, auk þess sem barnauppeldi og Ísafjörður koma við sögu. FARIÐ Á FLUG Hilmar og Guðrún sögðu skemmtilegar sögur að vestan og köfuðu djúpt í bæði guðdóminn og réttlætið. Svo hlógu þau ósköp mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ég á þrjú börn og þau eru í raun þrjú einbirni enda um áratugur á milli þeirra allra. Það eina sem ég kunni var að kela við þau. Ég fór ekki eftir neinum uppeldisreglum og hlustaði á engin ráð. Guðrún Það skiptir svo miklu máli að segja fólki að maður styðji það, að maður sé til staðar og þyki vænt um það. Að setja það í orð og passa sig á að segja það við fólk. Hilmar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.