Fréttablaðið - 07.05.2016, Side 6

Fréttablaðið - 07.05.2016, Side 6
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður haldinn fimmtudaginn 26. maí kl. 17.00, í húsakynnum Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga að Sigtúni 42, 2. hæð, Reykjavík. Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Reykjavík, 26. apríl 2016 Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar Dagskrá 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins 2. Önnur mál löglega upp borin Starfsemi sjóðsins á árinu Sjóðfélagar Ársfundur 2016 Yfirlit yfir afkomu ársins 2015 Breyting á hreinni eign (í milljónum kr.) 2015 2014 Kennitölur 2015 2014 Starfsemi sjóðsins var með hefðbundnum hætti. Raunávöxtun sjóðsins var góð á árinu 2015 eða 6,3% og meðalraunávöxtun síðastliðin fimm ár er 4,2%. Hrein eign til greiðslu lífeyris var 72,2 milljarðar króna í árslok 2015 og hækkaði um tæpa 4,2 milljarða króna á milli ára. Enginn starfsmaður var á launaskrá hjá sjóðnum þar sem Lífeyrissjóður starfsmanna sveitar- félaga hefur frá 1. júní 1999 annast daglegan rekstur sjóðsins. Á árinu 1998 var sjóðnum lokað fyrir nýjum sjóðfélögum. Þeim einum sem greiddu til sjóðsins á þeim tíma er heimilt að greiða áfram til hans, enda hafi iðgjald verið greitt til sjóðsins óslitið frá þeim tíma. Þetta eru þeir sem greiddu iðgjöld vegna starfa hjá Reykjavíkurborg, stofnunum borgar- innar, sjálfseignastofnunum eða félögum skrásettum í Reykjavík sem sveitarfélagið á aðild að og voru iðgjaldaskyldir til sjóðsins. Í stjórn sjóðsins eru: Skúli Helgason, formaður, Ása Clausen, Heiðar Ingi Svansson, Hildur Sverrisdóttir og Þorgrímur Hallgrímsson. Framkvæmdastjóri er: Gerður Guðjónsdóttir. Iðgjöld 2.109 2.049 Lífeyrir (3.606) (3.212) Fjárfestingatekjur 5.858 3.583 Fjárfestingagjöld (118) (102) Rekstrarkostnaður (91) (75) Hækkun á hreinni eign á árinu 4.153 2.242 Hrein eign frá fyrra ári 68.077 65.835 Hrein eign til greiðslu lífeyris 72.230 68.077 Nafnávöxtun 8,4% 5,2% Raunávöxtun 6,3% 4,1% Raunávöxtun 5 ára meðaltal 4,2% 3,8% Skuldir umfram áfallnar skuldbindingar -22,5% -18,7% Fjöldi sjóðfélaga 498 562 Fjöldi lífeyrisþega 3299 3109 Efnahagsreikningur (í milljónum kr.) 2015 2014 Verðbréf með breytilegum tekjum 7.731 6.965 Verðbréf með föstum tekjum 61.728 59.347 Veðlán 798 797 Bankainnistæður 1.757 408 Kröfur 289 262 Aðrar eignir 105 357 Skuldir (177) (59) Hrein eign til greiðslu lífeyris 72.230 68.077 Í öðrum heimi Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna bauð í gær gestum á fjöltefli í Ráðhúsinu að setja sig í spor sýrlenskrar stúlku og kynnast lífi hennar í flóttamannabúðum í Jórdaníu í gegnum sýndarveruleikagleraugu. Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra tók boðinu og svipaðist um á framandi slóðum. Fréttablaðið/Vilhelm Skólamál Stúlku sem varð fyrir grófri líkamsárás skólafélaga sinna hefur verið boðin aðstoð sálfræð- ings til að vinna úr áfallinu sem hún varð fyrir. Starfsmenn skóla- og frí- stundasviðs ræddu við skólastjóra og starfsfólk Austurbæjarskóla í gær og fóru yfir stöðuna. Faðir stúlkunnar hefur gagnrýnt samskiptaleysi við skólayfirvöld og Reykjavíkurborg. Enginn úr skól- anum hafi enn haft samband við fjölskylduna til að athuga um líðan stúlkunnar. Hann segir stúlkuna hafa líka orðið fyrir ofbeldi og líflátshót- unum innan veggja skólans og hefur farið fram á óháða nefnd til að skoða málsmeðferð hennar í skólanum. „Ég hef þurft að sækja hana í skól- ann í aðstæður sem voru afar ógeð- felldar. Hún hafði þá leitað skjóls á skrifstofu námsráðgjafa. Við sátum þar, ég, hún og námsráðgjafinn og á meðan hömuðust fjórar stúlkur á hurðinni. Starfsmenn skólans þurftu að stilla sér upp á milli okkar til að við kæmumst út,“ segir faðirinn frá. Faðirinn segist upplifa málsmeð- ferðina sem hvítþvott. „Ábyrgðin liggur hjá skólastjórnendum, við höfum kallað eftir því með hvaða hætti öryggi dóttur okkar er tryggt í skólanum en fengið þau svör að það sé bundið trúnaði. Farið sé eftir verk- lagsreglum.“ „Við viljum ræða lausnir,“ segir Guðlaug Sturlaugsdóttir, skrif- stofustjóri grunnskólasviðs Reykja- víkurborgar, sem setti sig í samband við foreldra stúlkunnar til að ræða við þá eftir fundinn. „Kristín Jóhannesdóttir skóla- stjóri  hefur unnið þetta mjög vel og fylgt öllum ferlum. Ég skil samt mjög vel að foreldrarnir upplifi það ekki, vegna þess að það er oft mikil vinna í gangi í skólunum í tengslum við svona mál.  Skólastjóri getur verið að taka á málum án þess að nokkrir viti nema viðkomandi for- eldrar. Þetta er hræðilegt atvik og við sættum okkur ekki við ofbeldi,“ segir Guðlaug. Hún minnir á að tiltekin árás sé utan þeirra lögsögu. „Þetta er  lög- reglumál. Þetta gerist utan skóla og við getum ekki farið inn í slík mál. Málið fer til Barnaverndar og þaðan kemur það líklega aftur til okkar, Barnavernd á þá frumkvæði að þeim samskiptum,“ segir Guðlaug og segir Barnavernd búa yfir úrræðum sem geti reynst börnum í vanda góð. Kristín skólastjóri gekk á milli bekkja í gærmorgun og ræddi við nemendur í fimmta til tíunda bekk í skólanum. Þá sendi skólastjórinn foreldrum barna í skólanum bréf og hvatti for- eldra til að vera í sambandi við skóla- stjórnendur og sálfræðinga á Þjón- ustumiðstöð Miðborgar og Hlíða. Kristín lagði áherslu á það að í skólanum væri einelti og ofbeldi ekki liðið. Það væri ekki nemenda að dæma heldur huga að því að byggja upp góðan skólaanda. kristjana@frettabladid.is Hömuðust á hurðinni með fórnarlambið inni Faðir stúlkunnar úr eineltismálinu í Austurbæjarskóla segir engan þaðan enn hafa haft samband við fjölskylduna eftir grófar barsmíðar fyrr í vikunni. Skóla- stjórinn ræddi við nemendur í gær og sendi foreldrum þeirra hvatningarbréf. Hugurinn er hjá þolanda og fjölskyldu hans en einnig hjá öðrum börnum og fjölskyldum sem málinu tengjast. Kristín Jóhannes- dóttir, skólastjóri Austurbæjarskóla í bréfi til foreldra 7 . m a í 2 0 1 6 l a U G a R D a G U R6 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.