Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 46

Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 46
FÓLK| FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Leikarastarfið verður seint talið fjölskylduvænt. Vinna öll kvöld og helgar. Þessa helgi verð ég því að mestu í leik- húsinu,“ svarar Örn þegar hann er spurður hvernig hann hyggst verja helginni. Örn leikur pabba Línu Langsokks og þar sem hún er með eindæmum vinsæl eru margar sýningar um helgar. „Mín- ar helgar fara í að skemmta fólki. Hversu vel sýningarnar ganga er bara lúxusvandamál,“ segir hann og hlær. „Það er draumur hvers leikara að sýningunum sé vel tek- ið. Stundum gengur vel og stund- um ekki,“ segir Örn sem segist ekki hafa lent í því að hlaupa í sjóræningjafötum úr Línu Lang- sokk inn á svið breskra verka- manna í Billy Elliot. „Annars er það misjafnt hvað fólki finnst skemmtilegt. Einu sinni lék ég í mjög þungu dramatísku leikverki þar sem söguhetjan framdi sjálfs- morð. Eftir sýninguna kom eldri kona baksviðs og sagði: „Mikið óskaplega var gaman.“ Líklegast finnst flestum alltaf gaman að koma í leikhús.“ GÓÐIR VINIR Örn segist sakna Spaugstofunnar, enda starfaði hún í 20 ár. „Hún var hluti af lífi mínu. Svona er leikhúsið, sýning gengur vel um tíma og svo er hún búin. Þessi Spaugstofuleiksýning entist óvenju lengi. Við skemmtum okkur alltaf vel á meðan á þessu stóð, það var gaman í vinnunni á hverjum degi. Við félag- arnir erum núna hver á sínum staðnum en hittumst reglulega. Við erum góðir vinir utan leik- hússins. Okkar bestu stundir eru plokkfiskur í hádeginu á Múla- kaffi,“ segir Örn léttur í skapi. Utan leikhússins hefur Örn starfað hjá fyrirtæki sem heitir Gerum betur ehf. „Ég fer á milli fyrirtækja með litlar hugvekjur sem fjalla annars vegar um fyrirbærið „hrós“ og hins vegar „samstarfsmaður“. Ég vinn þetta svolítið út frá upplifun minni í leikhúsinu. Ég bendi fólki á hvað það getur verið gott að vinna saman ef maður lætur sér líða vel á jákvæðum nótum. Þetta hefur gengið mjög vel. Ég tala og fólk hlustar, síðan tek ég gjarnan eitt lag í lokin. Hrós getur verið árangursrík aðferð til að láta sér og öðrum líða vel í vinnunni.“ FYRIR ÚTLENDINGA Þetta er ekki það eina því undan- farin ár hefur Örn verið með leik- þátt á ensku í Hörpu ásamt Karli Ágústi Úlfssyni. Þessi sýning heitir How to Become Icelandic in 60 Minutes og fer fram á ensku fyrir útlendinga. „Við Karl skipt- um þessu á milli okkar þar sem þetta er dagleg sýning,“ útskýrir hann. Þegar Örn er spurður hvenær hann hafi tíma fyrir fjölskylduna, svarar hann: „Sonur minn býr á Akureyri ásamt konu og þremur börnum, ein dóttir mín býr í Nor- egi og önnur hér í bænum. Leik- húsið kemur auðvitað í veg fyrir mikil ferðalög svo maður hittir ekki fólkið sitt eins oft og maður vildi. Það koma þó alltaf smá göt á milli sýninga en það eru bara lítil nálargöt. Sumarfríið fer svo líklega í leik í Hörpu.