Fréttablaðið - 07.05.2016, Page 12
Auglýsing frá yfirkjörstjórnum
í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður
vegna kosninga til embættis forseta Íslands
þann 25. júní 2016
Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæma norður og suður koma saman til fundar í Ráðhúsi Reykja-
víkur, fundarherbergi borgarráðs, föstudaginn 13. maí nk. milli kl. 13.00 og 15.00 til að veita viðtöku
listum meðmælenda frambjóðenda til embættis forseta Íslands. Stefnt er að því að vottorð yfir-
kjörstjórnanna samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands verði afhent á
fundi föstudaginn 20. maí nk. kl. 13.00.
Mæli kjósandi með fleiri en einum frambjóðanda verður nafn hans fjarlægt af báðum/öllum listum.
Eyðublöð fyrir lista meðmælenda má nálgast á kosningavef innanríkisráðuneytisins
www.kosning.is en þar má einnig finna upplýsingar um framkvæmd kosninganna.
Óskað er eftir því að listar meðmælenda séu blaðsíðusettir.
Til að flýta fyrir yfirferð og vinnslu er mælst til þess að meðmælendalistar verði skráðir með
rafrænum hætti á þar til gerðu vefsvæði á www.island.is áður en þeim er skilað til yfirkjörstjórnar.
Kosningavefur Reykjavíkurborgar verður á slóðinni www.reykjavik.is/kosningar.
Fyrirspurnum má beina til skrifstofu borgarstjórnar gegnum netfangið kosningar@reykjavik.is.
Reykjavík, 6. maí 2016
F.h. yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður,
Erla S. Árnadóttir
Arnar Þór Stefánsson
Fanný Gunnarsdóttir
Páll Halldórsson
Tómas Hrafn Sveinsson
F.h. yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi suður,
Sveinn Sveinsson
Heimir Örn Herbertsson
Sjöfn Ingólfsdóttir
Þóra Hallgrímsdóttir
Þuríður Jónsdóttir
Ekkert sull Aukin lykt Opið allan
hringinn
Tvöföld
einangrun
3.498 KR/STK
MAGICUP
Ég er eiginlega
orðlaus mér finnst
þetta svo leiðin-
legt.
Jóna Hlíf Halldórs-
dóttir, formaður
Sambands ís-
lenskra myndlistar-
manna
Stjórnmál Fréttastofa 365 hefur
ekki fengið viðtal við forseta
Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, eftir
yfirlýsingu Dorritar Moussaieff um
fjármál sín. Örnólfur Thorsson for-
setaritari segir forsetann veikan.
Fréttablaðið óskar svars við því
hvernig forsetinn gat harðneitað
því aðspurður að hann og kona
hans tengdust aflandsfélögum
þegar hann segist jafnframt aldrei
hafa haft upplýsingar um fjárhags-
mál forsetafrúarinnar og hún segist
aldrei hafa rætt fjármál sín og fjöl-
skyldu sinnar við hann.
Þá er óskað eftir svörum við því
hvort forsetinn telji yfirlýsingu
Dorritar frá í fyrradag svara með
fullnægjandi hætti öllum atriðum
varðandi fjármál þeirra hjóna. Eins
hvort Panama-skjölin og umfjöllun
um fjármál hjónanna í fjölmiðlum
hafi áhrif á framboð hans. – snæ
Engin svör frá forsetanum
Bretland Sadiq Khan vann fyrstu
umferð borgarstjórnarkosninganna
í Lundúnum. Í frétt Sky segir að töl-
fræðilega ómögulegt sé fyrir Khan að
tapa seinni umferðinni.
Khan, sem er frambjóðandi Verka-
mannaflokksins, bar sigurorð af Zac
Goldsmith, frambjóðanda Íhalds-
flokksins. Khan fékk 44 prósent
atkvæða og Goldsmith 35.
Kosið var í fjölda sveitarfélaga
í Bretlandi í gær. Verkamanna-
flokkurinn var sigursælastur og
Íhaldsflokkurinn var í öðru sæti.
Frjálslyndir demókratar og þjóð-
ernisflokkurinn UKIP sóttu einnig
nokkuð á.
