Fréttablaðið - 02.05.2015, Síða 48
FÓLK|
Ég ætla að eyða kvöldinu með fé-lögum mínum í Hvanndalsbræðr-um á Græna hattinum á Akureyri.
Við ætlum að halda þar tvenna útgáfu-
tónleika til að fagna útgáfu sjöundu
plötu okkar, sem ber heitið „Hvanndals-
bræður klappa ketti“. Við spilum nýju
plötuna í bland við eldra efni. Þetta er
splunkuný plata sem kom út á alþjóð-
lega plötubúðadeginum, sem var jafn-
framt afmælisdagur Vals trommara,“
segir Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson,
uppistandari og gítarleikari hljómsveit-
arinnar Hvanndalsbræðra, þegar hann
er spurður út í helgarplönin.
Kvöldið ætlar hljómsveitin að hefja
á því að fara út að borða og skella í sig
einum eða tveimur köldum fyrir tón-
leikana.
„Það er að segja ég, strákarnir
drekka bara Pepsi max enda hættir að
drekka blessaðir,“ segir Rögnvaldur
sposkur.
FÍN FÖT OG FÍFLAGANGUR
Gegnum árin hefur jafnan verið stutt í
glens og grín hjá Hvanndalsbræðrum
og reiknar Rögnvaldur með að það
verði einnig í kvöld.
„Við vorum sérstaklega duglegir að
fíflast í upphafi ferilsins en það var nú
aðallega af því að við kunnum svo fá
lög og þurftum að fylla upp í dagskrána.
Svo hefur þetta bara haldið áfram þó
að nú höfum við úr nógu efni að moða.
Það verða örugglega einhver fíflalæti í
kvöld, allavega í hinum strákunum.“
„Við Hvanndalsbræður höfum líka
alltaf lagt mikið upp úr fáguðum klæðn-
aði og munum verða klæddir í okkar
fínasta dress í tilefni dagsins. Greiðslan
verður sérstaklega vönduð í upphafi
kvölds. Þetta verða annars tvennir tón-
leikar, bæði klukkan átta og ellefu.
VAKNAR EKKI AÐ EIGIN ÓSK
Það eru mörg ár síðan ég svaf út. Ég er
yfirleitt vaknaður á milli klukkan sex
og sjö og það er ekkert endilega vegna
þess að ég kjósi það en hausinn á mér
virðist halda að þetta sé mín heitasta
ósk og þetta er ekkert að fara að breyt-
ast,“ segir Rögnvaldur þegar hann er
spurður út í venjulega helgarrútínu.
„Flestar helgar er ég í einhverju
skemmtanastússi en ég passa að hafa
alltaf helgar á milli þar sem ég er heima
og hef það huggulegt með mínu fólki,“
segir Rögnvaldur, en hann á þrjá stráka
með eiginkonu sinni, Birnu Guðrúnu
Baldursdóttur.
„Ég eyði langmestu af mínum frí-
tíma í að hlusta á tónlist og get hlustað
tímunum saman á plötur og diska en
stundum sest ég niður og horfi á eitt-
hvað skemmtilegt í sjónvarpinu. Finnst
bara svo sjaldan eitthvað skemmtilegt
í sjónvarpinu og svo les ég oftast í bók
áður en ég fer að sofa. Reyndar er ég
svo kvöldsvæfur að yfirleitt næ ég ekki
að lesa nema 2-3 blaðsíður á kvöldi.
Þykk bók getur enst mér árum saman.
SMURSTÖÐVARKAFFI OG DÝR Í MATINN
Kaffi er yfirleitt það fyrsta sem fer inn
fyrir mínar varir á morgnana en eftir
svona tvo tíma fæ ég mér ristað brauð
og kaffi og svo aðeins meira kaffi og ein-
staka sinnum útbúum við okkur morgun-
mat með öllu, egg, beikon, rúnstykki,
pylsur, baunir, pönnukökur, svona þetta
helsta sem líkaminn þarf á að halda. Svo
er ég svo gamaldags að ég vil hafa kaffið
mitt með kaffibragði og ekki láta hræra
einhverju helvítis drasli saman við það.
Ég kalla þetta stundum smurstöðvarkaffi
sem ég drekk, svona kaffi eins og maður
fær gefins á smurstöðvum.
Við fjölskyldan gerum oft vel við
okkur í mat um helgar og eldum þá eitt-
hvað sem er verulega þungt í maga eins
og nautasteik, lambalæri, hrygg eða ein-
hver önnur dýr sem einhverjir bændur
eru hættir að nota.
MEIRA TÓNLEIKAHALD
Næstu helgi erum við bræðurnir að
spila í skemmtidagskrá sem ber heitið
„Lúðar og létt tónlist“ og þar komum
við fram ásamt Gísla Landa Einarssyni
og eftirhermunni síkátu Sólmundi Hólm.
Þetta prógramm höfum við flutt tvisvar
fyrir fullu húsi, fyrst í Hofi hérna á Akur-
eyri og síðan í Hjálmakletti í Borgarnesi
en um næstu helgi verðum við í Vala-
skjálf á Egilsstöðum.“ ■ heida@365.is
FÁGAÐIR
„Við Hvanndals-
bræður höfum
líka alltaf lagt
mikið upp úr fág-
uðum klæðnaði
og munum verða
klæddir í okkar fín-
asta dress í tilefni
dagsins.“
VILL KAFFIÐ MEÐ
KAFFIBRAGÐI
SEFUR ALDREI ÚT Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson spilar á tvennum tónleikum
í kvöld á Græna hattinum með hljómsveit sinni Hvanndalsbræðrum. Hann sefur
aldrei út þótt glaður vildi og finnst best að byrja daginn á smurstöðvarkaffi.
EKKERT DRASL Í
KAFFIÐ Rögnvaldur
Bragi Rögnvaldsson
tónlistarmaður spilar á
Græna hattinum á Akur-
eyri í kvöld en hljómsveit
hans Hvanndalsbræður
fagnar útgáfu sinnar
sjöundu plötu.
MYND/BIRNA GUÐRÚN BALDURS-
DÓTTIR
HELGIN
Ágætis millibiti eða forréttur, eða bara
sem nasl á síðkvöldi.
150 g chorizo-kryddpylsa
6 tortillur
200 g rifinn ostur
1 rauður chilli-pipar
Skerið pylsuna smátt. Kljúfið chilli-pipar-
inn í tvennt og fræhreinsið. Setjið chorizo,
chilli-pipar og ost á helminginn á tortillu.
Leggið hana saman til helminga. Grillið á
báðum hliðum þar til osturinn er bráðn-
aður. Skerið í þríhyrninga og berið fram.
Ágætt er að bera salsasósu og sýrðan
rjóma fram með kökunum. Það er þó ekki
nauðsynlegt. Athugið að chorizo-pylsur
eru mismunandi sterkar.
Hægt er að grilla quesadillas á sam-
lokugrilli, útigrilli eða á pönnu.
QUESADILLAS MEÐ CHORIZO
Þetta er vinsæll mexíkóskur réttur sem einfalt er að gera.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
P
R
E
N
T
U
N
IS
Bestu meltingargerlar
sem ég hef prófað
”
“Víðir Þór Þrastarsson,
íþrótta- og heilsufræðingur
frá Háskóla Íslands.
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t
ok
tó
be
r–
de
se
m
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU