Fréttablaðið - 02.05.2015, Síða 104
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 64
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLL
TOTAL FILM
ÁLFABAKKA
LARRY KING - LARRY KING NOW
NANCY JAY - DAYBREAK USA
AGE OF ADALINE 5, 8, 10:20
AVENGERS 2 3D 2, 7, 10
MALL COP 2 5, 8
ÁSTRÍKUR 2D 2, 4, 6 - ÍSL TAL
FAST & FURIOUS 7 10
LOKSINS HEIM 2D 1:50 - ÍSL TAL
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
SÝND Í 2D
ÍSL TAL
Ég skil ekki af hverju mér, einsog svo mörgu öðru vinnandi fólki,
bregður alltaf svo í brún þegar við
mér blasir værukærð ráðamanna
varðandi hag vinnandi fólks. Þetta er
alveg undarlegt því mér mætti vera
hugur þeirra ljós fyrir löngu. Þeim
er kannski ekkert illa við okkur en
þeim þykir hagur allra annarra vega
þyngra en okkar. Við erum einsog
uppáhaldslið þeirra í belgísku knatt-
spyrnunni meðan gamla LÍÚ er
landsliðið.
ÞESSI óskiljanlegi skrekkur minn
gerir vart við sig þegar góðir og
gegnir sjálfstæðismenn tala um
verkfallsréttinn einsog einhverja
óhollustu í höndum óábyrgs fólks
sem jafnvel ætti að banna. Eins
þegar fjármálaráðherra segir að
ekki megi ganga svo langt í jöfnuð-
inum að hann komi niður á hvatan-
um. Og svo bregður mér alltaf jafn
mikið þegar þingmenn rétta okkur
löngutöng og vasast með fjölskyldu-
mál sín í hinum ýmsu nefndum.
ÞETTA er enn óskiljanlegra fyrir
þær sakir að ég bý á Spáni þar sem
bankarnir fóru á hausinn en hin
vinnandi stétt hélt í honum lífi og
kostaði það blóð, svita og tár. Nú eru
bankarnir farnir að græða aftur
en enginn talar um að þeir ættu að
borga fyrir bjargráðin.
SVO var fjármálaráðherra Grikkja
gerður hornreka einsog mávur á
hrafnaþingi þegar hann hafnaði
þeirri kröfu evrópskra kollega sinna
að grískur almenningur yrði húð-
strýktur enn frekar. Svo virðast
ráðamönnum víðast í Evrópu stafa
ógn af því að vinnandi fólk búi í eigin
húsnæði.
ÞAÐ virðist ekki rúmast í mínum
hausi að ráðamenn eru flestir af allt
öðru sauðahúsi, þetta eru flestir stór-
eignamenn og viðskiptamenn sem
auðgast með arði, vöxtum og ofur-
launum en tikka ekki eftir töxtum
og stimpilklukkum einsog við sem
kjósum þá.
ÉG áttaði mig á þessum kvilla
mínum þegar tölva mín „krass-
aði“ og harði diskurinn tæmdist. Ég
„krassa“ greinilega sjálfur annað
slagið svo staðreyndir þurrkast úr
vitund minni. Ég hef því ákveð-
ið að fá mér Dropbox, sem reyndist
tölvu minni svo vel, en þar get ég
til dæmis geymt þrælahald, léns-
kerfi og vistarbönd en eins frönsku
byltinguna og vökulögin og þannig
gleymi ég ekki að þó að mannúðin sé
nú meiri þá er enn við sama djöful-
inn að etja.
Dropbox fyrir pöpulinn
Svo virðist sem frosið hafi í helvíti
en Taylor Swift lét á dögunum hafa
eftir sér að sjálfumglaði rapphund-
urinn Kanye West, væri stútfullur
af frábærum hugmyndum.
Ráku margir upp stór augu vest-
anhafs í kjölfarið, en listamenn-
irnir hafa eldað grátt silfur í þó
nokkurn tíma vegna furðulegrar
framkomu Kanye á VMA-hátíð-
inni árið 2009, þegar hann trufl-
aði Swift í þakkarræðunni og tjáði
umheiminum að Beyoncé væri
réttmætur sigurvegari.
Ástæða þessara ummæla frök-
en Swift ku vera orðrómur sem
fór á kreik um mögulegt samstarf
þeirra eftir að til þeirra sást ræða
saman í febrúar og hefur fengið að
grassera síðan.
Söngkonan sá sig knúna til að
útskýra þetta fyrir heimsbyggð-
inni, sem getur tekið ró sína á ný,
því samstarf þessara erkióvina
er ekki á dagskránni á næstunni.
Þó ber að hafa í huga að aldri
skuli segja aldrei þegar kemur að
skemmtanaiðnaðinum. - ga
Finnst Kanye pínu frábær
Taylor Swift kom með afar óvænt útspil í illvígri deilu tónlistar-
mannanna, sem lifað hefur góðu lífi í fj ölmiðlum síðan árið 2009.
ÓLÍK Stjörnurnar hafa tekist á í gegnum tíðina, en nú
virðist Swift ætla að grafa stríðsöxina. FRÉTTABLAÐIÐ/NORDICPHOTOS
Save the Children á Íslandi