“ EKKI FJÖLSKYLDUVÆNT Örn á farsælan feril að baki í leik- húsinu og hefur alltaf haft nóg að gera. „Já, ég er mjög sáttur við leikferil minn,“ segir hann. Faðir hans, Árni Tryggvason, átti sömuleiðis farsælan leik- feril. Hann er núna orðinn 91 árs. „Hann fylgist alltaf með mér eftir því sem hann getur. Ellimerkin eru auðvitað farin að gera vart við sig,“ segir Örn, sem fylgdi föður sínum oft í leikhús á yngri árum. „Ég sótti pabba oft í leik- húsið þegar ég var kominn með bílpróf. Þá settist ég inn á sýn- ingar meðan ég beið eftir honum. Það má vera að þetta hafi haft áhrif á að ég fetaði þessa braut. En pabbi hvatti mig ekki til þess. Sérstaklega þar sem þetta er ekki fjölskylduvænt starf, setur miklar kröfur á maka og börn. Leikari missir af mörgum viðburðum í fjölskyldunni. Þar utan getur hann ekki hringt sig inn veikan. Ég get nefnt dæmi um tvo unga leikara sem ég starfa með núna og eiga von á börnum. Þeir eru afar stressaðir yfir að börnin komi í heiminn í miðri leiksýn- ingu. Þá reynum við auðvitað að bjarga málum og hlaupa inn í hlutverkin þeirra en þetta getur verið snúið,“ segir Örn. Þrátt fyrir allt er leiklistin eftir- sóknarverð hjá ungu fólki og færri fá hlutverk en vilja. „Leikur- um hefur fjölgað mikið en margir eru mjög duglegir að bjarga sér með alls kyns uppákomum. Menn skapa sér vettvang sem er frábært,“ segir Örn. Í Billy Elliot eru verkamenn í verkfalli í heilt ár án árangurs. Það er drungi verkfalls og fátækt- ar í verkinu. Þegar Örn er beðinn um að koma með gullkorn úr hugvekjum sínum svona í lokin, núna þegar verkföll eru yfir- vofandi í þjóðfélaginu, er hann fljótur að svara; „Hrós er sólskin í orðum.“ ■ elin@365.is SAKNAR SPAUGSTOFUNNAR ALLTAF VINSÆLL Örn Árnason leikari hefur í nógu að snúast þessa dagana. Hann leikur í þremur vinsælum sýningum í Borgarleikhúsinu, Beint í æð, Línu Langsokk og Billy Elliot. Það þýðir að hann er sjaldan heima. HELGIN ALLTAF GAMAN Örn hefur alltaf haft nóg að gera og núna skemmtir hann leikhús- gestum Borgarleikhússins í þremur vinsælum sýningum. MYND/VALLI SPAUGIÐ Örn segir að þeir félagar hittist oft, enda nær vinskapurinn langt út fyrir leik- húsið. Hávaði skaðar heyrnina Hlíðasmára 11 - Kópavogi - 534-9600www.heyrn.is Heyrnarskerðing er varanleg Verndaðu heyrnina á meðan þú hefur hana. Tónlistarfólk notar heyrnarsíur sem dempa hávaða án þess að þær breyti blöndun og tón- blæ hljóðsins. Bjóðum fjölbreytt úrval bæði af stöðluðum og sérsmíðuðum heyrnarsíum. Geðhjálp býður til málþings um þunglyndi í tilefni af útgáfu bókarinnar Ég átti svartan hund eftir Matthew Johnstone Hótel Reykjavík Natura, miðvikudaginn 6. maí frá kl 14 til 17.00. Fundarstjóri Anna G. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar 14.00 – 14.15 Í föruneyti Svarta hundsins. Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar. 14.15 – 14.30 Í feluleik með Svarta hundinum. Kara Ásdís Kristinsdóttir, verkefnisstjóri hjá Geðhjálp. 14.30 – 15.30 Tamið og talað um Svarta hundinn. Matthew Johnstone, höfundur Ég átti svartan hund. 15.30 – 15.45 Tónlistaratriði. Magga Stína. 15.45 – 17.00 Samstuð. Veitingar, bóksala, áritun höfundar. Matthew Johnstone heldur einnig fyrirlestur um seiglu á Kex Hostel laugardaginn 9. maí kl. 11. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á viðburðina með nafni í gegnum netfangið verkefnisstjori@gedhjalp.is. Aðgangur ókeypis. SVARTI HUNDURINN ER RAUNVERULEGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.