Reiknað var með að Verkamanna-
flokkurinn fengi slæma útreið í kosn-
ingunum sem yrði prófsteinn á stöðu
Jeremy Corbyn. Stjórnmálaskýrendur
telja að Corbyn hafi rétt sloppið fyrir
horn eftir góðan árangur flokksins
í London og Wales þó að hann hafi
goldið afhroð í Skotlandi.
Þá var kosið til þjóðþinga í Skot-
landi, Wales og á Norður-Írlandi.
Skoski þjóðarflokkurinn missti
meirihluta sinn á þinginu þrátt
fyrir yfirburðasigur. Flokkurinn er
einungis tveimur þingsætum frá
meirihluta.
Ljóst er að flokkurinn mun halda
áfram að fara með stjórnartaumana
Múslimi kosinn sem
borgarstjóri í London
Átta ára valdatíð Íhaldsflokksins í Lundúnum er lokið. Skoski þjóðarflokkurinn
missti meirihluta á skoska þinginu en Verkamannaflokkurinn galt þar afhroð.
Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti
Íslands
44
% 35%
Sadiq Khan
Verkamanna-
flokkurinn
Zac Golds-
mith Íhalds-
flokkurinn
í Skotlandi. Reiknað var með að
flokkurinn myndi freista þess að
koma þjóðaratkvæðagreiðslu um
sjálfstæði Skotlands aftur á dagskrá
en Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra
Skotlands, fór hljótt með það loforð
í sigurræðu sinni þegar ljóst var að
þjóðarflokkurinn hafði misst meiri-
hluta sinn.
Í Wales vann Verkamannaflokkur-
inn yfirburðasigur, tveimur sætum
frá hreinum meirihluta. Þá þóttu það
tíðindi að UKIP fékk sjö menn kjörna.
Þegar þessi frétt var skrifuð var
enn verið að telja atkvæði í kosn-
ingum um norður-írska þingið og of
snemmt að tilgreina sigurvegara.
stefanrafn@frettabladid.is
Heimild: The Guardian *Fyrsta umferð kosninga
ViðSkipti „Við erum ótrúlega sorg-
mædd yfir þessu. Þetta lyktar af því
að hafa verið ákveðið fyrirfram,“
segir Jóna Hlíf Halldórsdóttir, for-
maður Sambands íslenskra mynd-
listarmanna (SÍM). ASÍ hefur selt
Ásmundarsal þar sem Listasafn ASÍ
hefur verið til húsa um árabil. Kaup-
endurnir eru fjárfestarnir Sigur-
björn Þorkelsson og Aðalheiður
Magnúsdóttir og kaupverðið er 168
milljónir króna.
Tilkynnt var að til stæði að selja
safnið þann 29. apríl síðastliðinn.
Í gær, föstudag, var svo greint frá
nýjum kaupendum.
„Okkur finnst ótrúlega skrýtið að
ASÍ hafi ekki frestað sölunni fram á
haust og farið í samtal við SÍM, ríki
og borg. Við ætluðum að hittast á
morgun [í dag] og athuga hvort við
gætum sett af stað einhvers konar
fjáröflun. Við vildum virkilega
skoða alla möguleika en við þurfum
lengri tíma en viku.“
Samkvæmt tilkynningu sem send
var vegna sölunnar er markmiðið
að húsið verði áfram nýtt undir
lista- og menningarstarfsemi.
„Þó að kaupandinn segist ætla
að vera með myndlist og hönnun
þá er þetta komið í einkaeigu og þá
verða það alltaf útvaldir sem fá að
sýna. Alþýðusambandið selur húsið
manni sem er einn ríkasti maður
Íslands. Ég er eiginlega orðlaus mér
finnst þetta svo leiðinlegt,“ segir
Jóna Hlíf Halldórsdóttir. – snæ
Sorgmæddur formaður
vegna sölu á Ásmundarsal
✿ Úrslit úr borgarstjórnarkosningum í lundúnum*
n Verkamannaflokkurinn
n Græningjar
n Frjálslyndir demókratar
n UKIP
n Aðrir
n Íhaldsflokkurinn
Sigurbjörn Þorkelsson og Aðalheiður Magnúsdóttir keyptu Ásmundarsal af ASÍ
fyrir 168 milljónir króna. FRéttAblAðið/SteFÁn
7 . m a í 2 0 1 6 l a U G a r d a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð