Fréttablaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 100
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 60
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér
nánari upplýsingar um prófið og dæmi um
prófspurningar sem finna má á heimasíðu
Læknadeildar, www.laeknadeild.hi.is
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ
Inntökupróf í Læknadeild HÍ
Læknisfræði og sjúkraþjálfun
Inntökupróf í Læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun
verður haldið í Reykjavík fimmtudaginn 11. og föstudaginn 12. júní 2015.
Nánari upplýsingar verða sendar próftakendum eftir að skráningu er lokið.
Þátttakendur þurfa að skrá sig sérstaklega í inntökuprófið og er skráning opin
til og með 20. maí 2015. Skráning fer fram á netinu, www.laeknadeild.hi.is
Próftökugjald er 20.000 kr.
Þegar inntökuprófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sam-
bæri legu prófi og skilað inn staðfestingu því til sönnunar. Umsóknin telst því ekki gild
fyrr en staðfest afrit af stúdentsprófsskírteini eða rafrænt stúdentsprófs skírteini úr Innu
hefur borist skrifstofu Nemendaskrár Háskóla Íslands, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4,
101 Reykjavík.
Skráning í inntökuprófið getur farið fram þótt nemandi hafi ekki lokið stúdentsprófi en
þá skal skila staðfestingu til Nemendaskrár Háskóla Íslands um að stúdentsprófi verði
lokið áður en inntökupróf hefst. Staðfesting þarf að berast eigi síðar en 20. maí 2015.
Undirbúningur prófsins fer fram af hálfu Lækna-
deildar með sérstakri ráðgjöf, m.a. frá kennurum
framhaldsskóla og Námsmats stofnun. Prófið tekur
tvo daga, með þremur tveggja tíma próflotum
fyrri daginn, en seinni daginn eru tvær próflotur:
Aðgangspróf fyrir háskólastig (A-próf), 3,5 klst.,
auk einnar tveggja tíma próflotu líkri þeim sem
skipulagðar eru fyrri daginn. A-prófið gildir 30%
af inntökuprófinu. Niðurstaða prófsins birtist í
einni einkunn sem verður reiknuð með tveimur
aukastöfum. Reiknað er með að niðurstaða liggi
fyrir ekki síðar en um miðjan júlí.
Árið 2015 fá 48 nemendur í læknisfræði
og 35 í sjúkraþjálfun rétt til náms í
Læknadeild Háskóla Íslands og skulu
þeir hafa skráð sig hjá Nemendaskrá
fyrir 1. ágúst. Þeir sem ekki öðlast rétt
til náms í Læknadeild, eiga þess kost að
skrá sig, innan sömu tímamarka, í aðrar
deildir gegn greiðslu skrásetningar -
gjalds skv. reglum Háskóla Íslands.
Ein þekktasta tónlistarkonan
í teknóheiminum í dag, Nina
Kraviz, heldur partýkvöld á
skemmtistaðnum Paloma í
miðbæ Reykjavíkur 15. maí.
Um er að ræða fyrsta kvöld-
ið í Trip records-útgáfutón-
leikaferð hennar. „Hún er
vön að spila á risastórum
klúbbum og tónlistarhátíð-
um, svo það er mjög sér-
stakt og skemmtilegt
að hún velji að hefja
túrinn hér. Þegar ég
útskýrði fyrir henni
hversu lítill staður
Paloma væri þá varð
hún bara enn spennt-
ari fyrir vikið,“ segir
Arnviður Snorrason, Addi eða
betur þekktur sem EXOS. Nina
spilaði á Sónarhátíðinni í febrúar
og hefur síðan þá komið þrisv-
ar til landsins. „Hún er rosa-
lega hrifin af Íslandi, íslensku
teknó og bara íslenskri tónlist
og segist finna sterka teng-
ingu við landið.“ Tónleika-
ferðin, sem hún kallar
Trip líkt og útgáfu-
fyrirtæki hennar,
hefst eins og áður
sagði hér. „Næstu
Trip-útgáfutónleikar
verða síðan haldnir í
Detroid, New York og
Barcelona, svo þetta
er magnað.“ - as
Kraviz væntanleg
aft ur í maí
Teknóstjarnan hefur tónleikaferð sína á Paloma.
STÓR STJARNA Nina er vön að spila á risastórum hátíðum og klúbbum.
MYND/CARIN ABDULLA
NINA KRAVIZ
Aðdáendur Airwaves-hátíðarinn-
ar hafa svo sannarlega ástæðu til
þess að fagna, en staðfest hefur
verið að hátíðin verður haldin á
skemmtistaðnum Nasa að nýju í
ár. „Um leið og við heyrðum að það
ætti að opna staðinn að nýju, þá
fórum við á stúfana og tryggðum
okkur staðinn á Airwaves,“ segir
Grímur Atlason, framkvæmda-
stjóri Iceland Airwaves.
Hátíðin hefur ekki verið haldin
á skemmtistaðnum Nasa í fjögur
ár. „Þetta var alltaf einn af okkar
uppáhaldsstöðum og það var hálf
blóðugt að missa hann á sínum
tíma. Nasa spilaði mikilvægt hlut-
verk á Airwaves, var ekki of lítill
og ekki of stór.“
Grímur býst við að staðurinn
verði notaður öll kvöldin, enda
skipti miklu máli að geta dreift
hátíðargestum og haft staði sem
henta sem flestum tónleikum.
„Þetta var akkúrat kryddið sem
okkur vantaði aftur. Þetta tekur
álag af litlu stöðunum og tekur
giggin sem passa ekki í Hörpu.
Heiðurinn verður allur þess sem
fær að opna Airwaves á Nasa.“ - asi
Heiðurinn er þess
sem opnar á Nasa
Iceland Airwaves-hátíðin verður haldin á Nasa á ný.
STEMNING Hljómsveitin HAM á Airwaves á NASA 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞOR BIRKISSON